Fréttablaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 10
9. desember 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Hver er hlutur ríkisins af hverjum
seldum bensínlítra?
Þegar litið er aftur til desember
2008 á meðfylgjandi skýringar-
mynd má sjá að ríkið tók til sín 70
krónur af hverjum seldum lítra,
og hefur því aukið sinn hlut um 34
krónur á lítrann, sem er nær 50 pró-
senta aukning.
Ef litið er til viðmiða Félags
íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB),
sem gera ráð fyrir að fjölskyldubíll
eyði um 2.000 lítrum af bensíni, sést
að þar er um að ræða aukna skatt-
heimtu um 68.000 á hvern bíl á ári.
Frá hruni hafa bensíngjöld verið
hækkuð fjórum sinnum. Fyrsta
hækkunin varð í desember 2008
þegar vörugjöld voru hækkuð um
rúmar fimm krónur á lítrann, en
þeim var fylgt eftir með ríflegri
hækkun vorið eftir þegar almennt
bensíngjald hækkaði um 10 krónur
á lítrann.
Í byrjun þessa árs voru svo
almenn gjöld hækkuð á ný auk þess
sem lagt var á kolefnisgjald, sem er
2,6 krónur á hvern lítra.
Þessar miklu skattahækkanir
koma samhliða gríðarlegri hækk-
un á heimsmarkaðsverði bens-
íns og samanlögð áhrif af þessum
tveimur þáttum eru undirliggjandi
í þeim miklu hækkunum á útsölu-
verði undanfarna mánuði.
Enn er svo frekari skattahækk-
ana að vænta um næstu áramót þar
sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð
fyrir 4 prósenta hækkun á bensín-
gjöldum og jafnframt verður kol-
efnisgjaldið hækkað upp í 3,9 krón-
ur á lítrann. Það eru fjórar krónur
á hvern lítra að minnsta kosti og
telja má nær öruggt að þær hækk-
anir munu skila sér í hærra útsölu-
verði.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir í samtali
við Fréttablaðið að um alvarlegt
mál sé að ræða.
„Þetta er nokkurs konar aðför að
ákveðnum lífsgildum þar sem bíll-
inn gefur fólki fjölbreyttari mögu-
leika á búsetu og atvinnu og er auk
þess mikilvægt öryggistæki.“
Runólfur segir FÍB einnig hafa
bent á að hækkanir sem þessar geti
í raun haft neikvæð áhrif á hagkerf-
ið þar sem hærra bensínverð hefur
í för með sér samdrátt í ferðalög-
um, og þar af leiðandi minni tekjur
af ferðamennsku.
thorgils@frettabladid.is
Ríkið tekur æ stærri
skerf af bensínverði
Álögur ríkisins á hvern lítra bensíns hafa stóraukist síðustu tvö ár og renna nú
um 104 krónur í ríkissjóð af hverjum seldum bensínlítra. Fjárlagafrumvarpið
sem nú liggur fyrir Alþingi felur í sér enn frekari hækkanir á bensíngjöldum.
Ríkið innheimtir í raun þrenns konar gjöld af hverjum bensínlítra.
Bensíngjöld eru tvenns konar. Annars vegar eru það almenn bensíngjöld,
sem renna í ríkissjóð, og hins vegar sérstök bensíngjöld sem ganga að
langmestu leyti til vegaframkvæmda.
Virðisaukaskattur er innheimtur bæði af bensíngjöldum og kostnaðarverði,
sem er innkaupsverð og álagning olíufyrirtækjanna.
Kolefnisgjald var fyrst lagt á eldsneyti í upphafi árs. Það er ákvarðað
með hliðsjón af verði losunarheimilda á uppboðsmarkaði ESB og er 2,60
krónur á hvern bensínlítra hér á landi.
Þrenns konar bensínskattar
100
80
60
40
20
0
Hlutur ríkisins af hverjum bensínlítra
Desember
2008
Desember
2010
Janúar
2011*
70
kr/l
103,6
kr/l
107,8
kr/l
*Miðað er við gildandi lög um skatta og álögur á hverjum tíma, en í síðasta tilfellinu er
gert ráð fyrir að hugmyndir í fjárlagafrumvarpi nái fram að ganga og bensínverð haldist
nokkuð stöðugt fram yfir áramót.
STJÓRNLAGAÞING Sjötta hvert atkvæði sem greitt var í
kosningunum til stjórnlagaþings féll dautt og nýttist
ekki neinum þeirra sem að lokum náði kjöri.
Alls voru 82.335 gild atkvæði greidd. Tæp 83,3
prósent þeirra atkvæða nýttust einhverjum þeirra
sem komst á þingið, en um 16,7 ekki neinum. Af þeim
eru nær öll heil atkvæði, sem þýðir að val 13.770
kjósenda hafði engin áhrif á niðurstöðuna. Þátttaka
þeirra hafði þó áhrif á útreiknað lágmarksmagn
atkvæða sem frambjóðendur þurftu til að ná kjöri.
Úr þessum upplýsingum má lesa að nöfn þeirra
fjórtán stjórnlagaþingmanna sem komust síðastir
inn, með minna en lágmarksmagn atkvæða, hafi
hvergi verið að finna á neinum þessara 13.770 seðla.
Kosningakerfið var ekki síst valið með tilliti til
þess að atkvæði kjósenda nýttust betur en í öðrum
kosningakerfum.
Tæpur þriðjungur kjósenda , eða 29,4 prósent, nýtti
möguleika sína til fulls og raðaði 25 frambjóðendum
á kjörseðil sinn. Einungis 3,4 prósent létu nægja að
velja einn. Meðalfjöldi frambjóðenda á kjörseðlum
var 14,8. - sh
Atkvæðaseðlar 13.770 kjósenda höfðu engin áhrif á kjörið til stjórnlagaþings:
Sjötta hvert atkvæði féll dautt
Á KJÖRSTAÐ Einn af hverjum sex sem mættu á kjörstað hafði
lítil sem engin áhrif á niðurstöðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
NÁTTÚRA Hafís gæti ógnað sigl-
ingaleiðum norðvestur af landinu.
Ísröndin kemur næst landi 21,7 sjó-
mílur norður af Horni, 25,3 sjómíl-
ur frá Straumnesi og 43,6 sjómíl-
ur frá Barða. Nokkuð virðist hafa
myndast af nýjum ís þar sem jak-
arnir koma næst landi og vekur það
nokkra athygli veðurfræðinga.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
Gná, flaug á þriðjudag gæslu- og
hafíseftirlit fyrir Vestfirði og kom
að ísrönd milli Íslands og Græn-
lands. Er hafísinn samfrosinn með
stórum íshellum sem geta verið
hættulegar skipum.
Sáust fimm stórir borgarísjakar
úti fyrir Barða, frá 30 til 110 metra
á hæð. Landhelgisgæslan telur að
ekki stafi mikil hætta af borgar-
ísjökunum þar sem þeir voru vel
innan við ísröndina og sáust vel á
ratsjá. Þeir séu þó nokkuð sprungn-
ir og brotnað gæti úr þeim. Því
fylgir öllu meiri hætta.
Veðurstofa spáir suðvestanátt
fram yfir helgi og er því ekki gert
ráð fyrir að ísinn færist nær landi
á þeim tíma. - bþh
TF-Gná, þyrla Landhelgisgæslunnar, í hafíseftirliti fyrir Vestfjörðum:
Allt að 110 metra háir ísjakar
BORGARÍSJAKI Jakarnir eru sprungnir og
nokkur hætta er á að brotni úr þeim.
Kaffitími er alþjóðlegt fyrirbæri sem
fólk í hverskonar verslun, þjónustu og
iðnaði nýtir sér til að taka stutta
hvíld frá störfum og hlaða rafhlöðurnar.
Talið er að allt frá 1951 hafi kaffitími
verið skráður í kjarasamninga.
Kaffitíminn er í dag nánast heilög
stund, líka utan vinnutíma.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Njóttu lausnar frá amstri hversdagsins
með góðu BKI kaffi. Finndu hvernig þú
hressist með rjúkandi bolla af BKI kaffi. Nýttu
tækifærið. Gefðu þér smá hvíld. Fáðu þér BKI
kaffi. Njóttu kaffiilmsins, hitans og bragðsins
og taktu svo daginn með trompi.
Það er kominn tími fyrir BKI kaffi.
Taktu þér kaffitíma núna
Fangaðu
kaffitímann
með BKI kaffi
Það er kaffitími núna
Kauptu BKI
fyrir kaffitímann
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir. Kíktu á bki.is
Kauptu gott kaff
i
á góðu verði í da
g
MYND/LANDHELGISGÆSLAN