Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 78
58 1. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
MORGUNMATURINN
„Ég fæ mér jarðarberja AB
mjólk með Kellogg’s Special K.
Annars er hafragrauturinn í
skólanum alltaf góður.“
Andrea Röfn Jónasdóttir, nemi og
fyrirsæta.
Söngkonan Jóhanna Guðrún er stödd í Svíþjóð,
þar sem hún tekur þátt í stórri jólasýningu ásamt
mörgum af þekktustu söngvurum Svíþjóðar.
„Það er þvílík mæting á þetta. Það eru tvær sýn-
ingar í gangi sem berjast um vinsældirnar og þessi
er greinilega að vinna þá keppni,“ segir María Björk
Sverrisdóttir, samstarfskona Jóhönnu Guðrúnar.
Þema sýningarinnar er sænska konungsfjöl-
skyldan og er um nokkurs konar söngleik að ræða.
Skemmtunin, sem felur í sér þriggja rétta kvöld-
verð, er haldin fjórum sinnum í stórum höllum í
Svíþjóð og munu um sextán þúsund manns hafa
barið Jóhönnu og félaga augum þegar yfir lýkur
á föstudagskvöld. Á meðal þeirra sem stíga á svið
með henni eru Andreas Johnson, Jessica Andersson,
Brolle og Eric Saade, sem er ungur og upprennandi
söngvari og tekur þátt í sænsku Eurovision-undan-
keppninni í ár. Sýningin hefur fengið góðar viðtökur
gagnrýnenda, þar á meðal fimm stjörnur á sænsku
tónlistarsíðunni Poplight.zitiz.se.
Jóhanna er sjálf í hlutverki Svíaprinsessu og ber
kórónu á höfði. Á meðal laga sem hún syngur eru
Respect sem Aretha Franklin gerði vinsælt og að
sjálfsögðu Eurovision-slagarinn Is it True?
María Björk hætti sem umboðsmaður Jóhönnu
Guðrúnar í sumar eftir tíu ára samstarf og við
starfinu tók norski umbinn Eyvind Brydøy. María
starfar þó enn fyrir Jóhönnu og stóð meðal annars
á bak við þátttöku hennar í Svíþjóðar-gigginu. „Við
erum að vinna saman og munum gera það í framtíð-
inni. Ég ætla að leggja mitt af mörkum til að ferill
hennar haldi áfram en við ætlum að sjá hvernig
hlutirnir þróast,“ segir María. - fb
Með kórónu á sænskri sýningu
JÓHANNA OG SAADE Jóhanna Guðrún ásamt Eric Saade sem
er einn af vinsælustu ungu söngvurunum í Svíþjóð.
„Það er mjög ánægjulegt hvað við
höfum fengið góð viðbrögð,“ segir
Þorleifur Einarsson, sem leikstýrði
nýjum þáttum sem eru byggðir
á sunnudagaskólanum og eru að
koma út á mynddiski.
Tæplega eitt þúsund eintök hafa
verið seld í forsölu af disknum, sem
er gefinn út af Skálholtsútgáfunni.
Ákveðið hefur verið að framleiða
fjögur þúsund eintök til viðbótar,
sem er um það bil tvöföldun á því
sem var upphaflega stefnt á.
„Við vissum í rauninni ekkert
hvað við vorum að fara út í. Svo
stækkaði þetta og stækkaði og varð
miklu meira en við bjuggumst við,“
segir Þorleifur. „Mér skilst að for-
eldrar vilji miðla þessum boðskap
og þeir hafa kannski ekki tíma eða
annað til að mæta í sunnudaga-
skólann. Þar af leiðandi er svona
DVD-diskur mjög góð lausn á því.
Við höfum heyrt frá foreldrum
og öðrum að það hafi löngu verið
kominn tími á þetta.“
Í aðalhlutverkum eru þau Haf-
dís og Klemmi, sem lenda í ýmsum
skemmtilegum ævintýrum áður en
þau fara í sunnudagaskólann. Leik-
arinn Jóel Sæmundsson og Hafdís
Matsdóttir, sunnudagaskólakenn-
ari í Lindakirkju, fara með hlut-
verk þeirra. - fb
Sunnudagaskólinn slær í gegn
HAFDÍS OG KLEMMI Hafdís og Klemmi lenda í ýmsum skemmtilegum ævintýrum á
nýja mynddisknum.
- Skáldsögur ársins 2009
- Pétur Gunnarsson, Guðni
Elísson, Haukur Már, Ólafur
Jóhann Ólafsson, Kristín
Svava ...
- Greinar, ljóð og ritdómar
TMM
– LOKAHEFTI ÁRSINS
Ó M I S S A N D I Ö L LU B Ó K M E N N TA F Ó L K I
RITSTJÓRI:
Guðmundur
Andri Thorsson
Hlý vetrarúlpa með
hettu og loðkraga. Vind-
helt efni sem hrindir frá
sér vatni. Svört og ljós-
brún í dömustærðum.
Svört, dökkbrún, rauð
í herrastærðum.
„Það var engin lögreglufylgd en
það voru öryggisverðir sem pöss-
uðu upp á okkur,“ segir Þorvaldur
Þór Þorvaldsson, trommari í hljóm-
sveit Jónsa úr Sigur Rós.
Sveitin hélt tónleika í Suður-
Kóreu á mánudagskvöld. Ástandið
í landinu hefur verið ótryggt upp á
síðkastið vegna átaka á milli Suður-
og Norður-Kóreu en Þorvaldur vissi
ekki hvort öryggisverðirnir hefðu
verið fengnir vegna þess. „Þegar
við fórum á hótelbarinn löbbuðu
þeir með okkur og biðu eftir okkur
og þegar ég fór á klósettið beið
öryggisvörður mín þegar ég kom
til baka. Ég hef aldrei lent í þessu
áður,“ segir Þorvaldur. „Það var
engin ástæða til að hafa þá þarna.
Ég veit ekki hvaðan þetta kom.
Við hefðum aldrei farið út ef það
hefði verið hætta á ferðinni og ég
fann ekkert fyrir þessum titringi
í Seúl.“
Trommarinn segir tónleikana í
borginni eina þá bestu á tónleika-
ferðinni, sem hófst í London í apríl.
„Þetta voru frábærir tónleikar og
frábærir áhorfendur, hugsanlega
þeir bestu á þessum túr. Þeir voru
búnir að stilla saman strengi sína
og fylltu sviðið af skutlum í einu
laginu. Það er gaman fyrir okkur
þegar áhorfendur eru búnir að
undirbúa sig og gera eitthvað fyrir
okkur. Þeir voru líka með snjósprey
í öðru lagi.“
Hann segir tónleikaferðina hafa
verið draumi líkasta. Það kemur
ekki á óvart því áður en lokatónleik-
arnir í Laugardalshöll 29. desember
hefjast hefur sveitin spilað á 99 tón-
leikum um víða veröld, fyrir fram-
an um 200 þúsund manns, til að
kynna fyrstu sólóplötu Jónsa, Go.
„Þetta er búið að vera stórkostlegt
ævintýri og ógleymanleg reynsla.
Það eru yndislegir strákar í hljóm-
sveitinni og við erum allir rosalega
heppnir finnst mér að hafa hver
annan.“
Þorvaldur gaf út sína fyrstu sóló-
plötu í fyrra eftir að hafa dvalið í
sjö ár í Bandaríkjunum við nám og
störf. „Ég er mjög þakklátur fyrir
að hafa fengið þetta tækifæri og
það er frábært að vinna með Jónsa.
Hann er einn allra besti söngvari
sem ég hef á ævinni unnið með.“
Spurður hvort hann hafi hitt ein-
hverja fræga á tónleikaferðinni er
fátt um svör. Reyndar hitti Þorvald-
ur kollega sinn í The Roots, Quest-
love, í upptökuveri sjónvarpsstöðv-
arinnar NBC í New York, en tókst
ekki að hitta rapparann Jay-Z og
goðsögnina Stevie Wonder eins
og hann hafði vonast eftir. „Ég er
búinn að missa þrisvar af Jay-Z. Ég
væri alveg til í að taka í höndina á
honum og segja að mér finnist hann
frábær.“ freyr@frettabladid.is
ÞORVALDUR ÞORVALDSSON: FÉKK ÖRYGGISFYLGD Á KLÓSETTIÐ
Lífverðir fylgdu hljómsveit
Jónsa eftir í Suður-Kóreu
VEL HEPPNUÐ
TÓNLEIKAFERÐ
Hljómsveit Jónsa sem hefur
verið á tónleikaferð um heiminn
á þessu ári. Frá vinstri að ofan
eru Óli Björn, Alex, Jónsi og
Þorvaldur og Úlfur situr fyrir
framan. Þorvaldur hitti Quest-
love, trommara The Roots, og fór
vel á með þeim félögum.