Fréttablaðið - 09.12.2010, Side 18
18 9. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Í PEKING Gufu leggur úr hitastokki
í Peking. Þátttakendur á umhverfis-
ráðstefnu í Mexíkó segja bjartara yfir
viðræðum eftir að Kínverjar gáfu í skyn
aukinn sveigjanleika í nokkrum málum
sem ekki hafa áður fengist rædd og
varða alþjóðasamvinnu. NORDICPHOTOS/AFP
ALLT Á AÐ
SELJ
RÝMINGARSALA! RÝMINGARSALA!
lifa-design.com
Lifa Design á Íslandi
BYKO Breidd
200 Kópavogur
S ími: 515 4200
SKÓLAMÁL Uppi eru ráðagerðir í
Árborg um að leggja niður skóla-
hald í elsta starfandi grunnskóla-
húsnæði Selfoss og leigja húsið út.
Vallaskóli á Selfossi hefur síð-
ustu ár verið starfræktur í tveimur
aðskildum skólum, Sandvíkurskóla
þar sem eru nemendur frá fyrsta
og upp í fjórða bekk, og Sólvalla-
skóla fyrir nemendur frá fimmta og
upp í tíunda bekk.
Samkvæmt áætlunum sem kynnt-
ar hafa verið nemendum, foreldrum
og kennurum stendur til að yngstu
deildirnar fjórar færist í húsnæði
Sólvallaskóla. Einnig verði endur-
nýjað húsnæði við Sólvallaskóla
þar sem félagsmiðstöðin Zelsíus er
til húsa þannig að henti til kennslu
yngstu bekkjardeildanna. Félags-
miðstöðin færist svo í annað hús-
næði í eigu bæjarins.
Með breytingunum er áætlað að
nokkur sparnaður náist fram. Ásta
Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Árborgar, segir að þótt skólanefnd
eigi enn eftir að taka ákvörðun
um flutninginn sé í nýsamþykktri
fjárfestingaráætlun bæjarins gert
ráð fyrir kostnaði við að breyta
húsnæði félagsmiðstöðvarinnar í
kennsluhúsnæði.
Þegar Ásta og Guðbjartur Óla-
son, skólastjóri Vallaskóla, fóru
nýverið yfir fyrirhugaðar breyting-
ar með bekkjartenglum í hópi for-
eldra skólabarna í Vallaskóla kom
fram í máli Guðbjarts að breyting á
húsnæðismálum skólans hefði verið
fyrirhuguð í nokkur ár. Nemend-
um í skólanum hefur fækkað með
tilkomu Sunnlækjarskóla, annars
grunnskóla í bænum, fyrir nokkr-
um árum. Nú sé hins vegar komið
jafnvægi á fjölda nemenda og ald-
ursskiptingu í samspili við hinn
skólann og tímabært að huga að
húsnæðismálunum. - óká
SANDVÍKURSKÓLI Á Selfossi hafa verið
kynntar hugmyndir um að sameina undir
eitt þak rekstur Vallaskóla, sem nú er
rekinn í Sandvíkur- og Sólvallaskóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Bæjarstjórn Árborgar ráðgerir að leggja niður kennslu í húsnæði Sandvíkurskóla á Selfossi:
Yngstu börnin færð og félagsmiðstöðin líka
ALÞINGI Starfandi heimilislæknum
fer fækkandi, meðalaldur starf-
andi heimilislækna er að hækka
og ekki tekst að fylla allar þær
námsstöður í heimilislækningum
sem standa til boða hér á landi.
Skortur á heimilislæknum er sá
flöskuháls sem helst tefur upp-
byggingu heilsugæslunnar hér
á landi.
Þingmenn veltu fyrr í vik-
unni upp þeim möguleikum
að mennta nýja stétt aðstoðar-
manna lækna eða auka réttindi
hjúkrunarfræðinga til að greina
sjúkdóma eða ávísa lyfjum í því
skyni að tryggja að heilsugæsl-
an geti veitt sem mesta þjónustu
um land allt.
Þingmenn allra flokka virt-
ust sammála um mikilvægi þess
að sem flestir sjúklingar leituðu
til heilsugæslunnar með vanda-
mál sín áður en sótt væri í dýr-
ari þjónustu hjá sérfræðilæknum
eða sjúkrahúsum.
Eygló Harðardóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, sagði að
í Bretlandi og Bandaríkjun-
um hefðu hjúkrunarfræðingar
meiri réttindi en hér á landi til
að greina einfalda sjúkdóma og
gefa út lyfseðla. Einnig væru þar
starfandi sérmenntaðir aðstoðar-
menn lækna, sem önnuðust ein-
falda skoðun og öfluðu upplýs-
inga frá sjúklingum. Kanna
þyrfti ítarlega hvort menntun í
þessi störf ætti heima í langtíma-
stefnumörkun fyrir heilsugæsl-
una á Íslandi.
Ólafur Þór
Gunnarsson,
varaþingmaður
VG og starfandi
læknir, sagði að
vandinn við það
að byggja upp
heilsugæsluna
hér á landi væri
meðal annars
fólginn í því að
tíu til fjórtán ár
tæki að mennta
einn heimilis-
lækni. Kanna
þyrfti hvað það
væri í starfs-
umhverfi heim-
ilislækna sem
ylli því að þær
námsstöður sem
byðust fylltust
ekki.
Ólafur Þór og
Þórunn Svein-
bjarnardóttir,
þingmaður Sam-
fylkingar, lögðu
áherslu á mikil-
vægi langtíma-
stefnumótunar
í málum heilsu-
gæslunnar.
Ólafur Þór
sagði að hér á
landi væru til hjúkrunarfræðingar
með sérmenntun sem veittu leyfi
til að greina sjúkdóma og gefa út
lyfseðla víða erlendis. Skoða mætti
möguleika á að nýta krafta þeirra
betur. peturg@frettabladid.is
Hugmyndir
um nýja heil-
brigðisstétt
Heimilislæknum fækkar og ekki tekst að manna all-
ar námsstöður í greininni. Þingmenn ræða mögu-
leika á að auka réttindi hjúkrunarfræðinga til að
greina sjúkdóma og gefa út lyfseðla.
HEILSUGÆSLAN Þingmenn leita leiða út úr þeim vanda sem viðvarandi fækkun
heimilislækna skapar í heilsugæslunni um land allt. Ekki tekst að manna þær náms-
stöður í faginu sem eru í boði fyrir íslenska lækna.
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR
ÓLAFUR ÞÓR
GUNNARSSON
ÞÓRUNN SVEIN-
BJARNARDÓTTIR