Fréttablaðið - 30.04.2011, Síða 46

Fréttablaðið - 30.04.2011, Síða 46
Gylfi hvetur alla launamenn til að fjölmenna í kröfugöngu á morgun, 1. maí. „Þarna verður flottasta BMX- hjóla- og hjólabrettafólk landsins mætt til að keppa um bestu ferð- ina, besta trikkið og besta stökkið niður átta tröppur á Ingólfstorg- inu,“ segir Leon S. Kemp, umboðs- aðili DC á Íslandi, einn þeirra sem sjá um framkvæmd keppninnar Jaðarför X-ins sem útvarpsstöð- in X-977 stendur fyrir á morgun á Ingólfstorgi ásamt Talsímafjelagi Valda&Freys, Mountain Dew, og Lex Games Events. Leon hefur ásamt fleirum unnið hörðum höndum að því að smíða rampa og box og segist fast- lega gera ráð fyrir flottri keppni. „Þarna verða tíu til fimmtán keppendur á hjólabretti eldri en fimm- tán ára og átta til tíu fimm- tán ára og yngri,“ segir Leon. „Og tíu til fimm- tán strákar á „freestyle“ BMX-hjólum. Þetta eru okkar langbestu hjólamenn og þeir hafa vakið mikla athygli erlendis, svo það verður spennandi að fylgj- ast með þeim. Auk þess mun Johnny Hazard sýna listir sínar á klifurhjóli og hljómsveitin Endless Dark sér um tónlistina auk Intro- beat.“ Upphaflega stóð til að keppnin færi fram hinn 16. apríl og síðan 30. apríl en í bæði skiptin var henni frestað vegna veðurs. Hvað gerist ef veðrið verður vont á morgun? „Við erum að vona að við fáum gott veður á milli þrjú og sex á morgun,“ segir Leon. „En ef veðr- ið verður alveg ómögulegt verðum við að fresta þessu aftur, býst ég við. Svona er þetta bara á Íslandi.“ Auk keppninnar og sýningarinn- ar verða á svæðinu sýningartjöld þar sem sýnt verður ýmislegt sem tengist þessum íþróttum. Byrjað verður að keppa klukkan þrjú og haldið áfram án hlés til klukkan sex. Leon segir þetta tilvalið tæki- færi fyrir alla fjölskylduna að koma í miðbæjarferð og virða fyrir sér það besta sem erað gerast í jaðar- íþróttum í dag. fridrikab@frettabladid.is Jaðarför á Ingólfstorgi Útvarpsstöðin X-ið blæs til keppni á hjólabrettum og BMX-hjólum á Ingólfstorgi á morgun. Þar verður ýmislegt til skemmtunar auk keppninnar sjálfrar, meðal annars mun Johnny Hazard leika listir sínar. Leon S. Kemp lofar góðri skemmtun á Ingólfstorgi í dag milli klukkan þrjú og sex á Jaðargör X-ins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Keppt verður í tveimur flokkum á hjólabrettum; eldri en fimmtán ára og fimmtán ára og yngri. Landssamtök hjólreiðamanna standa fyrir hjólaferð frá Hlemmi í dag. Lagt verður af stað klukkan 10.15 og hjólað í einn til tvo klukkutíma um borgina. Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir. Sjá nánar á www.lhm.is 10% 25% Fæst í Bónus og Inspired, Keflavíkurflugvelli HOLLUR BITAFISKUR + 80% prótín Fiskneysla er góð fyrir heilabúið NÝ SENDING - Vattjakkar - flottir báðum megin einlitir/köflóttir 25.900,- FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI ÍÞRÓTTIR „Þegar fæðing stráksins nálgaðist var æsispennandi hvort hann fædd- ist á verkalýðsdaginn, en móðir hans var gengin sextán daga fram yfir og ekki hægt að fara fram á meir. Mér fannst fyrsti afmælis- dagur hans mun merkilegri en kon- unglega brúðkaupið og á tímabili stóð til að ég færi í gegnum Kaup- mannahöfn í gær. Þá hefði verið gaman að skjótast í afmæliskaffi til nafna míns, en skyldan kallar og ég vil fyrir enga muni missa af 1. maí,“ segir Gylfi, sem nýtur sín sem for- seti ASÍ þótt umdeildur sé á köflum. „Sem hægri hönd þriggja síðustu forseta vissi ég að starfið yrði seint fallið til vinsælda, en ekki þýðir að taka því aumlega. Alltaf styttir upp á milli og maður fær líka að heyra þegar eitthvað gott hefur áunnist,“ segir Gylfi, sem milli ræðuskrifa í dag ætlar að ganga á Esjuna. „Það er svo góður friður á fjöll- um en því miður eru símafyrirtæk- in búin að troða símasambandi um allar koppagrundir og fokið í flest skjól þegar maður fær símtöl upp á Tungnafellsjökul,“ segir Gylfi og skellir upp úr en bætir við að sér finnist í raun og veru gaman að vera truflaður því það sé gefandi að vinna að málum sem snúist um betri lífskjör alþýðunnar. „Fjallamennskan er því engir flóttatilburðir hjá mér og hvort sem fólk vill spjalla við mig í búð- inni, heita pottinum eða náttúrunni finnst mér það alltaf jafn gefandi og barasta gott mál.“ thordis@frettabladid.is Framhald af forsíðu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.