Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1909, Síða 29

Sameiningin - 01.09.1909, Síða 29
221 því, svo sem áðr er tekið fram, aftan af tillögu Berg- manns það, sem fer á eftir fjórða greinarmerki. Eins og fyrr er sagt hefði þingið alveg eins vel mátt sam- þykkja tillöguna alla, því með því myndi ekki neitt ineira hafa sagt verið en það, er sagt var. En engin á- stœða var til að nefna nokkurn flokk eða flokksstefnu á nafn. Það hefði verið út í hött að nefna eða tilgreina í’okk þann, er hafði George JPeterson fyrir merkisbera, engu síðr en að telja upp fjölda annarra fiokka. Með því, sem gjört var, var enginn gjörðr rækr. Þetta var og er öllum vitanlegt nema þeim, sem ekki vilja sjá með opnum augum, og hryggir mig það að segja, að svo stendr einmitt á fyrir sumum gáfumönnunum, sem liafa forustu í minna hlutanum. Minni hlutinn hefir tekið það í sig að staðhœfa, að með samþykktinni, sem tekr það fram, að enginn hafi verið gjörðr rækr, hafi hann — minni hlutinn — verið gjörðr rækr. Naumast er unnt að hugsa sér nokkra. staðhœfing, sem meira hafi í sér af ósanngirni og óviti en þessi. Frá fyrst til síðast beitti meiri hlutinn eins mikilli nærgætni og unnt var við minna hlutann og liliðr- aði til við hann aftr og aftr til þess að sýna, að liann vildi, að friðr og eindrœgni héldist. Og þó segir minni lilutinn, þrátt fyrir allt þetta, að honum hafi verið hrundið út, og með þessa fráleitu, ástœðulausu og ó- sönnu staðhœfing fara leiðtogar hans um byggðir og vekja óspektir og óánœgju meðal fólks, vonandi, að þeim með þessu háttalagi takist að sprengja kirkjufélagið upy). Þvílíkt afreksverk! Þvílíkt frægðar-fynrtœki! Enginn vafi leikr á því, að minni lilutinn liefir og Iiafði rétt til úrgöngu. Sé það svo í raun og veru, að beir menn finni, að kenningar lútersku kirkjunnar eru svo lagaðar, að þeir geti ekki lengr innhýst þær, þá verðr það skylda þeirra að ganga út. Hitt aftr á móti nær engri átt, að þeir, sem sagt hafa skilið við kirkjufé- lagið, fari um í söfnuðunum og beiti allri orku sinni til þess að kveikja óánœgju hjá öðrum og í því skvni taki það til bragðs að rangfœra málið á þann hátt, er birzt hefir i blaðagreinum, sem túlka það, er leiðtogum minna

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.