Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1891, Qupperneq 22

Sameiningin - 01.11.1891, Qupperneq 22
—150— að eins síðustu orðin, sem hann (Markús) tilfœrir. Ef maðr má eklci segja, að þér farið hér vísvitandi með úsannindi, þá hlýtr maðr að segja, að þetta sé skilningsleysi yðar að kenna. Ingersoll: Lúkas segir oss, að síðustu orðin, sem Kristr hafi talað, hafi — að blessan nokkurri undantekinni — ver- jð: „Sjáið, eg sendi fyrirheit föður míns yfir yðr“ o. s. frv. Svar: Lúkas segir ekkert í þá átt, og það er örðugt að trúa því, að þér hafið ekki vitað, að þér höfðuð Lúkas fyrir rangri sok, þegar þér sögðuð þetta. þér ldjótið að hafa takmarkalausa trú á trúgirni aldar þessarar og á botnlausa fávizku þess mannílokks, sem þér skjútið máli yöar til, þeg- ar þér slengið öðru eins út. það er alls ekki að furða, þó að miklir og lærðir guðfrceðingar sé ófúsir á að eiga orðastað við yðr. þögn þeirra er öllum með viti auðskilj- anleg. það er ekki skylda þeii-ra og það á elcki við fyrir þá, að snúa sér við til þess að svara hverjum guðlastanda glamrara, sem fyrir peninga hleypir tungu sinni á stað gegn kristindóminum og læzt v.era svo og svo rnikill spek- ingr. þeir skorast undau að eiga við yðr orðastað af söniu ástneðu og aðrir eins lögfrœðingar og Marshall, Taney eða Evaits myndi skorast undan að fara að rœða um eitthvað í almennum lögum eða Itómarétti við ólærðan en uppbelgd- an skottu-lögfrœðing. Ingersoll: Síðustu orðin samkvæmt Jóhannesar guðspjall, voru: „þegar Pétr sá þennan, segir hann við Jesúm: Herrai hvað verðr um þennan?“ Svar: það er óþarfi að segja lesaranum, eftir það sem nú er sýnt af ósannindum þeim, er þér hafið borið á hina guðspjallamennina, að staðhœfing yðar um ]?að, sem Jóhann- es segi, er með öliu ósönn og að fyrir henni er ekki minnsti flugufótr. þér farið alveg með álit yðar með þessu lagi. Ingersoll: Frásögn af uppstigningunni er líka gefin í Postulanna gjörningum, og síðus'u orð Krists sainkvæmt þeim innblásna votti eru: „En þér skuluð öðlast kraft hei- lags anda“ o. s. frv.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.