Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1909, Síða 48

Sameiningin - 01.09.1909, Síða 48
240 ® hljóSiö frá spíkonunni, þá getr þú lika gjört þaS, sem eg ^ ætlaöi að fara að mælast til aö þú gjöröir; þú getr beitt ímyndunarafli þínu og tekið þér stööu viö hliðina á mér, eins og væri meðfram veginum, meðan þeir, sem drottinn hefir sér útvalið af ísrael, fara framhjá, fyrstir allra í prósessíunni. Þarna koma þeir — forfeðr þjóöarinnar fyrst; þar næst feðr kynkvíslanna. Eg nærri því heyri bjöllurnar um hálsinn á úlföldum þeirra, og baulið í hjörðum þeirra. Hver er þaö, sem gengr aleinn á milli fólkshópanna? Það er gamall maðr, og þó hef r honum ekki deprazt sýn, og ekki hefir heldr lík- } aniíkraftr hans dvínað. Augliti til auglits þekkti hann drottin. Hann var hermaðr, skáld, mælskumaðr, löggjafi, spámaðr, í öllum skiln'ngi mikill eins og sólin, er hún rennr upp að morgni dags og lætr með fylling geisladýrðar sinnar öll önnur ljós slokkna; aö sínu leyti alveg eins blikna allir helztu og ágætustu keisarar Rómverja, er þeir eru saman bornir við hann. Á eftir honum koma dómararnir. Og síðan konungarnir — son Jesse, hetja í ófriði, sálmaskáld, er söng söngva, sem halda sér um aldr og æfi eins og ölduhljóð sjá^ arins; og sonr hans, sem bar af öllum öðrum konungrm að auölegð og visdómi; eyðimörkina gjörði hann byggilega og þar i auðnunum lét hann bœi rísa upp, en hins vegar gleymdi hann þó ekki Jerúsalem, sem drottinn hafði útvalið sér fyrir aðsetrstað hér á jörðu. Hneigðu þig enn dýpra, sonr minn! Þeir, sem næst koma, eru fyrstir í sinni röð og síðastir. Upp til himins líta þeir eins og heyrði þeir rödd þaðan að ofan og væri að hlusta. Full af sorgum er æfisaga þeirra. Af klæðum þeirra leggr þef, sem af má ráða, að þeir sé gengnir út úr grafarhvolfum og hellum. Hlusta á konu eina á meðal þeirra: ‘Lofsyngið drottni, því hann hefir sig með dásemdum dýrðlegan gjört!’ 39 Beygðu þig fyrir þeim, svo að enni þitt leggi sig í duftið. « „NÝTT KIRKJUBLAD", hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og vristilega menning, 18 arkir á ári, kemr út í Reykjavík undir rit- stjórn hr. Þórhalls Bjarnarsnna , biskups. Kostar hér í álfu 75 ;:t. Fæst í bókaverzlan hr. H. S, Bardal hér í Winnipeg. „EIMREIDIN“, eitt fjölbreyttasta íslenzka timaritiö. Kemr út i Kaupmannahöfn. Ritst. dr. Valtýr Guðmundsson. 3 hefti á ári, hvert 40 ct. Fæst hjá H. S. Bardal í W.peg, Jónasi S. Bergmann á Garðar o. fl. ,.SAMEININGIN“ kemr út mánaðarlega. Hvert númer tvær arkir heilar. Verð einn dollar um áriö. Skrifstofa 118 Emily St., Winnipeg, Canada. — Hr. Jón J. Vopni er féhirðir og ráðsmaðr ,Sam.“—Addr.: Sameining-in, P.O. Box 2767, Winnipeg, Man.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.