Fréttablaðið - 11.12.2010, Síða 50
50 11. desember 2010 LAUGARDAGUR
muni pólitíska landslagið hafa breyst mjög
næsta vor. Stuðningur við aðild hafi aukist
um 15 til 20 prósent og nær allir í viðskipta-
lífi sjái Brussel og evru sem björgunarhring
Íslands.
Rætt er um jákvæð orð Olli Rehn, stækk-
unarstjóra ESB, um hugsanlega aðild Íslands,
að fjölmiðlar hafi gert meira úr þeim eftir
hrun. Fyrir Sjálfstæðisflokk og VG þýði þetta
„grundvallarbreytingu í rétttrúnaði“ en stað-
festi stefnu Samfylkingar. Í Sjálfstæðisflokki,
sem hafi nánast verið einráður um utanrík-
isstefnu landsins síðan 1944, hafi tveir ráð-
herrar lýst því yfir að flokkurinn ætti að
endurskoða stefnu sína. Jafnvel Einar K.
Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hafi sagt
að skoða ætti alla möguleika. Þetta endur-
spegli bakgrunn flokksins í viðskiptalífinu.
Minnst er á að Davíð Oddsson hafi ýtt undir
ótta við klofning með því að ræða endur komu
í pólitík. Sendiherrann kveður Samfylkingu
best undirbúna fyrir umræðuna og fari ekki
leynt með það. Þá segir að (Katrín Jakobs-
dóttir) varaformaður VG hafi sagt sendiráð-
inu vorið 2008 að margir flokksmenn væru
að komast á þá skoðun að ESB-aðild væri eini
raunhæfi kosturinn. Steingrímur J. Sigfússon
gæti því verið að einangrast, jafnvel „lang-
tíma hugmyndafræðilegur bandamaður“
hans, Ögmundur Jónasson, hafi rætt þann
möguleika að setja aðild á dagskrá, þótt sjálf-
ur sé hann aðildarandstæðingur. Seinna er
það orðað svo að varaformaður VG hafi sagt
að VG myndi líklega endurmeta ESB-stefn-
una og að hún hefði skilning á því.
Um Framsókn segir frá stefnu ágreiningi
síðustu formanna, Halldórs og Guðna Ágústs-
sonar, og hvernig sá síðarnefndi hafi þurft
að lúta í lægra haldi fyrir yngri flokks-
mönnum sem kröfðust þess meðal ann-
ars að ESB-aðild yrði sett á dagskrá.
Með afsögn hans sé helsta hindrun
Framsóknar í þessu máli úr vegi.
Evrópusinnuð ESB-Framsókn
gæti orðið eftirsóknarverðari
samstarfsaðili í ríkisstjórn fyrir
Samfylkinguna.
Í lokin segir sendiherra að
þrátt fyrir allt þetta sé stjórn
yfir miðunum séð sem nauð-
synlegur hluti sjálfstæðisbar-
áttu Íslands og efnahagslegu
fullveldi. Sjálfstæðisflokk-
ur og Framsókn virðist
hafa áttað sig á því að það
að fórna þessari helgu kýr,
sem og landbúnaði, sé illn-
auðsynlegt til að ná jafn-
vægi í efnahagi. „Gamla
klíkan“ í VG gæti orðið eini
and-ESB flokkurinn og náð til
sín nýjum stuðningsmönnum
aðildarandstæðinga. Sendi-
herrann telur þó líklegra að
nýr miðju- eða mið-hægri flokk-
ur verði til, andsnúinn aðild.
2009
JANÚAR Sendiherrann ræðir um
glímu flokkanna við ESB-áhuga Íslend-
inga í ljósi efnahagshrunsins. Þetta sé
orðið mikilvægasta mál íslenskra stjórn-
mála. Framsókn hafi sett aðild á dagskrá að
uppfylltum ýmsum skilyrðum og líklegt sé að
Sjálfstæðisflokkur geri það einnig. VG verði
líklega áfram andsnúin aðild en spurning sé
með Frjálslynda flokkinn, sem sé við það
að þurrkast út. Nýgræðingurinn Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson hafi tekið við Fram-
sókn. Óvíst sé hvað hugsanleg stefnubreyting
flokksins hefði í för með sér, en nýir leiðtogar
muni ef til vill endurlífga flokkinn og auka
kjörþokka hans.
Mögulegt sé að á fundi Sjálfstæðis-
flokks verði aðildarviðræður samþykktar
og flokkurinn haldi áfram í ríkisstjórn, en
ESB-andstæðingar hverfi til VG. Einnig gæti
flokkur inn hafnað aðildarviðræðum og ekki
klofnað. Þá myndi hann missa mikið fylgi til
Samfylkingar eða Framsóknar. Hugsanlegt
sé því að ESB-aðildarflokkarnir verði þrír í
stað eins fyrir næstu kosningar. Sendiherr-
ann lýsir svo í nokkru máli hvernig ferill
umsóknar Sjálfstæðisflokks og Samfylking-
ar gæti orðið, með stjórnarskrárbreyting-
um og þess háttar. Á þingi gæti Framsókn
svo stutt flokkana og viðræðum verið lokið
fyrir árslok, en tekið er fram að tímasetn-
ingarnar séu mjög háðar óvissuþáttum, svo
sem Icesave og stækkunartregðu ESB í ljósi
skuldastöðu Íslands. Seinna segir frá brott-
hvarfi Geirs Haarde, sem geti gefið Sjálf-
stæðisflokki tækifæri til að sameinast um
ESB, takast á við raunveruleikann, eins og
sumir orði það, og samþykkja Evrópusinnaða
stefnu. Í þriðja skeytinu segir frá ákvörðun
Einars K. Guðfinnssonar um að heimila hval-
veiðar, en til að komast í ESB þurfi Íslend-
ingar að hætta þeim. Á öðrum stað er Martin
Eyjólfsson úr utanríkisráðuneyti sagður hafa
sagt að umbeðnir 6,7 prósenta vextir Breta
á Icesave gætu þýtt að Ísland næði ekki
Maastricht-skilyrðunum og gæti því ekki
tekið upp evru.
FEBRÚAR Sendiherrann segir frá lögum
um erlenda fjárfestingu á Íslandi. Að þau
séu, með undantekningum, í samræmi við
lög ESB og að flestar slíkar reglur ESB taki
gildi á Íslandi. Í gegnum EES hafi Ísland
aðgang að rannsóknar- og þróunarsjóðum
ESB. Rætt er um stöðu kvikmyndafyrirtækja
og fasteignakaup í ljósi EES. Að íslensk lög
um viðskipti séu æ meir byggð á lögum ESB.
Frjálsri för launafólks hafi verið tekið vel af
fyrirtækjum sem lausn á skorti á vinnuafli.
Í öðru skeyti um hvalveiðar segir sendiherr-
ann að Árni Finnsson úr Náttúruverndar-
samtökunum telji að nálgast skuli fleiri ríki
ESB og félaga í Alþjóðahvalveiðiráðinu um að
skrifa undir yfirlýsingu gegn hvalveiðum.
MARS Í skýrslu um mansal segir sendiherr-
ann að ferðaleyfi borgara í EES ríkjum sé
talið nýtt til að flytja vændis konur til lands-
ins. Að yfirmenn lögreglu hafi sagt sendiráð-
inu að þeir hafi takmarkaðar heimildir til að
grennslast fyrir um för fólks nema það sé
grunað um vímuefnasmygl. Í sama mánuði
segir sendiherrann að prófkjör flokkanna
hafi ekki skilað mikilli endurnýjun
og að Sjálfstæðisflokkur
sé líklegur til að
viðhalda „Atl-
antshafs-
sýn“
sinni,
leggja
mesta áherslu
á samskipti við BNA.
Þó séu bæði Bjarni Bene-
diktsson og Þorgerður Katrín varaformað-
ur miklir stuðningsmenn aðildar að ESB. Í
skýrslu um Framsókn rifjar sendiherrann
upp orð Halldórs Ásgrímssonar um að land-
ið verði gengið í ESB fyrir 2015 og sagt að
allir formenn flokksins eftir hans daga, utan
Guðna Ágústsson, hafi verið hlynntir aðild.
Stefnu Sigmundar Davíðs virðist frekar hægt
að lýsa sem „opinni“ fyrir aðild en sem aðild-
arsinnaðri. Hann sé óskrifað blað.
APRÍL Sendiherrann segir frá því að aðildar-
andstæðingurinn Steingrímur J. Sigfússon
hafi sagt sér að hann telji ólíklegt að Ísland
sæki um aðild að ESB í nánustu framtíð og
að burtséð frá hver verði sigurvegari kosn-
inganna verði Alþingi líklega að stórum hluta
andsnúið aðild. Að Sjálfstæðismenn hafi líkt
eftir stefnu VG og séu ekki aðildarsinnar,
en muni leyfa almenningi að ákveða þetta í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Seinna í mánuðinum
segir sendiherrann að það að Samfylkingin
hafi ekki útilokað samstarf við aðra flokka en
VG sé talinn liður í að neyða VG að ESB-borð-
inu. Afar líklegt sé að áframhaldandi ríkis-
stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur muni tækla
málið fyrr en síðar.
Að loknum kosningum segir sendiherrann
að vegna óvæntrar velgengni ESB-sinnaðra
flokka geti Samfylking slitið ríkisstjórnar-
samstarfinu í þágu „ESB-stjórnar“. VG verði
líklega neytt til Brussel. Velgengni Fram-
sóknar megi kannski rekja til jákvæðrar
ESB-afstöðu, en flokkurinn og Borgarahreyf-
ingin líti á aðild sem lausn á efnahagsvandan-
um. Þessir tveir hafi því ef til vill hagnast á
andstöðu VG í kosningunum. ESB-meirihluti
hafi náðst á þingi og ný ríkisstjórn þurfi að
endurspegla þetta. Steingrímur J. hafi reynt
að „spinna“ útkomu kosninganna og meðal
annars gengið svo langt að segja að einung-
is elítan vilji ganga í ESB. Hann og Jóhanna
Sigurðardóttir hafi viðurkennt að þetta yrði
erfiðasta mál stjórnarmyndunar viðræðna.
Löngun VG til að stofna fyrstu meirihluta
vinstristjórnina þýði mikla pressu um að láta
undan Samfylkingu í þessum efnum. Innan-
búðarmenn í VG hafi viðurkennt að utanrík-
isstefna VG risti ekki djúpt.
MAÍ Klopfenstein reifar að ný ríkisstjórn
hafi ákveðið að leggja aðildarumsókn fyrir
Alþingi en að ESB slepptu segi stefna hennar
frekar lítið um utanríkismál. Það sem komi
mest á óvart sé að Samfylking virðist hafa
þurft að hörfa úr því sem virtist mjög sterk
ESB-staða, því ákveðið hafi verið að þing-
menn flokkanna mættu kjósa að vild um
ESB. Jóhanna Sigurðardóttir voni að sænsk
formennska ESB taki umsókninni
vel. Leiðtogar stjórnar-
andstöðu hafi lýst
áhyggjum af
þ v í a ð
Sam-
fylk-
ingin fái
frítt spil til að
semja við ESB. Tap-
ist kosningin um ESB verði
það mikill ósigur fyrir Samfylkingu en
samþykkt umsókn gæfi henni góða stöðu til
að leiða Ísland til Brussel og aukið vogarafl
gagnvart VG.
JÚNÍ Klopfenstein kveður að Steingrímur
J. Sigfússon hafi sagt sendiráðinu að Ísland
muni standa við skuldbindingar sínar og end-
urgreiða Icesave-sparifjáreigendum eins og
ESB-reglur segi til um. Að Steingrímur telji
að aðildarviðræður verði naumlega sam-
þykktar á Alþingi, enda mjólki stjórnarand-
stæðingar þetta mál sér í hag. Steingrímur
telji að Samfylking og fleiri líti á ESB-aðild
sem töfralausn, en hann sjálfur telji að kostir
aðildar komi ekki í ljós fyrr en eftir áratug í
fyrsta lagi. Seinna greinir Klopfenstein frá
því að búið sé að leysa Icesave-deiluna og þar
með losna við stóran ásteytingarstein í sam-
skiptum við aðildarríki ESB. Þetta eigi meðal
annars að þýða að aðildarumsókn verði betur
tekið en ella í Brussel. Það að neita að borga
hafi ekki verið raunverulegur valkostur fyrir
litla eyþjóð með Evrópumetnað.
JÚLÍ Klopfenstein segir að ríkisstjórnin sé
upptekin af endurreisn efnahagsins og ESB-
umsókn og hafi ekki mikinn tíma aflögu til
að fjalla um hvalveiðarnar (sem BNA vill
stöðva). Hann segir að umsókn hafi verið sam-
þykkt á Alþingi eftir átök,
með stærri meirihluta en
við var búist. Hann grein-
ir frá á stundum „kaótísku“
ferlinu á þingi, svo sem
gagntillögu Framsóknar og
Sjálfstæðis flokks. Sumir þingmenn hafi
líkt ESB við Sovétríkin og Borgarahreyf-
ingin hafi reynt að manga með atkvæði sín.
Útkoman hafi verið stórsigur fyrir Jóhönnu
Sigurðar dóttur og Samfylkingu en skoðana-
kannanir sýni að þjóðin sé ekki endilega jafn
hrifin, því samkvæmt þeim yrði aðildarsamn-
ingi hafnað. Staða þjóðarbúskapar eftir tvö
til þrjú ár muni greinilega hafa mikil áhrif á
lokaniðurstöðuna.
Seinna er talað um að aðildarferlið taki lík-
lega minna en þrjú ár þar sem Ísland hafi
þegar tekið yfir mikið af lögum ESB. Nú séu
um 40 prósent annars vegar með og hins vegar
á móti aðild en fimmtungur óákveðinn. Félag-
ar úr „Evrópuhreyfingunni“ hafi sagt sendi-
ráðinu að í þeirra hópi væru helst menntaðir
fagmenn með tekjur yfir meðallagi. Segir að
ungt fólk, sem allajafna hafi stutt aðild, virð-
ist vera að færast á öndverða skoðun. Þetta
valdi Evrópusinnum miklum vonbrigðum og
undrun og telji þeir að ef til vill beiti aðildar-
andstæðingar áhrifaríkari tækni. Auðveldara
sé að sjóða boðskap aðildarandstæðinga niður
í stutt hnitmiðuð skilaboð. Evrópusinnar ætli
að breyta um taktík og gera unga fólkið að
helsta markhópi sínum. Einnig telji þeir, þrátt
fyrir yfirlýsingar stjórnmálamanna, að tengsl
séu milli Icesave og aðildarferlisins.
Sendiráðið ræddi einnig við ónefndan tals-
mann Heimssýnar, sem mun hafa sagt að
helstu gallar hugsanlegrar aðildar væru glat-
að fullveldi og sjálfstæði. Að ESB myndi lík-
lega afnema 200 mílna efnahagslögsögu og
leyfa öðrum ríkjum að veiða í henni. Einn-
ig að aðild þýði dauðadóm yfir landbún-
aði. Þessi talsmaður hafi talið að nið-
urstaða þjóðaratkvæðagreiðslu yrði
eins og hún var í Noregi, þar sem
aðild að ESB var felld, og að við-
ræður yrðu hægar og almenning-
ur loks þreyttur á ESB. Klopfen-
stein segir baráttuna um ESB
rétt að hefjast. Síðar segir hann
að VG hafi glatað miklum trú-
verðugleika vegna umsóknar-
innar og hefur eftir breska
sendiherranum að Icesave og
ESB-umsókn tengist ekki.
SEPTEMBER Sendiráðs-
starfsmaðurinn Watson
hefur eftir Össuri Skarp-
héðinssyni utanríkisráð-
herra að hann telji að ESB
hafi með ráðum gert 16. nóv-
ember að skilafresti Íslands
til að svara fyrirspurnum
ESB vegna aðildarferlisins.
Þetta hafi verið gert svo ekki
væri hægt að taka fyrir mögu-
leika Íslands á fundi leiðtogaráðs
ESB í desember. Tafirnar dragi
úr þeirri ásýnd að Ísland komist
á hraðferð inn, á kostnað annarra
umsóknarríkja. Seinna á Össur að
hafa sagt að framtíð Íslands, erlend
lán og ESB-innganga séu háð því að vel
takist að ljúka Icesave.
NÓVEMBER Watson greinir frá því að Bjarni
Benediktsson segi sendiráðinu frá bréfi sem
hann hafi sent Þjóðaröryggisráði BNA. Hann
vilji fá fund í Hvíta húsinu og stuðla að aukn-
um samskiptum ríkjanna. Brottför hersins
hafi ýtt undir þá skoðun almennings að sam-
bandi BNA og Íslands fari hrakandi. Umsókn
um aðild að ESB ýti enn undir þetta. Bjarni
hafi sagt að engin löggjöf ESB skyldi landið
til að taka á sig skuldbindingar vegna Icesave.
Watson segir að flokkur Bjarna sé eindreg-
inn í andstöðu sinni við ESB og að Icesave-
nálgun Bjarna virðist pólitísk frekar en efna-
hagsleg.
DESEMBER Watson segir að (Ellisif) Tinna
Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar,
hafi sagt sendiráðinu að hún efist um að stofn-
unin verði leyst upp á ábyrgan hátt. Ákvörð-
unin sé einungis tekin til að sefa VG. Þetta
séu verðlaunin fyrir stuðning við umdeild mál
eins og ESB-aðild.
2010
JANÚAR Sendiráðsstarfsmaðurinn Eagen
segir að einn helsti sérfræðingur Íslands
um Evrópuför landsins, Baldur Þórhallsson,
telji næsta víst að Bretland og Holland muni
hindra viðleitni landsins til að ganga í ESB
nema gengið verði frá Icesave. Utanríkis-
ráðuneytið haldi öðru fram og leggi áherslu
á að ESB og Icesave séu ekki og eigi ekki að
vera tengd mál. Eagen segir í lokin að í ljósi
höfnunar forsetans á Icesve séu efasemdir
um lífvænleika stjórnarinnar, aðildarum-
sóknina og um endurreisn efnahagsins, rétt-
mætar.
FRAMHALD AF SÍÐU 48