Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1891, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.11.1891, Blaðsíða 6
—134— gangrinn bjá þessum mönnum er svona: það er kennt af kirkjunni í nafni Jesú Krists, aS maðr verði at> trúa á hann til þess að geta orðiS sáluhólpinn. Án trúar á hann geti enginn sáluhjálpina öðlazt. En nú trúa ekki allir á hann. Nú er þvert á móti enn eftir nærri því 19 aldir frá því Jesús Kristr kom í heiminn miklu meira en helm- ingrinn af hinu núlifanda mannkyni hér á jörðinni algjör- lega án trúar á hann, algjörlega fyrir utan hina kristnu kirkju. Og af þeiin, sem í orði lcveðnu standa í kirkjunni og tald'r eru í hópi kristins fólks, eru vitanlega ákaflega margir, sem að eins eru kristnir að nafninu, standa þar vafalaust kristindómslausir í hjartanu og lífinu. Svo það getr þá ekki verið nema tiltölulega mjög lítið brot af mannkyninu, sem samkvæmt kristindómsins kenning, eins og hún birtist í nýja testamentinu og er kennd af kirkj- unni, á að geta orðið sáluhólpið. Allr þorri mannkynsins hlýtr eftir þeirri kenning aö glatast. Og er ekki það, spyrja þeir svo, hrópleg og hræðileg kenning ? Er ekki óhœfa, að halda slíku fram eins og guðlegum sannleika ? Sýnir það sig ekki, þegar farið er að rannsaka þessa kenn- ing, að hún getr ómögulega staðizt ? Getr það samrýmzt við guðs kærleik, að láta að eins lítið brot af mannkyn- inu verða sáluhólpið, en hitt allt glatast ? Getr það sam- rýmzt við heilbrigða skynsemi, að trúa á þann guð, sem skapar svo og svo margar mannsálir og lætr þær svo glat- ast ? Er ekki þetta nœgilegt til þess að gjöra kristindóm nýja testamentisins og kirkjunnar algjörlega rœkan burt úr mannlegu félagi ? Og svo fara þeir þá líka að gjöra það litla, sem þeir geta, til þess að reka kristindóminn burt. Og með því að gjöra það þykjast þeir gjöra guði og ná- ungum sínum þægt vcrk, mesta þarfaverkið, sem nokkur geti unnið. — Hverju c:guin nú vér, sem höldum ] ví föstu, að sáluhjálparlærdómr Jesú Krists, eins og kirkjan vor hefir kennt oss hann og eins og hann liggr fyrir öll- um heiminum í nýja testamentinu, sé eilífr sannleikr, — hverju eigum vér nú að svara til a"s þessa ? Hvernig eigum vér að mœta þessari guðlastandi röksemdafrerslu van trúarinnar ? Hvernig eigum vér að verjast svona löguðum

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.