Fréttablaðið - 30.04.2011, Síða 93
LAUGARDAGUR 30. apríl 2011 69
Breska tónlistartímaritið NME
kannar um þessar mundir hvaða
listamaður er magnaðasti popp-
tónlistarmaður allra tíma. Hvorki
meira né minna.
Lesendur NME sjá um valið og
þessa stundina er engin önnur
en Katy Perry á toppnum. Hún
er sem sagt magnaðasti popp-
tónlistarmaður allra tíma að mati
lesenda NME. Á hæla hennar
koma svo Madonna og Lady Gaga
í öðru og þriðja sæti.
Á meðal annarra tónlistar-
manna á topp tíu eru Britney
Spears, Cyndi Lauper, sem
kemur einmitt fram á tónleikum
í Hörpu í sumar, Cher og popp-
kóngurinn Michael Jackson heit-
inn.
Katy Perry
leiðir listann
BEST? Katy Perry er magnaðasti poppari
allra tíma að mati lesenda NME.
Rapparinn Ja Rule hefur tjáð sig
í fyrsta sinn um yfirvofandi fang-
elsisvist sína. Hann byrjar í júní
afplánun á tveggja ára dómi sem
hann fékk fyrir vopnaburð árið
2007. Ja Rule, sem heitir réttu
nafni Jeffrey Atkins, er reiðu-
búinn að fara í steininn en finnur
til með eiginkonu sinni og þrem-
ur börnum þeirra. „Ég er brjál-
aður út í sjálfan mig. Dóttir mín
er fimmtán ára og er á leiðinni í
menntaskóla. Hún þarf á föður
sínum að halda. Strákarnir mínir
þurfa líka á mér að halda, rétt
eins og konan mín. Pabbi klúðraði
sínum málum,“ sagði hann.
Brjálaður út
í sjálfan sig
Í STEININN Rapparinn Ja Rule er á
leiðinni í steininn í júní.
Ítalinn Giorgio Gosetti hefur verið ráðinn dag-
skrárstjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík, RIFF. „Ég get fullyrt það að hann
er tvímælalaust einn af bestu dagskrárstjór-
um í Evrópu og þótt víðar væri leitað,“ segir
Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF.
Gosetti hefur stjórnað dagskránni Venice
Day á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þar sem
athyglinni er beint að óháðum myndum. Áður
stjórnaði hann kvikmyndahátíðinni í Róm.
„Það er mikilvægt fyrir okkur að vera með
gott fólk í dagskrárdeildinni sem hefur sam-
böndin og þekkinguna til að geta náð í bestu
myndirnar. Það er frábært að maður af þessu
kaliberi hafi áhuga á hátíðinni og vilji vinna
með okkur,“ segir Hrönn sem vonast til að
hann starfi næstu þrjú árin fyrir RIFF. Gosetti
verður dagskrárstjóri Vitrana sem er keppnis-
flokkur hátíðarinnar og verður sérlegur ráð-
gjafi um aðra dagskrárhluta. Hann tekur við
starfinu af Grikkjanum Dimitri Eipides sem
hefur unnið fyrir hátíðina frá árinu 2005.
Töluverð óvissa var um framtíð RIFF fyrr á
árinu en núna eru hlutirnir komnir í betri far-
veg. Þar hjálpar til Media-styrkur sem hátíðin
fékk hjá Evrópusambandinu upp á tæpar sex
milljónir króna. Síðast fékk RIFF þennan
styrk árið 2009. „Það eru ekki margar hátíðir
sem fá þennan styrk. Hann skiptir sköpum
fyrir okkur,“ segir Hrönn.
Höfuðstöðvar hátíðarinnar, sem verður
haldin í áttunda sinn í haust, hafa einnig verið
færðar yfir á Tjarnargötu 12 við hliðina á
Tjarnarbíói. - fb
Ítalskur dagskrárstjóri ráðinn til RIFF
NÝR DAGSKRÁRSTJÓRI Ítalinn Giorgio Gosetti hefur
verið ráðinn dagskrárstjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahá-
tíðar í Reykjavík.
Í FULLUM GANGI Í PERLUNNI
FRÁ 21. APRÍL TIL 15. MAÍ
GÍFURLEGT ÚRVAL AF ÖLLUM TEGUNDUM
TÓNLISTAR, HLJÓÐBÓKA OG DVD MYNDA