Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 80

Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 80
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR56 krakkar@frettabladid.is 56 Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is Hlakkarðu til að fara út? Ætlið þið að sitja saman í flugvél- inni? „Já, ég hlakka mikið til að fara út. Þetta verður heljarinn- ar ævintýri fyrir okkur. Og það er algert skilyrði að við sitjum saman í flugvélinni. Við erum svo samrýndir og miklir prakk- arar að við verðum að geta setið saman og hlegið saman.“ Hvernig ætlið þið að fara að því að vera hressir alla ferðina? „Til að halda orku allan tímann verðum við til dæmis að passa upp á mataræðið. Við þurfum að borða vel á morgnana, borða hollan morgunmat og nóg af honum því líklegt er að við munum ekki geta borðað reglu- lega út af æfingum yfir daginn. Svo þurfum við að passa okkur á að borða ekki þunga máltíð á kvöldin svo við séum ferskir. Einnig er mikilvægt að sofa vel þannig að ef við finnum tíma yfir daginn reynum við að leggja okkur.“ Hver er fyndnastur í Vinum Sjonna? „Það er rosalega erf- itt að gera upp á milli Pálma (Sig- urhjartarson- ar) og Matta (Matthíasar Matthías- sonar). Þeir eru svo rugl- aðir að það er hægt að hlæja enda- laust.“ Hver á flott- ustu fötin í V i n u m Sjonna? „Benni (Benedikt Brynleifs- son) er mód- elið. Við hinir getum ekk i keppt við hann.“ Með hverjum verðurðu í her- bergi á hótelinu? „Ef ég verð ekki einn í herbergi verð ég líklegast með Vigni. Við höfum þekkst mjög lengi og erum mikl- ir félagar.“ Áttu eftirlætis Euro- vision-lag? „Já, eitt lag kveikir alltaf í mér. Wild Dances með Ruslönu.“ Hvað heldurðu að sé vinsælasta lagið sem þú hefur sungið? „Lífið er yndislegt.“ Hvenær byrjaðirðu að spila á gítar og syngja? „Sumarið 1994, þegar ég var sext- án ára.“ Þú ert golfari – ætlarðu að spila golf í Þýskalandi? „Já, við fáum frídag á þriðju- daginn og það er golf- völlur í Düssel- dorf sem verður opinn sérstak- lega fyrir okkur snemma um morgun- inn.“ Hvert er besta Eurovision- snakk í heimi? „Popp og kók. Og maður verður að leyfa sér smá á þessu kvöldi. Jafnvel setja nýja poppsaltið yfir það.“ ERUM SAMRÝNDIR OG MIKLIR PRAKKARAR Hreimur Örn Heimisson flýgur ásamt félögum í Vinum Sjonna til Þýskalands á morgun, en forkeppnin í Eurovison fer fram 10. maí. Hreimur segir þá félaga þurfa að borða mikið í morgunmat fyrir æfingar á Eurovision-lagi Íslendinga í ár, Aftur heim, eftir Sigurjón Brink heitinn. 1. Hvað eru margir leikmenn í hvoru liði í Quidditch? 2. Hvað hétu foreldrar Harrys? 3. Hvað heita húsin fjögur í Hogwarts- skólanum? 4. Hver er guðfaðir Harrys? 5. Hvað er Harry gamall í fyrstu bókinni? 6. Hvaða kennari í Hogwarts getur breytt sér í kött? 7. Hver var gælurottan hans Rons í raun og veru? 8. Hvað er Azkaban? 9. Hvað heitir uglan hans Harrys? 10. Hvað heitir húsdraugurinn í Ravenclaw? Það er rosalega erfitt að gera upp á milli Pálma og Matta. Þeir eru svo rugl- aðir að það er hægt að hlæja enda- laust. Svör: 1. Það eru sjö leikmenn í liði í Quidditch. 2. Foreldrar Harrys hétu Lily og James Potter. 3. Húsin í Hogwarts heita Slytherin, Hufflepuff, Ravenclaw og Gryffindor. 4. Sirius Black er guðfaðir Harrys. 5. Hann var ellefu ára. 6. Prófessor McGonagall getur breytt sér í kött. 7. Rottan hans Rons, Scabbers, er í rauninni Peter Pettigrew í dulargervi. 8. Azkaban er fangelsi fyrir galdramenn. 9. Uglan hans Harrys heitir Hedwig. 10. Húsdraugurinn í Ravenclaw er Gráa frúin. WWW.PBSKIDS.ORG Á heimasíðunni er fjöldi skemmtilegra tölvuleikja og þar er líka hægt að lita myndir eða teikna sínar eigin myndir og lita með vatnslitum, úðabrúsum, penslum eða tússlitum. Jói og Sigga voru að rífast við matarborðið. „Þú ert svo vitlaus,“ sagði Sigga við Jóa. „Nú er nóg komið,“ sagði pabbi þeirra við Siggu. „Segðu Jóa að þér þyki þetta leitt.“ „Mér þykir leitt hvað þú ert vitlaus,“ sagði Sigga. Hver er munurinn á því að borða hnetusmjör og fíl? Fíll festist ekki við góminn. Nemandi: Kennari, myndirðu skamma einhvern fyrir eitt- hvað sem hann hefur ekki gert? Kennarinn: Nei auðvitað ekki. Nemandinn: Úff, eins gott, því ég gerði ekki heimaverk- efnið mitt. Af hverju lakkaði fíllinn táneglurnar á sér rauðar? Til að geta falið sig í jarðar- berjarunna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.