Fréttablaðið - 30.04.2011, Side 34

Fréttablaðið - 30.04.2011, Side 34
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR34 FJÖLBREYTT FLÓRA MYNDASÖGUBLAÐA M yndasögur og hasarblöð hafa fyrirfundist hér á landi allt frá því að banda- rískir hermenn dvöldu hér á árunum um og eftir seinni heimsstyrjöld og hetjur myndasagnanna hafa verið stór hluti af menningarlegu uppeldi íslenskra barna. Sól þeirra fór hins vegar að rísa verulega þegar Siglufjarðarprent- smiðja hóf útgáfu á blöðum um Tarzan árið 1979, en í rúman áratug þar á eftir sá Sigurjón Sæmundsson prentsmiðjustjóri landanum fyrir íslenskuðum útgáfum af uppátækj- um Tomma og Jenna og ævintýr- um Tarzans auk helstu ofurhetja heims, svo sem og Superman og Spiderman. Blöðin nutu mikilla vinsælda og má segja að þetta framtak hafi verið einstakt, því Sigurjón og fjöl- skylda hans sáu um rekstur útgáf- unnar. Þau dreifðu þúsundum eintaka um allt land og skemmtu yngstu kynslóðinni og kynntu fyrir þessum blöðum sem erfitt hefði verið að nálgast eftir öðrum leiðum. Myndasöguútgáfa Siglufjarðar- prents leið undir lok árið 1992 þegar Sigurjón stóð á áttræðu, en hann hafði rekið Siglufjarðarprent- smiðju alt frá árinu 1935. Sigurjón lést árið 2005. Tarzan markaði upphafið Sonur Sigurjóns, Jón Sæmundur, vann lengi vel með föður sínum og aðstoðaði meðal annars við dreif- ingu. Hann segir í samtali við blaðamann að upphafið að mynda- söguútgáfunni megi rekja til þess að ládeyða hafi verið í atvinnu- lífi á Siglufirði og faðir hans, sem var einnig bæjarstjóri um árabil, hafi verið að velta fyrir sér góðum viðskiptahugmyndum. „Við sáum að Andrésar Andar blöðin höfðu gengið vel og þar gætu verið tækifæri. Svo hafði Siglu- fjarðarprentsmiðja gefið út Tarzan- bækur allt frá því fyrir 1940 og við vorum í góðu sambandi við Edgar Rice Burroughs útgáfuna vestan- hafs, þannig að það lá beinast við að athuga hvort einhver myndrit væru til um Tarzan og hans ævintýri. Svo reyndist vera, þannig að við byrjuðum á blöðunum um Tarzan og Kórak, son Tarzans.“ Jón Sæmundur segir að sögurn- ar um Tarzan hafi strax gengið vel og innan tíðar hafi útgáfa haf- ist á blöðum um Tomma og Jenna sem slógu strax í gegn. Í kjölfarið hafi fleiri titlar bæst við, til dæmis Superman, Batman, Spiderman og Gög&Gokke. Minnisstæðar þýðingar Sigurjón sá sjálfur um allar þýð- ingar á blöðunum og sat langtím- um saman við tölvu þar sem hann prentaði textann á strimla sem hann límdi inn á síðurnar og sendi út til fjölprentunar í Finnlandi eða Ungverjalandi. Þýðingarnar vöktu stundum athygli þar sem frasar sem þar birtust þóttu oft sérkennilegir og tekur Jón Sæmundur undir það. „Það má sjá á blöðunum þegar faðir minn var orðinn þreyttur eftir að hafa setið lengi við tölvuna því að þá fóru þýðingarnar að verða æði skrautlegar. Þá var hann kom- inn á áttræðisaldur en hélt sig við þetta því að hann vildi ekki hætta starfsemi. Hann var hins vegar mjög ern alveg fram undir það allra síðasta. Þegar hann var óþreyttur komu síðan alls konar hugdettur og húmor sem engan hafði órað fyrir. Í einhverri sögunni kom til dæmis við sögu tannlæknir sem hét Wil- son, eða eitthvað í þá áttina, en það fannst föður mínum ekki koma til greina því að tannlæknirinn okkar Tímalausar teiknimyndasögur Siglufjarðarprentsmiðja gaf út þýddar myndasögur í meira en tíu ár. Þorgils Jónsson kynnti sér söguna á bak við útgáfuna á þessum merkilegu blöðum sem glöddu börn og ungmenni um allt land og lifa enn með þjóðinni, tuttugu árum síðar. ENN ÁHUGI Á BLÖÐUNUM Jón Sæmundur Sigurjónsson segir að enn í dag sé áhugi á myndasögublöðunum sem Siglufjarðarprentsmiðja gaf út á sínum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Siglufjarðarprentsmiðja gaf út fjölmörg myndasögublöð á árabilinu 1979 til 1992. Þær gengu mislengi, en vinsælastar voru sögurnar um Tarzan, konung apanna, og æringjana Tomma og Jenna. Íslenskar þýðingar á teiknimyndablöðum mörkuðu tímamót og urðu til þess að kynna íslensk ungmenni fyrir ofurhetjum og myndasögumenningunni. Þó að nær 20 ár séu frá því að blöðin hættu að koma út er enn hægt að finna blöð á bókamörkuðum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.