Fréttablaðið - 30.04.2011, Qupperneq 4
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR4
BANDARÍKIN, AP Phillip Garrido og
Nancy kona hans hafa játað að
hafa rænt Jaycee Dugard þegar
hún var 11 ára og haldið henni
fanginni í 18 ár.
Dugard slapp úr prísundinni
árið 2009, en þá hafði Garrido
getið henni tvær dætur sem nú
eru 13 og 16 ára. Garrido-hjónin
bíða nú dóms en verða að öllum
líkindum í fangelsi til æviloka.
Þau játuðu, að eigin sögn, til að
hlífa Dugard og dætrum hennar
fyrir því að þurfa að bera vitni
fyrir dómi. - þj
Gangast við brotum:
Níðingahjónin
játuðu sekt sína
IÐNAÐUR Samtök ferðaþjónust-
unnar (SAF) taka undir áskor-
un FÍB, Samtaka atvinnulífsins
og Alþýðusambands Íslands til
stjórnvalda um að lækka álögur
hins opinbera á eldsneyti.
Í tilkynningu SAF kemur fram
að Vegagerðin spái verulegum
samdrætti í umferð fram undan
og sagt ljóst að það muni koma
fram í fækkun ferðamanna úti á
landsbyggðinni.
„Ferðaþjónustan er ein af
mikilvægustu atvinnugreinum
landsins í bæði gjaldeyris- og
atvinnusköpun og getur það því
haft alvarlegar afleiðingar ef
samdráttur í ferðum um landið
verður mikill,“ segir á vef SAF.
- óká
Óttast samdrátt úti á landi:
Taka undir
kröfur um
lægri álögur
LANDBÚNAÐUR Sjúkdómurinn
smitandi fótasár (pododermatit-
is) virðist hafa stungið sér niður í
sex minkabúum hér á landi. Ekki
er um mörg sjúk dýr að ræða en
gripið hefur verið til nauðsyn-
legra aðgerða vegna þessa.
Matvælastofnun segir í frétt
á heimasíðu að sjúkdómurinn
sé þekktur erlendis en lítið sé
vitað um orsakir hans. Sjúkdóms-
einkenni eru bólgnar og sárar
loppur dýranna en lóga verður
öllum dýrum verði sjúkdómsins
vart eða meðhöndla dýrin sér-
staklega.
Dýralæknir loðdýrasjúkdóma
hjá Matvælastofnun hefur sent
öllum minkabændum og starf-
andi dýralæknum upplýsingar
og tillögur að sérstakri aðgerða-
áætlun vegna sjúkdómsins. - shá
Smit þrátt fyrir sóttkví:
Nýr sjúkdómur
á minkabúum
LÖGREGLUMÁL Chigozie Óskar
Anoruo, íslenskur ríkisborgari
sem var eftirlýstur af Inter-
pol, hefur gefið sig fram og hóf
afplánun í fyrradag. Óskar er
vistaður í Hegningarhúsinu, eins
og venjan er um karlkyns fanga í
upphafi afplánunar.
Ástæða þess að hann var eftir-
lýstur er sú að fangelsismálayf-
irvöld höfðu upplýsingar um að
Óskar væri erlendis. Hann var
hins vegar kominn aftur til lands-
ins og gaf sig fram eftir að lýst
var eftir honum. - eh
Eftirlýstur af Interpol:
Óskar hefur
gefið sig fram
BANDARÍKIN Bandaríska geim-
vísindastofnunin ákvað í gær að
fresta fyrirhuguðu geimskoti
geimferjunnar Endeavour vegna
tæknilegra örðugleika. Stefnt er
að því að reyna að nýju á morgun.
Geimferðin verður lokakaflinn
í sögu Endeavour en til stendur
að leggja geimferjum NASA eftir
ferð ferjunnar Atlantis í sumar.
Lögregluyfirvöld í Flórída áttu
von á að 750 þúsund manns
kæmu til að fylgjast með geim-
skotinu, og var Barack Obama
Bandaríkjaforseti meðal þeirra.
- shá
Geimskutlan Endeavour:
Geimskoti var
frestað í gær
ENDEAVOUR BÍÐUR Á SKOTPALLINUM
Tæknilegir örðugleikar fresta geim-
skotinu. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á Akur-
eyri hefur ákært tvo menn fyrir
fíkniefnakaup og -sölu.
Mennirnir eru báðir rúmlega
tvítugir. Öðrum þeirra er gefið að
sök að hafa í lok ágúst eða byrj-
un september 2010 keypt um 25
grömm af maríjúana í Reykjavík
og flutt það til Akureyrar, þar sem
hann seldi hluta þess til einstakl-
inga.
Þá eru mennirnir ákærðir fyrir
að hafa í sameiningu í nóvember-
mánuði 2010 keypt um 150 grömm
af maríjúana af óþekktum einstak-
lingum á Akureyri og selt um 120
grömm af þeim efnum til fólks í
bænum, sem ekki er vitað um deili
á.
Loks eru báðir mennirnir
ákærðir fyrir að hafa í samein-
ingu 1. desember 2010, keypt og
fengið afhent rúmlega 100 grömm
af marijúana og verið búnir að
selja um 20 til 30 grömm af efn-
inu, þegar lögreglan gerði hús-
leit hjá þeim á dvalarstað þeirra
á Akureyri, þann sama dag. Lög-
reglan lagði hald á afganginn,
90,39 grömm af maríjúana og 1,71
grömm af tóbaksblönduðu kanna-
bisefni. - jss
Tveir ungir menn keyptu ítrekað marijúana og seldu Akureyringum:
Ákærðir fyrir fíkniefnasölu
AKUREYRI Aðalathafnasvæði fíkniefna-
salanna var á Akureyri.
GENGIÐ 29.04.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,1875
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
110,60 111,12
184,21 185,11
164,35 165,27
22,036 22,164
21,080 21,204
18,406 18,514
1,3589 1,3669
179,34 180,40
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
STJÓRNSÝSLA Sveitarstjórnarfólk á
Suðurnesjum vill að lagst verði í
frekari úttekt á hagkvæmni þess
að starfsemi Landhelgisgæslunn-
ar verði flutt til Reykjanesbæjar.
Þingmaður Suðurkjördæmis tekur
undir það. Þau telja ýmsa ann-
marka á hagkvæmnismatinu sem
innanríkisráðuneytið lét vinna.
Í ályktun Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum segir að mats-
skýrslan taki ekki á „þeim fram-
tíðarkostnaði er Landhelgisgæslan
mun verða fyrir ef hún er áfram
á þeim stað sem hún er í dag“ og
er vísað í skýrsluna sem segir að
núverandi aðstöðu Gæslunnar
þurfi að bæta til lengri tíma litið.
Hefur sambandið því óskað eftir
því að myndaður verði „samstarfs-
hópur stjórnvalda og sveitarfélaga
á Suðurnesjum til að halda áfram
þessari hagkvæmnisgreiningu
svo allar hliðar málsins liggi ljós-
ar fyrir áður en ákvörðun verður
tekin“.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
þingmaður Suðurkjördæmis, tekur
undir þessa ályktun og segir í sam-
tali við Fréttablaðið að matsskýrsl-
an beri saman ólíka hluti.
„Það sem slær mig í þessu mati
er að þar er verið að bera saman
hvernig Gæslan er rekin núna,
með útkalls- og bakvaktarfyrir-
komulagi, og hins vegar hvernig
hún yrði rekin í Keflavík með auk-
inni og stórefldri starfsemi.“
Ragnheiður bætir því við að
óvissuþættirnir sem skýrslan til-
tekur séu miklir og ekki sé hægt
að taka framtíðarákvörðun byggða
á henni. Þá átelur hún að ekkert sé
minnst á hugsanlega yfirfærslu
verkefna Varnarmálastofnunar til
Landhelgisgæslunnar, en það gæti
breytt niðurstöðu hagkvæmnis-
mats. Hún þvertekur fyrir að kjör-
dæmapot ráði för í afstöðu þing-
manna kjördæmisins.
„Auðvitað horfum við á málið
með hagsmuni skattborgara að
sjónarmiði en við viljum skoða
hlutina ítarlega frá öllum hliðum
því að við teljum að flutningur
Gæslunnar sé til hagsbóta fyrir
skattborgarana til frambúðar.“
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir í samtali við Frétta-
blaðið að hann sé tilbúinn til að
skoða málið áfram.
„Það er sjálfsagt að halda þess-
ari vinnu áfram og horfa þá til
langs tíma. Við munum taka það
til skoðunar.“ Í matinu kemur fram
að til lengri tíma litið sé núverandi
aðstaða ófullnægjandi og úrbóta sé
þörf. Talsmaður Landhelgisgæsl-
unnar segir hins vegar við Frétta-
blaðið að ekki sé hægt að segja til
um hvenær nauðsyn muni krefjast
þess. thorgils@frettabladid.is
Vilja frekari úttekt á
flutningi Gæslunnar
Sveitarstjórnarfólk og þingmaður segja hagkvæmnimat á flutningi Landhelgis-
gæslunnar ekki nógu heildstætt. Vilja að málið verði skoðað frá öllum hliðum.
VILJA FREKARI ÚTTEKT Sveitarstjórnarfólk á Suðurnesjum og þingmenn Suðurkjördæmis vilja frekari úttekt á hagkvæmni
hugsanlegs flutnings Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
19°
19°
14°
22°
19°
13°
13°
21°
20°
20°
20°
31°
17°
22°
17°
10°
Á MORGUN
3-8 m/s.
MÁNUDAGUR
8-13 m/s suðvestast,
annars hægari.
15
12
12
6
6
5
5
7
8
9
4
7
2
3
2
2
9
7
4
6
6
5
7
7
7 12
13
12
12
15
10
7
SUMARIÐ Á
LEIÐINNI? Vor í
lofti víðast hvar um
helgina og jafnvel
sumarveður norð-
austanlands. Hitinn
gæti náð allt að 17
stigum norðaustan
til í björtu veðri
í dag. Vætusamt
vestanlands en þar
léttir til um tíma á
morgun.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður