Fréttablaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 47
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
E
urovision er hálfgerður
vorboði. Kvöldið setur
skemmtilegan svip á
mannlífið þótt ég hafi
reyndar sjálfur ekki fylgst vel með
keppninni síðustu árin, enda lögin
orðin svo mörg,“ segir tónlistar-
maðurinn Stefán Hilmarsson. Eftir
úrslit í kvöld treður Stefán upp á
nokkrum stöðum ásamt félaga
sínum Eyfa og endar á Eurovision-
hátíð á Nasa. Að sjálfsögðu verður
Nína með í för.
„Jú, mér hefur litist vel á
íslenska lagið. En reynslan hefur
sýnt að það er engin leið að ráða
í gengi laga af neinu viti,“ segir
Stefán og bætir við að keppnin
sé nokkuð breytt frá því sem var.
„Vissulega koma annað slagið fram
prýðileg lög, en maður saknar þó
stóru lagasmiðanna. Tíðarandinn
hefur breyst og menn horfa nú
mikið í heildarútlit og dansatriði,
einkum í aðalkeppninni. Einhver
hafði á orði við mig að áður hefðu
menn valið lagið fyrst og svo kjól-
inn, en nú virðist það vera öfugt.“
Stefán á sín eftirlætis Eurovision-
lög. „Það eru alltaf einhver sem
lifa áfram, þrátt fyrir að hafa ekki
unnið. Ég get nefnt lögin Sóley og
Til þín en hið síðarnefnda tók ég
upp á síðustu sólóplötu minni. Ég
var jafnan spenntur fyrir lögum
sem höfðu yfir sér þjóðlegan blæ,
eins og hið kýpverska „Ime Anthro-
pos Ki Ego“ frá 1994. Ég held að
þjóðleg áhrif séu að mestu horf-
in núna. Ég hef lengi haldið upp á
„Un jour, un enfant“ frá 1969, þeim
tíma þegar lagasmíði og túlkun
voru í fyrirrúmi, en prjál og sprikl
aukaatriði. „L‘oiseau et l‘enfant“
frá 1977 er líka í uppáhaldi. Og ef
maður vil stuð þá má keyra í gang
„Ding-a-dong“ frá 1975.“
Stefán og Eyfi héldu tónleika
í Salnum á dögunum í tilefni 20
ára afmælis „Draums um Nínu“
og húsið fylltist. Á fimmtudaginn
voru Nínu-tónleikar númer tvö og
seldist einnig upp. Þeir hafa bætt
við þriðju og síðustu tónleikun-
um 25. maí. „Þar verður áhersla á
Evróvisjónlög sem við höfum komið
nálægt, ýmist sungið sjálfir eða
tekið þátt í að semja en ekki flutt
fram til þessa. Auk þess syngjum
við nokkur uppáhaldslög úr keppn-
um hér heima og úti. Þar á meðal
eitt á ítölsku og annað á norsku.
Maður vonar bara að það sitji eng-
inn Ítali eða Norðmaður í salnum,
því framburðurinn er ekki alveg
uppá 12 stig.“ juliam@frettabladid.is
Stefán Hilmarsson tónlistarmaður upplifir Eurovision-keppnina sem vorboða:
MYND/ÚR EINKASAFNI
Rúntar á milli með Eyfa
Eyfirskar kýr sletta úr klaufunum á sunnudag en þá bjóða ábú-
endur á Ytri-Tjörnum í Eyjafjarðarsveit gestum og gangandi að fylgjast með
þegar kúnum á bænum verður hleypt út eftir vetrarinnistöðu. Þær taka
margar gleðistökk sem gaman er að fylgjast með. Kúnum, sem eru fimmtíu
talsins, verður hleypt út klukkan 12. Nánar á www.naut.is.
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
Gæði & Glæsileiki
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
Bættu um betur – Pípulagnir er tilraunaverkefni sem mi›ar a› flví
a› meta færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›, óhá› flví
hvernig hennar hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur í
verkefninu ljúki sveinsprófi.
Inntökuskilyr›i í verkefni› er:
- 25 ára aldur
- Hafa starfa› í greininni í a.m.k. 5 ár og geta sta›fest fla›
me› opinberum gögnum.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu-
setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›.
Nánari uppl‡singar er a› finna á www.idan.is. Einnig er hægt a›
senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is.
Hefur flú starfa› vi›
pípulagnir og vilt
ljúka námi í greininni?
th
or
ri@
12
og
3.
is
4
26
.0
30
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið
mán - fös 10-18,
laugardaga 10-16
Stuttkápur
verð frá
19.900
Yfi rhafnir, bolir og peysur í miklu úrvali.
Toppvö
rur
toppþjó
nusta.
Stutt kápa
með hettu
23.900 kr.
Nýjar vörur
ÍSLENSKT
HUNDANAMMI
Fæst í Bónus, Samkaup,
10-11, Fjarðarkaup og Inspired
Keflavíkurflugvelli
gott í þjálfun og í leik
VINSÆLVARA