Fréttablaðið - 11.12.2010, Síða 16
16 11. desember 2010 LAUGARDAGUR
Lee C. Buchheit, formaður
Icesave-nefndar Íslands,
hefur eytt 14 klukkutím-
um heima hjá sér síðasta
mánuðinn. Hann segir
betri samning í Icesave-
deilunni ekki fást nema til
þess kæmi að skattgreið-
endur í Bretlandi og Hol-
landi niðurgreiddu kostnað
Íslendinga. Sú niðurstaða
væri ekki líkleg á niður-
skurðartímum. Því myndi
dómstólaleið blasa við, með
hættunni á að málið myndi
tapast þar.
Lee C. Buchheit hafði þegar auga
með Íslandi áður en hann tók að
sér það verkefni að fara fyrir
samninganefnd Íslands í Icesave-
deilunni. Hann kom hingað til
lands í desemberbyrjun 2008 í boði
stjórnvalda sem vildu ræða stöðu
málsins við hann. „Ævistarf mitt
snýst um skuldamál ríkja. Ég hef á
þeim djúpan fræðilegan áhuga og
það er ákaflega gagnlegt að vita
hvernig tekist hefur verið á við
ólíkar aðstæður í þeim efnum,“
segir hann og kveðst því þegar í
kjölfar hrunsins haft áhuga á því
að koma að málefnum Íslands.
Nafn Buchheits bar svo nokkr-
um sinnum á góma árið 2009, svo
sem þegar hann kom fyrir fjár-
laganefnd í ágúst það ár. Það var
hins vegar ekki fyrr en í febrúar á
þessu ári sem tekin var ákvörðun
um að hann færi fyrir nýrri samn-
inganefnd í Icesave-deilunni.
Buchheit er meðeigandi á lög-
fræðistofunni Cleary Gottlieb sem
sérhæfir sig í að vinna fyrir sjálf-
stæð ríki.
Icesave var öðruvísi verkefni
„Við vinnum fyrir um 30 lönd,
meðal annars í tengslum við
úrvinnslu skulda, hvers kyns
starfsemi, einkavæðingar og þess
háttar hluti.“ segir hann og kveðst
fyrst hafa komið að vinnu við
skuldaúrlausn ríkja þegar Mexíkó
gat ekki staðið við skuldbindingar
sínar árið 1982. „Það var byrjun-
in á alþjóðlegri skuldakreppu sem
varði í tíu til tólf ár. En þegar þetta
var allt að byrja var ég við störf á
Lundúnaskrifstofu fyrirtækisins
og fékkst við fjölbanka-lánasamn-
inga.“ Buchheit segist hins vegar
strax hafa orðið hugfanginn af
verkefninu.
„Endurskipulagning ríkisskulda
er blanda lögfræði og þess sjónar-
spils sem fylgir stjórnmálum. Og
ef satt skal segja þá getur lögfræð-
in verið óhemju leiðigjörn,“ bætir
hann glettinn við.
Í Mexíkó segist Buchheit hafa
gripið bakteríuna og hefur sér-
hæft sig í skuldamálum þjóðríkja
æ síðan. Meðal annarra verkefna
Buchheits má nefna skuldavanda
Rússa árið 1988, en síðustu sex
ár hefur hann starfað við mál-
efni Íraks. „Það er umfangsmesta
skuldaendurskipulagningin. Skuld-
ir Saddam-stjórnarinnar nema 140
milljörðum Bandaríkjadala [16.058
milljörðum króna].“
Verkefnið sem lá fyrir hér segir
Buchheit hins vegar hafa verið
nokkuð annars eðlis. „Verkefnið
snýr ekki að endurskipulagningu
skulda, heldur höfðu Bretar og
Hollendingar lagt fram fjármuni
og það sem við vorum í raun og
veru að gera var að semja um skil-
mála lánsins, ekki endursemja um
lánaskilmála vanskilalána.“
Hvað varðar þá niðurstöðu sem
fengin er með nýju samningunum
í Icesave-deilunni og endanlegan
kostnað ríkisins áréttar Buchheit
að hún sé nokkurri óvissu háð.
Búast við því versta
„Þar hafa nokkrir hlutir áhrif.
Eftir því sem fjármunir fást úr
þrotabúi Landsbankans þá ganga
þeir upp í greiðslur á láninu frá
Bretum og Hollendingum. Niður-
greiddar upphæðir safna ekki vöxt-
um fram í tímann og því er fyrsta
stóra spurningin sú hversu hraðar
endurheimtur verði úr búi Lands-
bankans. Önnur spurning er svo
hvort þær greiðslur verði í sam-
ræmi við það sem skilanefnd bank-
ans býst nú við að þær verði.“ Hann
segir hins vegar trú á því að mat
skilanefndarinnar á endurheimt-
um sé rétt hafa aukist eftir því sem
lengra hefur liðið frá hruni.
„Um leið hefur það gerst að vext-
ir hafa lækkað í heiminum og eins
og niðurstaðan leiðir í ljós, þá endur-
spegla vextirnir í samningnum í
raun og veru kostnað Hollendinga
og Breta af fjármögnun. Við höfum
því, rétt eins og þeir, haft óbeinan
hag af lækkandi vöxtum.“
Krónan getur einnig leikið stórt
hlutverk í því hvernig úr rætist að
mati Buchheits. „Samkvæmt skil-
málunum þarf Ísland að endur-
greiða í sterlingspundum og evrum,
en uppruni greiðslnanna er í krón-
um, að öllum líkindum hjá ríkinu.
Eftir því sem krónan styrkist þá
þarf færri krónur til endurgreiðsl-
unnar,“ segir hann, en viðurkenn-
ir um leið að öndverð gengisþróun
hefði jafnframt áhrif í hina áttina.
„Það er óvissa sem vissulega gerði
alla okkar vinnu erfiðari við samn-
ingana. Nærri liggur að við höfum
þurft að ganga til verks með kart-
esískan efa um hvað komi til með
að gerast. Síðan er gert ráð fyrir
hinu versta um leið og maður vonar
og trúir því að sú verði ekki niður-
staðan. Þess vegna eru allir þess-
ir fyrirvarar í samningnum, svo
sem sjálfkrafa framlenging láns-
ins í allt að 37 ár ef þörf krefur.
Það hefur hins vegar enginn trú á
því að til þess þurfi að koma.“
Milli fyrri samninga um Icesave
og þeirra sem nú liggja fyrir urðu
stjórnarskipti bæði í Bretlandi
og Hollandi. Áhrifin af því segir
Buchheit helst hafa endurspegl-
ast í því að samningaferlið tafðist
á meðan kosningarnar gengu yfir
í löndunum tveimur. „Ég skynj-
aði ekki neinar grundvallarbreyt-
ingar í viðhorfum hvorki Breta né
Hollendinga til þeirra mála sem
við vorum að fást við þótt breyt-
ingar hefðu orðið á ríkisstjórn hjá
þeim,“ segir hann og bendir á að
breytingar í ríkisstjórn landanna
hafi ekki endurspeglast í breyttu
mannahaldi í samninganefndum
þeirra í Icesave-deilunni. „Þetta
voru sömu einstaklingarnir fyrir
kosningar og eftir.“
Voru með spil í erminni
Hvað varðar fyrri samninga um
Icesave segir Buchheit bæði vara-
samt og rangt að velta vöngum
yfir því hvað hafi verið gert rétt
og hvað rangt í þeim. „Þá voru
aðstæður allar aðrar. Hrunið var
nýafstaðið. Ísland átti fáa vini og
lítil fjárráð og þurfti að feta sig í
átt til bata og eðlilegs ástands á
ný. Icesave-deilan fór hátt og var
umdeild,“ segir hann og bendir á að
í fyrsta samningnum um Icesave
hafi verið að finna þætti sem telja
mætti betri en í þeim sem nú ligg-
ur fyrir. „Til dæmis var þar ekki
kveðið á um greiðslu vaxta fyrstu
sjö árin. Vöxtunum var safnað upp
og bætt við heildarfjárhæðina.
Þetta held ég að hafi verið gert af
því að peningarnir voru ekki til.
Núna er sú staða breytt og meira
rými til endurgreiðslna.“
Þessi breytta staða segir Buch-
heit að hafi gefið síðustu samn-
inganefnd forskot sem hinar hafi
ekki haft. „Við vorum með ás uppi
í erminni, sem hinir höfðu ekki, í
því að geta boðið nokkuð sem allir
lánveitendur sjá virði í, nefnilega
reglulega greiðslu vaxta í stað
þess að safna þeim þeim upp í sjö
ár. Slík uppsöfnun hugnast engum
lánveitanda og það gátum við nýtt
okkur.“
Til eru þeir sem telja að aldrei
hefði átt að semja um Icesave,
heldur útkljá málið fyrir dómstól-
um. Buchheit kveðst ekki sérfróð-
ur um Evrópulöggjöf en bendir þó
á hversu mjög lögfræðingar virðist
skipast í fylkingar í vangaveltum
um það mál.
„Í mínum huga voru þetta
aðstæður sem kölluðu á samninga
en ekki dómsmál. Fyrir því eru
nokkrar ástæður. Sú fyrsta er að
dómsmál geta tapast og tap í þessu
máli hefði skelfilegar afleiðing-
ar. Mótaðlinn gæti þá kallað eftir
innheimtu allrar upphæðarinnar í
einu og jafnvel haldið því fram að
endurgreiðslan ætti ekki einungis
að ná til lágmarkstryggingar inn-
stæðna, heldur allra innstæðna.“
Í öðru lagi segir hann hliðartjón
í því falið að hafa Icesave-deiluna
hangandi óleysta yfir höfði þjóðar-
innar.
„Við værum þá með opið sár í
samskiptum þjóðanna þriggja um
lengri tíma. Það er alltaf erfitt að
sýna fram á hversu mikið tjón gæti
hlotist af því, en mín tilfinning er
að það yrði verulegt. Rétt eins og
það er tilfinning mín að samþykki
Alþingi núna gerðan samning þá
fáist af því áþreifanlegur ávinning-
ur fyrir landið, sem núna er erfitt
að sjá fyrir.“ Sem mögulegan ábata
nefnir Buchheit þó áhrif af diplóm-
atískum stuðningi í öðrum verkefn-
um stjórnvalda og mögulega aukn-
ingu í beinni erlendri fjárfestingu.
„Það bíða fjölmargir eftir því að
sjá hvort ekki fáist viðunandi niður-
staða í þessu máli,“ segir hann og
kveðst ekki sjá skynsemina í því að
fara með málið í þessum búningi
og umgjörð fyrir dómstóla.
Dómstólaleiðin ófær
Fari hins vegar svo að Alþingi
hafni nýjum samningi segir Buch-
heit ekki útilokað að hægt verði að
fá Breta og Hollendinga aftur að
samningaborðinu. „En ég mundi þó
ekki telja það líklegt og tel frem-
ur að þá myndi koma til málaferla.
Ástæðan fyrir þeirri skoðun minni
er að vaxtaskilmálar núgildandi
samnings miða við fjármögnunar-
kostnað landanna. Að því gefnu að
sú fullyrðing standist og þau sam-
þykktu enn lægri vexti þá væru
stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi
í raun að biðja skattgreiðendur í
sínum löndum að niðurgreiða lán til
Íslendinga. Þetta eru rök sem við
beittum með öfugum formerkjum
í samningaviðræðunum og bent-
um á að ef vextirnir væru hærri
en nemur fjármögnunarkostnaði
þá væru skattgreiðendur þessara
landa að græða á kostnað Íslend-
inga. Sú niðurstaða væri alveg jafn
óviðunandi.“
Á tímum þar sem ný ríkisstjórn
í Bretlandi þarf að leggja á þegna
sína erfiðar aðhaldsaðgerðir í ríkis-
fjármálum, svo sem með lokun
sjúkrahúsa, skattahækkunum og
hækkandi gjöldum í háskóla telur
Buchheit æði ólíklegt að stjórn-
málamenn þar í landi færu fram
á það við kjósendur sína að niður-
greiða lán til Íslendinga. „En ég er
náttúrlega ekki stjórnmálamaður.
Þetta er bara það sem mér sýn-
ist.“
Vinnan er lífið
Lee C. Buchheit segir hafa verið
afar skemmtilegt að fá að bregða
sér í nýtt hlutverk í starfi sínu
fyrir íslensku ríkisstjórnina. „Ég
var bara ráðinn sem samninga-
maður, ekki sem lögfræðingur og
upplífgandi að fá að vera í aðstæð-
um þar sem einhver segir „köll-
um á lögfræðingana, þeir þurfa að
vinna í alla nótt við nýtt uppkast að
samningi“ og ég sé ekki sæng mína
upp reidda.“ Hann segist ráðinn til
starfans á hefðbundnum taxta lög-
fræðistofu sinnar, en þó sé óvana-
legt í þeirri útseldu vinnu að hann
sé bara einn. „Venjulega fáum við
verkefni þar sem teymi lögfræð-
inga mætir frá okkur og mér finnst
alveg frábært að vera í fyrsta sinn
á ferlinum laus við að vera í þeim
búningi.“
Núna segir Buchheit önnur verk-
efni taka við. „Ég held í austur, þar
krauma vandræði,“ segir hann
glettinn og bætir því við að síðasta
mánuðinn hafi hann ekki verið
nema 14 klukkustundir heima hjá
sér í New York. „Drottinn góður
hefur ekki leyft þá stund þar sem
úrlausnarmenn skuldavanda þjóða
geta setið auðum höndum. Þessa
dagana útdeilir hann af góðvild
sinni ótöldum verkefnum,“ segir
Buchheit, sem býr einn og kveðst
ekki mundu vilja haga lífi sínu á
annan hátt. „Ég gerði skuldamál
þjóða að ævistarfi og ég ann því
heitt, enda eru engin verkefni sam-
bærileg. Maður er stöðugt á stöð-
um þar sem umrót og umbreyt-
ingar ráða ríkjum og það er bara
miklu skemmtilegra en vera þar
sem ládeyðan liggur yfir.“
FRÉTTAVIÐTAL: Lee C. Buchheit, formaður samninganefndar Íslands í Icesave-deilunni við Breta og Hollendinga
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
LEE C. BUCHHEIT Formaður íslensku samninganefndarinnar í Icesave-deilunni við Breta og Hollendinga segist hafa helgað líf sitt
vinnunni. Hann segir raunar mestu furðu hversu vel hann viðhaldi móðurmálinu miðað við langdvalir hans í ríkjum þar sem ekki
er töluð enska. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hefur einlægan og brennandi áhuga á
skuldamálum þjóðríkja
Lee C. Buchheit er bandarískur meðeigandi í lagaskrifstofu sem er með höfuð-
stöðvar í New York í Bandaríkjunum en starfsemi víða um heim. Stofan heitir
Cleary Gottlieb Steen & Hamilton LLP. Hann hefur ritað tvær bækur um alþjóða-
lög og fengið birtar yfir fjörutíu greinar um lögfræði, að því er fram kemur á vef
lögfræðistofu hans. Hann hefur auk starfa sinna kennt lögfræði við lagadeildir
sumra af virtustu háskólum heims.
Buchheit hefur hlotið ýmsa viðurkenningu fyrir störf sín, síðast á þessu ári
þegar hann fékk verðlaun fyrir ævistarf (Lifetime Achievement Award) fyrir fram-
lag sitt á sviði alþjóðafjármála hjá tímaritinu International Financial Law Review.
Buchheit hóf störf hjá lögfræðistofunni árið 1976 og varð meðeigandi 1984.
Hann er með doktorsgráðu í lögfræði frá Pennsylvaníu-háskóla síðan 1975 og
diplóma í alþjóðalögum frá Háskólanum í Cambridge frá 1976.
Buchheit í hnotskurn
Í mínum huga voru þetta aðstæður sem kölluðu á
samninga en ekki dómsmál.
LEE C. BUCHHEIT
FORMAÐUR ICESAVE-NEFNDAR ÍSLANDS