Fréttablaðið - 14.05.2011, Qupperneq 24
14. maí 2011 LAUGARDAGUR24
H
ilmar Oddsson, skóla-
stjóri Kvikmynda-
skóla Íslands, var í
hópi kvikmyndagerð-
armanna sem árið
1992 voru fengnir til
að kenna á námskeiði í hinum nýstofn-
aða Kvikmyndaskóla Íslands. Skólinn
var stofnaður af Böðvari Bjarka Pét-
urssyni sem allar götur síðan hefur
verið einn helsti drifkraftur skól-
ans að sögn Hilmars. „Það sem var
fallegt við þetta fyrsta námskeið var
að þarna á fremsta bekk í hópi nem-
enda sat vinnuveitandi minn, Böðv-
ar Bjarki, sem jafnframt var orðinn
nemandi minn. Því hvað gerir maður
á Íslandi sem á þess ekki kost að fara í
kvikmyndanám erlendis, hann stofnar
bara skóla,“ segir Hilmar og brosir að
minningunni.
„Þetta var mjög flott framtak, hann
fékk einvalalið með sér til að kenna
og sú hefur verið stefnan hér síðan,
að fá fagmenn í fremstu röð til liðs við
okkur,“ segir Hilmar og bætir við að
skólinn hafi vissulega stækkað og eflst
mikið síðan á þessum fyrstu dögum.
„Saga skólans var slitrótt til að byrja
með en hún hefur verið óslitin á þess-
ari öld. Árið 2003 gerðist það svo að
skólinn fékk viðurkenningu mennta-
málaráðuneytisins sem skóli á fram-
haldsskólastigi. Árið 2007 fengum við
svo viðurkenningu á fjórum brautum
skólans, áður fyrr var bara ein braut í
skólanum,“ segir Hilmar og bætir við
að stórhugur stofnandans hafi stundum
fengið kvikmyndagerðarmenn lands-
ins til að brosa í kampinn. „Við höfðum
ekki svo mikla trú á því að hægt væri
að reka svona umfangsmikinn skóla
hér á Íslandi með þennan litla stuðning
sem hann nýtur.“
Framleiða mikið
Kvikmyndaskóli Íslands býður nú upp
á nám á fjórum brautum, leikstjóra- og
framleiðslubraut, skapandi tækni, leik-
stjóra- og handritsbraut og loks leik-
listarbraut. Sameiginlegur kjarni er
með brautunum fjórum og sameigin-
leg krafa á nemendum er að þeir geri
myndir þar sem unnið er eftir þeirra
hugmynd. Hilmar segir framleiðsluna
í skólanum vera eitt hans helsta sér-
kenni. „Menn eru hér að framleiða og
leikstýra fleiri myndum en þeir gera
í sambærilegum skólum erlendis eða
einni til fjórum á námsferlinum. Við
teljum að það sé hverjum kvikmynda-
gerðarmanni nauðsynlegt að hafa
gert sína mynd, sama hvernig ferill
hans svo þróast að námi loknu,“ segir
Hilmar.
Um 150 nemendur leggja nú stund á
nám í skólanum en tekið er inn í hann
tvisvar á ári. „Við getum tekið við 12
nemendum á hverja braut við hverja
inntöku. Meðalfjöldi nemenda hefur
verið í kringum 160 undanfarin tvö ár.
Það verður auðvitað eitthvert brottfall
hér sem annars staðar og svo gerum
við auðvitað okkar hæfnikröfur sem
umsækjendur verða að standast.“
Nemendur víða að
Hilmar segir nemendur skólans koma
víða að, sumir komi beint úr fram-
haldsskóla, aðrir hafi lokið háskóla-
námi, enn aðrir iðnnámi. „Svo hafa
sumir nemendur komið hingað eftir
að hafa verið hornreka í menntakerf-
inu og uppgötvað að þeir eru skapandi
listamenn, þannig höfum við reynst
margri óvissri sál óvænt heimili og
athvarf.“ Hilmar segir útskrifaða
nemendur skólans svo aldeilis hafa
breytt landslagi í myndmiðlageiran-
um á Íslandi. „Það er ekki framleidd
íslensk bíómynd án þess að nemendur
okkur eigi þar hlut að máli, við eigum
nemendur á öllum sjónvarpsstöðvum
og í öllum stærstu fyrirtækjum þar
sem myndmiðlar koma við sögu. Þessi
menntun og þekking sem hér hefur
orðið til hefur þannig fært íslenska
myndmiðla upp á hærra plan, það er
alveg ljóst,“ segir Hilmar.
Fyrsta alvörustarfið
Eins og áður sagði kenndi Hilmar á
fyrsta námskeiðinu sem haldið var á
vegum Kvikmyndaskólans. Síðan þá
hefur hann kennt stöku námskeið í
skólanum en það varð breyting á hans
högum á síðasta ári þegar honum var
boðið starf skólastjóra skólans.
„Ég grínast stundum með það að
þetta sé fyrsta alvöru starf mitt í líf-
inu, og það er reyndar ekkert grín
að það varð til þess að ég handlék í
fyrsta sinn skattkort. Ég hef þraukað
allan minn starfsferil í lausamennsku
og sem einyrki. Og það hefur yfir-
leitt hafst, en maður hefur stundum
þurft að minna sig á að það er gaman í
vinnunni því ekki fékk maður borgað,“
segir Hilmar og hlær.
Hann var ráðinn skólastjóri eftir
að bent var á í úttekt sem Capacent
gerði á skólanum að ekki væri hent-
ugt að fulltrúi eigenda væri jafnframt
skólastjóri, en forveri Hilmars í sæt-
inu var áðurnefndur Böðvar Bjarki
sem nú er starfandi stjórnarformað-
ur. Hilmar býr að talsverðri kennslu-
reynslu. „Ég sá í mörg ár um kennslu
leiklistarnema í Leiklistarskólan-
um sem þá var og síðar Listaháskóla
Íslands í því að leika fyrir framan
myndavél. Þetta var mjög skemmti-
legt og gefandi starf,“ segir Hilmar
sem þrátt fyrir að vera önnum kafinn
við stjórnunarskyldur kennir útskrift-
arnemum áfanga sem ber heitið Staða
og framtíðarsýn.
Reksturinn í járnum
Nafnið gefur tilefni til að ræða stöðu
og framtíðarsýn Kvikmyndaskól-
ans. „Það er ekkert launungamál að
við stefnum á að færa skólann upp
á háskólastig. Hér viljum við geta
útskrifað nemendur með BA-gráðu og
helst meistarapróf er fram líða stund-
ir. Við vitum jafnvel að hér verða ekki
stofnaðir fleiri háskólar þannig að við
þurfum að vera í samstarfi við þá skóla
sem fyrir eru. Við leituðum eftir sam-
starfi við Listaháskólann sem hafði
ekki áhuga í stuttu máli sagt sem er
miður því það hefði legið beinast við.
En við hófum í framhaldinu viðræð-
ur við Háskóla Íslands, hugvísinda-
deildina, þar sem meðal annars er
kennd kvikmyndafræði, og þar var
okkur vel tekið og vonandi skila þær
því að mögulegt verður að ljúka námi
héðan með BA-próf innan ekki of langs
tíma,“ segir Hilmar og bætir við að
ýmis vandamál blasi þó við skólanum.
Það er ekki
framleidd
íslensk
bíómynd
án þess að
nemendur
okkar eigi
þar hlut
að máli,
við eigum
nemendur
á öllum
sjónvarps-
stöðvum
og í öllum
stærstu fyr-
irtækjum
þar sem
myndmiðl-
ar koma
við sögu
FYRSTA LAUNAVINNAN Eftir áratugi í lausamennnsku settist Hilmar Oddsson í stól rektors Kvikmyndaskóla Íslands fyrir tæpu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
V ið lok hverrar annar er efnt til sýninga á kvikmyndum sem nemendur hafa gert yfir önnina. Þessi önn er engin undantekning en nemendur
Kvikmyndaskóla Íslands sýna lokaverkefni vorannar í næstu viku, nánar til-
tekið dagana 17.-21. maí. Myndirnar verða sýndar í Bíói Paradís og er þarna
kjörið tækifæri til að skoða „græðlingana í íslenskri kvikmyndagerð,“ eins
og Hilmar orðar þar. Útskriftarhátíð með tilheyrandi viðurkenningum er
laugardaginn 21. maí kl. 13. Sýningarnar eru ókeypis og öllum opnar.
17. maí
13.00 – Leikstjórn/Framleiðsla (1., 2. og 3. önn)
20.00 - Leikstjórn/Framleiðsla (4. önn – útskriftarmyndir)
18. maí
12.00 – Skapandi tækni (1., 2. og 3. önn)
20.00 - Skapandi tækni (4. önn – útskriftarmyndir)
19. maí
13.00 - Handrit/Leikstjórn (1., 2. og 3. önn)
20.00 – Handrit/Leikstjórn (4. önn – útskriftarmyndir)
20. maí
13.00 - Leiklist (1., 2. og 3. önn)
20.00 – Leiklist (4. önn – útskriftarmyndir)
■ GRÆÐLINGAR Í ÍSLENSKRI KVIKMYNDAGERÐ
Efast ekki um velvilja ráðherra
Hilmar Oddsson kvikmyndagerðarmaður hefur gegnt starfi rektors Kvikmyndaskóla Íslands í tæpt ár og segir reksturinn í
járnum. Stefnan sé sú að skólinn færist á háskólastig og hann voni því að ráðamenn sjái hag sinn í að styðja við skólann sem
hafi bætt myndmenningu Íslendinga. Sigríður Björg Tómasdóttir ræddi við Hilmar í nýju húsnæði skólans við Ofanleiti.
„Reksturinn er í járnum, það verður
að segjast. Við erum einkaskóli og inn-
heimtum skólagjöld upp á 600 þúsund,
þau getum við ekki hækkað. Ríkið
hefur svo lagt til rúm 200 þúsund á
hvern nemanda á hverjum vetri. Þessi
fjárhæð stendur ekki undir rekstrin-
um enda kvikmyndanám almennt með
því dýrara sem hægt er að kenna, ekki
síst út af tækjabúnaði sem stöðugt þarf
að uppfæra,“ segir Hilmar sem vonast
til að stöðugar viðræður við mennta-
málaráðuneytið skili árangri. „Ég
efast reyndar ekki um áhuga og vel-
vilja Katrínar Jakobsdóttur mennta-
málaráðherra, en hún er ekki einráð en
auðvitað vonum við hið besta.“ Hilmar
bendir á að öllum starfsmönnum hafi
verið sagt upp fyrir tveimur mánuð-
um svo virkilega ríði á að ljúka þess-
um málum með farsælum hætti, enda
hljóti menn að vilja nýta alla þá þekk-
ingu sem hafi safnast upp í skólanum
á undanförnum árum.
Húsnæðisdeila leyst
Húsnæðismál skólans hafa verið til
umfjöllunar fjölmiðla en skólinn flutt-
ist úr Víkurhvarfi í núverandi hús-
næði við Ofanleiti, þar sem Háskólinn
í Reykjavík var áður, um síðustu ára-
mót. Fyrrum leigusalar skólans sögðu
Kvikmyndaskólann skulda þeim fé en
skólinn leit svo á að þeir hefðu ekki
staðið við sinn hlut af samkomulagi
um húsnæðið. „Þessi mál leystust sem
betur fer farsællega með samningum
nú í vikunni og það er þungu fargi af
mér létt,“ segir Hilmar sem er ánægð-
ur á nýja staðnum í Ofanleiti. „Húsið
hér er að mörgu leyti afar hentugt og
í sumar munum við koma okkur betur
fyrir. Svo má þess geta að í gamla
húsnæði prentsmiðju Morgunblaðs-
ins erum við að koma upp stúdíói sem
verður eitt hið besta á landinu. Þann-
ig að það er margt gott og jákvætt að
gerast.“
Hilmar segir ennfremur ánægju-
legt hve orðspor Kvikmyndaskólans
hefur styrkst á undanförnum árum.
„Hér kenna okkar fremstu kvikmynda-
gerðarmenn og þeir þekkja því orðið
vel okkar starf. Svo má þess geta að
nú höfum við fengið reynsluaðild
að CILECT, alþjóðasamtökum kvik-
myndaskóla, sem er mikil viðurkenn-
ing fyrir starf okkar og opnar gáttir
að ýmis konar alþjóðlegu samstarfi,“
segir Hilmar að lokum.