Fréttablaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 16
9. desember 2010 FIMMTUDAGUR
FÓLK Þrjátíu ár voru í gær liðin síðan
John Lennon var, síðla kvölds, myrt-
ur fyrir utan heimili sitt í New York.
John Lennon lifir þó enn meðal
aðdáenda sem einn áhrifamesti
listamaður allra tíma.
Ásamt félaga sínum Paul
McCartney stofnaði hann í Liver-
pool Bítlana, sem urðu ein vinsæl-
asta hljómsveit allra tíma. Tónlist
hans hefur haft mikil áhrif á nútím-
ann, ekki aðeins í tónlist heldur á
menningarheim fólks líka.
John Lennon hóf sólóferil sinn
eftir að hann kynntist Yoko Ono og
hætti í Bítlunum. Þá segir Ingólf-
ur Margeirsson Bítlasérfræðing-
ur að öll hans viðhorf hafi breyst.
„Lennon verður sjálfhverfari. Hann
var mesti listamaðurinn í Bítlunum
og sú hlið hans blómstraði með Yoko.
Hann bar út friðarboðskap og leiddi
ákveðna friðarhreyfingu í tónlist.“
„Lennon uppskar mikið með
friðar boðskap sínum. Hann er að
mínu mati einn mesti friðarpostuli
sem nokkurn tíma hefur verið uppi.
Hann sagði í viðtali að Bítlarnir
væru stærri en Jesús og meinti þá
að þeir hefðu meiri áhrif en hann.
Ég er viss um að það sé rétt.“
Ingólfur bendir á að boðskapur
Lennons sé talinn sjálfsagður í dag:
Baráttan gegn stríði, náttúruspjöll-
um og kynþáttahatri. „Það merki-
legasta sem hann skildi eftir sig var
þessi huglæga bylting.“
Dauði hans árið 1980 var heimin-
um mikið áfall. John Lennon hafði
gefið Mark David Chapman eigin-
handaráritun fyrr um kvöldið 8.
desember. Chapman skaut hann svo
fjórum sinnum í bakið. Hann situr
enn í fangelsi fyrir verknaðinn.
„Lennon hefur fylgt mér í gegn-
um allt mitt líf og mun fylgja mér
alla leið í gröfina,“ segir Ingólfur að
lokum. birgirh@frettabladid.is © GRAPHIC NEWS
■ 9. okt. 1940: John Winston Lennon fæðist
í Liverpool á Englandi. Hann er einkabarn Juliu
og Alfred Lennon.
■ 1957: Lennon stofnar rokkhljómsveitina
The Quarrymen ásamt Paul McCartney.
George Harrison bætist síðar í hópinn..
■ 1960-62: Nafninu er breytt í The Beatles.
Þeir leika á yfir 280 hljómleikum í Hamborg.
■ 1962: Bítlarnir – nú með Ringo Starr á
trommum – gefa út fyrstu plötu sína, Love
Me Do. Lennon kvænist Cynthiu Powell. Julian
sonur þeirra fæðist í apríl 1963.
■ 1964: Ofboðsleg velgengni Bítlanna í
Bandaríkjunum leiðir til tveggja ára tónleika-
ferðalags og heimsfrægðar.
■ 1965: Bítlarnir hljóta MBE-orðuna úr hendi
Elísabetar II Bretadrottningar.
■ 1966: Lennon segir Bítlana vera vinsælli en
Jesús, sem hefur í för með sér minni vinsældir.
■ 1967: Sgt. Pepper‘s Lonely Hearts Club
Band gefin út.
■ 1968: John og Cynthia skilja.
■ 1969: Lennon kvænist Yoko Ono. Give
Peace a Chance er tekið upp. Lennon skilar
MBE-orðunni til að mótmæla Víetnamstríðinu.
■ 1970: Bítlarnir hætta.
Lennon gefur út fyrstu sólóplötu sína, John
Lennon/Plastic Ono Band.
■ 1971: Lennon og Ono flytja til New York.
Imagine er gefin út.
■ 1972: FBI hefur rannsókn vegna áætlana
um að senda Lennon úr landi vegna tengsla
hann við stríðsmótmælahópa. Lennon og
Ono gefa út Some Time in New York City
– pólitíska plötu með lögum um kvenréttindi
og kynþáttafordóma.
■ 1973: Lennon og Ono skilja í 18 mánuði.
■ 1974: Lennon gefur út plötuna Walls and
Bridges sem inniheldur slagarann Whatever
Gets You Thru the Night. Lennon heldur sína
síðustu tónleika í Madison Square Garden.
Elton John kemur fram á tónleikunum.
■ 1975: Bandarísk yfirvöld hætta við áform
um að vísa Lennon úr landi. Sonurinn Sean
kemur í heiminn. Lennon tekur sér frí frá tónlist.
■ 1980: Double Fantasy er gefin út.
■ 8. des. 1980: John Lennon er myrtur af
sturluðum aðdáanda, Mark David Chapman,
fyrir utan heimili sitt á Manhattan í New York.
MYNDIR: ASSOCIATED PRESS, GETTY IMAGES
Boðskapurinn löngu
orðinn almannaeign
John Lennon var skotinn til bana fyrir utan Dakota-bygginguna í New York
fyrir réttum 30 árum og hefði orðið sjötugur í ár. Ingólfur Margeirsson segir
Lennon hafa verið boðbera friðar í heiminum og haft mikil áhrif á nútímann.
Miðasala Hverfisgötu I 551 1200 I leikhusid.is
GEFÐU GÓÐAR
STUNDIR
á hátíðartilboði
aldrei út.
Fjöldi glæsilegra sýninga í boði!
Hátíðartilboð 3.500 kr.
BALLIÐ Á BESSASTÖÐUM
Nýtt og sprellfjörugt barnaleikrit
eftir Gerði Kristnýju.
Frábær jólagjöf fyrir alla krakka!
Hátíðartilboð 2.800 kr.
Gleðileg jól
NOREGUR, AP Nítján lönd, að Kína meðtöldu, ætla
ekki að senda fulltrúa við afhendingu friðarverð-
launa Nóbels til kínverska mótmælandans Liu Xia-
obo, að því er fram kemur í tilkynningu norsku
Nóbelsnefndarinnar. Afhendingin fer fram á
morgun, föstudag.
Meðal landa sem afþakkað hafa boð um að vera
við athöfnina eru Rússland, Pakistan, Serbía, Íran,
Venesúela og Kúba. Nóbelsnefndin segir 44 lönd
hafa þekkst boðið.
Stjórnvöld í Kína reiddust mjög þegar friðarverð-
laun Nóbels voru veitt Liu Xiaobo, en hann afplánar
ellefu ára fangelsisdóm í Kína fyrir undirróðurs-
starfsemi, eftir að hafa með fleirum ritað ákall um
umbætur á stjórnmálakerfi landsins.
Jiang Yu, talskona kínverska utanríkisráðuneyt-
isins, sagði blaðamönnum í gær að norska Nóbels-
nefndin væri að setja á svið and-kínverskan farsa.
„Við breytum ekki okkar háttum þrátt fyrir truflun
frá einhverjum trúðum og hverfum ekki af okkar
braut,“ sagði hún.
Ættingjar Liu hafa ekki fengið leyfi stjórnvalda
í Kína til að yfirgefa landið til að veita friðarverð-
laununum viðtöku fyrir hans hönd. - óká
MÓTMÆLI Í HONG KONG Mótmælaborði með mynd af Liu
Xiaobo, handhafa friðarverðlauna Nóbels í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Friðarverðlaun Nóbels verða afhent í Ósló á morgun:
Nítján lönd hunsa athöfnina
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
hvetur þingmenn demókrata til að
samþykkja breytt frumvarp um
skattalækkanir, sem taka á gildi
um áramótin.
Hann segir rangt að demókratar
hafi verið sviknir með samkomu-
laginu sem hann gerði við repúblik-
ana. Því betur sem demókratar
skoða hvað felst í frumvarpinu,
segir Obama, því meiri hljóti stuðn-
ingur þeirra við það að verða.
Hann segir nýja frumvarpið
hafa það í för með sér að efna-
hagur Bandaríkjanna taki kipp og
atvinnuleysi minnki. Með frum-
varpinu verður framlengdur sá
skattaafsláttur sem lágtekjufólk
hefur átt kost á í Bandaríkjun-
um. Lögin um þennan skattafslátt
renna út um áramótin, og repúblik-
anar hótuðu því að samþykkja ekki
frumvarpið nema skattaafsláttur-
inn yrði látinn ná til hátekjufólks
en ekki bara lágtekjufólks, eins og
verið hefur.
Obama gekk að þessum kröfum
repúblikana, en nú eru það demó-
kratar sem hóta því að samþykkja
ekki frumvarpið. - gb
Obama hvetur demókrata til að skoða betur samkomulag hans við repúblikana:
Segist ekki hafa svikið neitt
BARACK OBAMA Demókratar hafa gagn-
rýnt samkomulag hans við repúblikana
um að skattaafsláttur nái ekki bara til
láglaunafólks. FRÉTTABLAÐIÐ/AP