Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1909, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.09.1909, Qupperneq 15
207 Ætli þeim auðnist að sjá hættuna og snúa til baka áðr en það er um seinan? Eða liggr fyrir þeim að lenda útí efasemda og van- trúarmyrkr Extremistanna ? Hvora leiðina ætla þeir að velja? Eftir hr. Gunnar B. Björnson. Engan veginn býst eg við að geta með ritgjörð þess- arri bœtt neinum nýjum röksemdum, sem um munar, við þær hinar mörgu deilugreinir, er birzt hafa frá upphafi ófriðar þess, sem komst á sitt hæsta stig í viðreign meira hlutans við minna hlutann á síðasta kirkjuþingi. Það er ekki í því skyni, að eg hér legg skoðanir mínar fram fyrir almenning; heldr stafar það af því, að leiðtogi minna hlutans hefir skorað á leikmenn kirkjufélagsins að koma fram og taka þátt í deilunni, sem hann hefir hleypt á stað. Og af því að eg tel mig einn í hópi leik- manna liefi eg' afráðið að taka til máls í eitt skifti og verða þannig við áskoraninni. Það er vandi vel boðnu að neita. Hins vegar skal eg taka það skýrt fram, að eg ætlast ekki til, að þetta sé svo skilið sem eg sé liér að ganga fra.m á leikvöll. Eg sœkist alls ekki eftir því að vinna mér frægð í orðadeilu. Eg mun skorast undan því að standa uppí blaðastælu um þetta mál. Þesskon- ar stælur eru til lítils gagns. Auk þess eru þeir menn næsta fáir, sem svo auðugir eru að hugmyndum eða þekking á nokkru einu efni, að um það sé fœrir að vera stöðugt um það að tala svo, að vert sé á þá að hlusta. En ])ótt lítið sé unnið við blaðastælur, getr það þó verið veí, að uppi sé lialdið stillilegum umrœðum, sem margir taka þátt í, þótt allt öðru máli sé að gegna, þá er að eins fáir menn standa uppí löngum og ofsafengnum deilum. Að því er sjálfan mig snertir, þá er deilan öll mér til harms, einkum að því leyti, sem henni stundum hefir legið við að verða persónuleg. Eg vildi, að umrœðurn-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.