Fréttablaðið - 09.12.2010, Qupperneq 40
40 9. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Það er mikið rætt og ritað á Íslandi í dag um fyrirhugað-
an niðurskurð í heilbrigðiskerf-
inu vegna slæmrar stöðu Ríkis-
sjóðs. Við Íslendingar búum við
ótrúlega gott heilbrigðiskerfi og
við getum treyst því að komast
undir læknishendur ef við hníg-
um niður með kransæðastíflu
(þ.e.a.s ef einhver verður var við
okkur), fótbrotnum, greindumst
með krabbamein, kynsjúkdóm
eða önnur alvarleg mein.
Það eru ótrúleg fríðindi að
búa í landi þar sem svona vel
er hugsað um okkur en þessu
fylgir líka ókostur. Gæti ástæða
þess að við lifum stundum eins
og enginn sé morgundagurinn
verið sú að við treystum því að
heilbrigðiskerfið sjái um okkur
ef t.d lungun klikka vegna reyk-
inga, æðarnar stíflast vegna
óheilbrigðs mataræðis eða ef
hjartað gefur sig vegna neyslu á
ólöglegum efnum?
Við trúum því, eða í það
minnsta vonum það, að ekkert
komi fyrir okkur og vitum að
ef það klikkar þá er þetta góða
heilbrigðiskerfi tilbúið að hugsa
vel um okkur, þar til við getum
aftur farið að lifa okkar óheil-
brigða lífi.
Ef við viljum leggja okkar af
mörkum til að koma okkur út
úr núverandi efnahagskreppu
getum við byrjað á að hugsa
betur um okkur sjálf og lækkað
þannig kostnað heilbriðiskerf-
isins.
Við mundum líklega hugsa
betur um okkur ef við þyrftum
sjálf að sjá um kostnaðinn við
hjartaaðgerðina eða krabba-
meinsmeðferðina?! Það væri
kannski ráðið að taka upp auð-
valdsskipulagt heilbrigðiskerfi
líkt og tíðast t.d í Bandaríkjun-
um þar sem þeir sem eiga mesta
peninga fá bestu þjónustuna á
spítölum. Flestir skipta reglu-
lega um olíu á bílnum sínum og
fara reglulega með
hann í skoðun, vitandi
að hann getur brætt
úr sér sé það ekki
gert og verðgildi hans
minnkar. Þurfum
við að ganga um með
verðmiða til þess
að við áttum okkur
á því að við komum
aðeins í einu eintaki?
Það væri gaman að
sjá hvort fólk mundi
meta líf sitt betur ef
ríkið tæki ekki að sér
að sjá um það ef eitt-
hvað færi úrskeiðis
líkamlega? Ef ég væri
gerður að heilbrigðis-
ráðherra þá mundi ég
taka upp hinn árlega
„Hjálpaðu þér sjálf-
ur“ daginn þar sem
hver og einn þyrfti
að sjá um sig í veik-
indum sínum, þá fyrst held ég
að almenningur komi til með að
meta heilsu sína!? Auðvitað er
hér um grín að ræða en það er
samt sem áður kominn tími til
að fólk átti sig á því hvers virði
heilsa þess er!
Ein ástæða þess að sumir
hugsa ekki um líkama sinn gæti
verið sjálfseyðingarhvöt og ein-
hver óhamingja í lífinu. Þeim
væri hreinlega sama þótt að það
gæfi upp öndina og um að gera
að borða óhollt, dópa og reykja
til að flýta fyrir því ferli. En ég
hvet alla sem eru í þessum hug-
leiðingum að heimsækja fólk
sem hefur lamast og alvarlega
veika sjúklinga á legudeildum
og líknardeildum spítala lands-
ins. Óskir þessara sjúklinga eru
ótrúlega einfaldar t.d. „ég væri
til í að geta gengið“ og „ég væri
til í að geta séð börnin
mín brosa einu sinni
enn“. Það eru þessir
litlu hlutir í lífinu sem
gefa því gildi en því
miður áttum við okkur
stundum bara á því of
seint.
Við þurfum þó ekki
að lifa eins og græn-
metisætur, hreyfa
okkur meira en
Íþróttaálfurinn og
hugsa eingöngu um
heilsu okkar og heil-
brigði. Leyfum okkur
flest (innan skynsam-
legra marka) það sem
lífið hefur upp á að
bjóða en í HÓFI. Við
megum ekki verða svo
upptekin af því að lifa
heilbrigðu lífi að við
gleymum að lifa því!
Metum lífið og
þennan eina kropp sem við
höfum og um leið munum við
öðlast mun ánægjulegra og inni-
haldsríkara líf og minnka líkur
á alvarlegum sjúkdómum eða
veikindum í kjölfarið.
„Ef þú hefur ekki tíma fyrir
heilsuna í dag þá hefur heilsan
ekki tíma fyrir þig á morgun.“
Tökum ábyrgð á eigin heilsu
Heilbrigðismál
Geir Gunnar
Markússon
næringarfræðingur
Það væri
gaman að
sjá hvort fólk
mundi meta
líf sitt betur
ef ríkið tæki
ekki að sér að
sjá um það
ef eitthvað
færi úrskeiðis
líkamlega
Menningarsetur múslima
Samkvæmt norrænni goða-fræði varð fyrsta veran
til í miðju Ginnungagaps og
var það þursinn Ýmir. Tilurð
hans má rekja til þess að frost
Niflheims blandaðist eldum
Múspelsheims. Síðar var jörðin
og himinninn gerð úr holdi og
beinum Ýmis. Heiðinn menning-
ararfur Íslendinga hefur verið
alþýðu manna og listamönnum
óþrjótandi brunnur allt fram á
okkar daga. Íslensk þjóð á sér
líka kristinn menningararf og
gott er að kunna skil á þessari
sögu landsmanna þótt menn til-
einki sér ekki endilega heiðinn
sið eða kristna trú. Menning er
miklu meira en trúarbrögð.
Landnámsmenn og fyrstu afkomendur þeirra lifðu við
trúfrelsi, enda var hluti þeirra
heiðinn, annar hluti kristinn,
enn aðrir blendnir í trúnni og
sumir goðlausir. Við kristnitök-
una var mönnum leyft að blóta
á laun en trúfrelsi komst ekki
aftur á fyrr en með tilkomu
stjórnarskrárinnar árið 1874.
Nú stendur fyrir dyrum endur-
skoðun stjórnarskrárinnar og
allir telja sjálfsagt að trúfrelsi
verði þar ofarlega á blaði þar
sem það telst nú með grundvall-
armannréttindum.
Margt hefur breyst á Íslandi
síðan á 19. öld og hér má nú
finna mörg og ólík trúfélög, eitt
þeirra er Menningarsetur mús-
líma á Íslandi. Íslenskir máls-
hættir segja að hverjum þyki
sinn fugl fagur og að sæll sé
hver í sinni trú. Við múslímar
erum þar engin undantekning.
Íslendingar vita hvað heiðnin og
kristnin hefur djúpstæð áhrif á
þjóðarsálina, hugmyndaheim,
bókmenntir og listir en menn-
ing múslíma er þeim flestum
framandi.
Íslendingum sárnar þegar
dregin er upp sú mynd af vík-
ingum að þeir hafi verið menn-
ingarsnauðir ræningjar og
of stopamenn sem hafi farið víða
um lönd með ránum og hernaði.
Þeir vilja frekar hugsa til Völu-
spáar og Hávamála, siglingaaf-
reka, landafunda, lagagerðar
og verslunar forfeðranna. Að
sama skapi vilja kristnir menn
ekki kenna sig við krossferð-
irnar, rannsóknarréttinn eða
nornabrennur. Íslenskir ása-
trúarmenn sverja af sér kyn-
þáttahatur sumra trúbræðra
sinna í Bandaríkjunum og Evr-
ópu nútímans og kristnir Íslend-
ingar samsama sig ekki með
trúbræðrum sínum í Banda-
ríkjunum sem vilja kenna sköp-
unarsögu Biblíunnar í stað þró-
unarkenningarinnar og myrða
lækna er fást við fóstureyðing-
ar. Íslenskir múslímar frábiðja
sér á sama hátt að vera spyrtir
við hryðjuverk og afturhald trú-
bræðra sinna erlendis.
Menning er þroski mannlegra
eiginleika, þjálfun hugans, verk-
leg kunnátta, andlegt líf og sam-
eiginlegur arfur. Múslímar búa
að miklum, merkum og göfug-
um menningararfi, ekki síður
en heiðnir menn og kristnir. Við
eigum okkar merku bókmennt-
ir, ljóðlist, myndlist, bygging-
arlist, heimspeki, vísindi, mat-
argerð, siði, venjur o.s.frv. og
margir Íslendingar hafa fengið
örlitla innsýn í þann arf á ferð-
um sínum erlendis. Menningar-
setri múslíma á Íslandi er ætlað
að auðvelda félagsmönnum og
landsmönnum öllum að fræðast
um þennan arf hér á landi og
njóta hans með okkur. Á næsta
ári flyst starfsemin í Ýmishúsið
svokallaða í Öskuhlíð og er það
vel við hæfi að leiða saman ólíka
strauma í húsi kenndu við Ými.
Með rekstri menningarmið-
stöðvar viljum við draga úr for-
dómum og stuðla að jákvæð-
um samskiptum múslíma og
annarra Íslendinga. Við erum
sannfærðir um að aukin þekk-
ing á Íslam verður landi og
þjóð til framdráttar og að sama
skapi viljum við auka þekkingu
aðfluttra múslíma á Íslandi. Í
setrinu er t.d. ætlunin að kenna
aðfluttum múslímum íslensku,
halda námskeið um lýðræð-
isskipulag og mannréttindi í
Íslam og berjast gegn ofbeldi,
kynþáttahatri og hryðjuverkum.
Þar viljum við kenna aðfluttum
íslensku og íslenskum arabísku.
Við viljum sýna okkar bestu
hliðar og leggja okkar af mörk-
um til að vernda unglinga gegn
vá eiturlyfja, ofbeldis, glæpa og
árásargirni.
Fræðsla og upplýsingar eru
farsælustu meðulin gegn for-
dómum og tortryggni. Íslend-
ingar flestir vel sigldir, frjáls-
lyndir og víðsýnir en þó eru
nokkrir þeirra sem óttast hið
óþekkta og vilja reisa varnar-
múra umhverfis eigin heims-
mynd. En múrar eru líka reist-
ir til að halda öðrum úti og það
kann ekki góðri lukku að stýra.
Við viljum byggja brýr, ekki
múra, og hlökkum til gefandi
samskipta við alla landsmenn.
Múslimar
Karim
Askari
talsmaður
Menningarseturs
múslima
Múslímar búa að miklum, merkum og
göfugum menningararfi, ekki síður en
heiðnir menn og kristnir.
AF NETINU
Hvað ef gögnin væru frá Rússlandi eða Kína?
Merkileg niðurstaða hjá njósnara Bandaríkjamanna að
setja á blað að Ólafur Ragnar Grímsson sé óútreiknan-
legur. Vonandi, spæjarans vegna, að hann hafi ekki varið
löngum tíma í þessar rannsóknir. Niðurstaðan er öllum
ljós, allavega öllum sem til þekkja.
Ólafur Ragnar er sannanlega óútreiknanlegur. Og eflaust
á hann oft eftir að koma á óvart þannig að fælar banda-
rísku alheimslöggunnar breytast ekki hvað þetta varðar.
Svo er hitt, mikil ósköp eru þessi WLskjöl niðrandi fyrir þá fjölmörgu
sem þáðu mat og drykk til að setjast niður með þessu furðufólki. Og
hver væri umræðan væri svona gögn opinber úr rússneska eða kín-
verska sendiráðinu?
Midjan.is
Sigurjón M. Egilsson
Steingrímur eins og aumur lagatæknir
Fjármálaráðherra segir, að á óvart komi gagnrýni Ríkis-
endurskoðunar á kaup ríkisins á hlutafé í Sjóvá. Það er
rangt. Hún kemur bara Steingrími á óvart. Hann segir
almenna heimild vera í lögum og fjáraukalögum 2008
og 2009 til slíkra verka. Það er rangt, Steingrímur getur
ekki sukkað tólf milljörðum framhjá fjárlögum. Enn segir
hann tvímælalaust rétt að tryggja mikilvæga hagsmuni.
Það er líka rangt hjá honum. Verknaðurinn er ekki tvímælalaus, heldur
í hæsta máta umdeilanlegur. Þannig er hann eins og aumur laga-
tæknir. Býr til orðaleppa til að fela brennslu sína á tólf milljörðum af
skattfé.
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Tilboð kr.: 24.900
Verðlistaverð kr.: 33.200
Vinsælasta ryksugan frá Miele
Miele Tango Plus
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar, með
stillanlegu röri og úrvali fylgihluta. Þær hafa hlotið
hæstu einkunn hjá neytendasamtökum í Þýskalandi.
AFSLÁTTUR
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is