Fréttablaðið - 01.12.2010, Síða 47
MARKAÐURINN
F R É T T I R
9MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Hundruð milljarða í stýringu
Einkabankaþjónusta
Eigna- og lífeyrisþjónusta
Netbanki
Hafðu samband í síma 440 4920 til að
fá nánari upplýsingar eða til að mæla
þér mót við ráðgjafa.
Sveigjanlegt þjónustustig
Netbankinn
Eigna- og lífeyris þjónustan
Einkabankaþjónustan
Alhliða fjármálaþjónusta
Vöktun
safna
Eigna-
stýring
Lífeyris-
þjónusta
Fjárfestingar-
ráðgjöf
Upplýsingar
um skattamál
Verðbréfa-
viðskipti
Banka-
þjónusta
Eignastýring Íslandsbanka
eignastyring@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 44 4920
Vörur voru fluttar út fyrir 462,7
milljarða króna fyrstu tíu mán-
uði þessa árs en flutt var inn
fyrir 364,2 milljarða króna. Af-
gangur var því á vöruskiptunum
við útlönd sem nam 98,5 milljörð-
um en á sama tíma árið áður voru
þau hagstæð um 74,0 milljarða á
sama gengi. Vöruskiptajöfnuður-
inn var því 24,5 milljörðum króna
hagstæðari en á sama tíma árið
áður.
Þetta kemur fram á vefsíðu Hag-
stofunnar. Þar segir að í október
hafi verið fluttar út vörur fyrir
47 milljarða króna og inn fyrir
36,9 milljarða króna. Vöruskiptin
í október voru því hagstæð um 10,1
milljarð króna. Í október 2009 voru
vöruskiptin hagstæð um tæpa 10,5
milljarða króna á sama gengi¹.
Sjávarafurðir voru 39,7 prósent
alls útflutnings og var verðmæti
þeirra 7,7 prósentum meira en á
sama tíma árið áður. Útfluttar iðn-
aðarvörur voru 55,4 prósent alls
útflutnings og var verðmæti þeirra
34,2 prósentum meira en á sama
tíma árið áður.
Vöruskipti
hagstæð um
100 milljarða
SJÁVARAFURÐIR Nema rétt tæpum
fjörutíu prósentum alls útflutnings það
sem af er árinu.
Íslenska netmarkaðsfyrirtækið Nordic
Emarketing hefur skapað sér nafn víða
um heim undanfarin ár þar sem það
hefur verið leiðandi í markaðssetningu
á vefnum.
Kristján Már Hauksson, eigandi fyrir-
tækisins, hefur staðið lengi í þessum
bransa, eða frá árinu 1997, en segir í
samtali við Markaðinn að nánast óend-
anlegir möguleikar séu fyrir hendi.
Nordic Emarketing sérhæfir sig í að
hjálpa fyrirtækjum um allan heim að
koma sínum boðskap áleiðis til neyt-
enda með markvissum hætti, þar á
meðal með leitarvélabestun, þ.e. því að
verða sem sýnilegust á leitarvélum.
„Það sem við sérhæfum okkur í er
að hjálpa fólki við að marka sér heild-
stæða stefnu í markaðssetningu yfir
netið og leitarvélabestun er bara hluti
af því. Fyrir utan leitarvélar einbeit-
um við okkur að félagsmiðlunum,
borðaauglýsingum, umfjöllunum
á fagbloggum og þar fram eftir
götunum.“
Fyrirtækið hefur að undanförnu
starfað með nokkrum af stærstu
vörumerkjum heims, svo sem Puma,
Siemens og Tesco-verslunarrisan-
um, og Kristján segir smæð Íslands
og áherslu á erlend samskipti hjálpa
mikið í þessum efnum.
„Okkar stærsti kúnnahópur er ekk-
ert endilega fólk sem talar ensku,
heldur eru erum við með sérþekkingu
á margtyngdum mörkuðum, annað en
breskir aðilar, til dæmis, sem hafa
bara verið að horfa inn á við. Þegar
þarlendir aðilar ætla svo að snúa sér
að erlendum mörkuðum eru markaðs-
fyrirtækin í þeirra landi ekki eins fær
og þess vegna koma viðskiptavinir til
okkar og við erum að ná gríðarlega
góðum árangri.“
Ekki er hörgull á tækifærum í mark-
aðsmálum á netinu og Nordic Emark-
eting hefur nóg að gera í spennandi
bransa.
Leiðandi í netmarkaðsmálum
KRISTJÁN MÁR HAUKSSON Eigandi Nordic Emarketing.
MARKAÐURINN/ANTON
Aflaverðmæti íslenskra skipa
nam tæpum 91 milljarði króna á
fyrstu átta mánuðum ársins 2010
samanborið við tæpa 77 millj-
arða á sama tímabili 2009. Afla-
verðmæti hefur því aukist um 14
milljarða eða 18,2 prósent á milli
ára. Þetta kemur fram á vefsíðu
Hagstofunnar.
Verðmæti afla sem seldur er í
beinni sölu útgerða til vinnslu inn-
anlands nam 36 milljörðum króna
og jókst um 23 prósent frá árinu
2009. Aflaverðmæti sjófrystingar
var tæpir 33,3 milljarðar, sem er
26,7 prósenta aukning milli ára.
Verðmæti afla sem keyptur er á
markaði til vinnslu innanlands
jókst um 39,6 prósent milli ára
og var um 13,4 milljarðar.
Aflaverðmæti
eykst