Fréttablaðið - 14.05.2011, Side 110

Fréttablaðið - 14.05.2011, Side 110
14. maí 2011 LAUGARDAGUR66 sport@frettabladid.is GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON er orðaður við ensku úrvalsdeildarfélögin Everton og Fulham í þýskum fjölmiðlum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gylfi er orðaður við ensk úrvalsdeildarlið síðan hann gekk í raðir Hoffenheim. Forráða- menn Hoffenheim segja Gylfa þó ekki vera til sölu. Hann sé mikilvægur í framtíðarplönum félagsins. FÓTBOLTI 35 ára bið Manchester City eftir titli gæti lokið í dag þegar liðið mætir Stoke City í úrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley. Flestir spá Manchester-liðinu sigri í leiknum enda er það með talsvert sterkara lið á pappírn- um fræga. Sá pappír telur aftur á móti ekki neitt þegar út á völl- inn er komið og það veit Roberto Mancini, stjóri Manchester City. „Þessi leikur verður erfiðari en leikurinn gegn Manchester United. Stoke er mjög sterkt lið sem erfitt er að eiga við. Það væru mikil mis- tök að búast við auðveldum leik. Ef við ætlum að ná sigri verðum við að spila vel. Við verðum að vera einbeittir og megum alls ekki gefa færi á okkur,“ sagði jarðbundinn Mancini en hann er þegar búinn að tryggja sínu liði þáttökurétt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. „Við náðum einu markmiði með því að komast í Meistaradeildina. Næsta markmið er að vinna titil. Það er mjög mikilvægt að ná því markmiði sem fyrst og við fáum frábært tækifæri til þess í þessum leik.“ Enska bikarkeppnin nýtur tals- vert meiri virðingar í Englandi en ítalski bikarinn fær á Ítalíu. Manc- ini vann ítalska bikarinn sex sinn- um á sínum ferli – tvisvar sem leikmaður og fjórum sinnum sem þjálfari. - hbg Manchester City og Stoke City mætast í úrslitum ensku bikarkeppninnar í dag: Er 35 ára bið Man. City á enda? CARLOS TEVEZ Argentínumaðurinn heldur enn í vonina um að geta spilað í dag. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Lokahóf HSÍ Helstu verðlaun: Bestu leikmenn: Ólafur Bjarki Ragnarsson (HK) og Anna Úrsula Guðmundsdóttir (Valur) Efnilegustu leikmenn: Guðmundur Hólmar Helgason (Akureyri) og Birna Berg Haraldsdóttir (Fram). Valdimarsbikarinn: Heimir Örn Árnason (Akureyri) Sigríðarbikarinn: Anna Úrsula Guðmunds dóttir (Valur). Bestu þjálfararnir: Atli Hilmarsson (Akur- eyri) og Stefán Arnarson (Valur). Bestu varnarmenn: Guðlaugur Arnarsson (Akureyri) og Anna Úrsula Guðmunds- dóttir (Valur). Bestu sóknarmenn: Ólafur Bjarki Ragnars- son (HK) og Karen Knútsdóttir (Fram). Bestu markverðir: Sveinbjörn Pétursson (Akureyri) og Íris Björk Símonardóttir (Fram). Markahæstu leikmenn: Ragnar Jóhanns- son (Selfoss, 173 mörk) og Brynja Magnúsdóttir (HK, 121 mark). Háttvísisverðlaun HDSÍ: Ólafur Bjarki Ragnarsson (HK) og Karen Knútsdóttir (Fram). Dómarar ársins: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson. Lið ársins í N1-deild karla: Sveinbjörn Pétursson Akureyri Atli Ævar Ingólfsson HK Oddur Gretarsson Akureyri Ólafur Bjarki Ragnarsson HK Ásbjörn Friðriksson FH Ólafur Guðmundsson FH Einar Rafn Eiðsson Fram Lið ársins í N1-deild kvenna: Íris Björk Símonardóttir Fram Anna Úrsula Guðmundsdóttir Valur Rebekka Rut Skúladóttir Valur Hrafnhildur Ósk Skúladóttir Valur Karen Knútsdóttir Fram Jóna Margrét Ragnarsdóttir Stjarnan Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir Fram HANDBOLTI Ólafur Bjarki Ragnars- son úr HK og Valsstúlkan Anna Úrsúla Guðmundsdóttir voru valin bestu leikmenn N1-deild- anna á lokahófi HSÍ sem fram fór í Gullhömrum í gær. Akureyringurinn Guðmundur Hólmar Helgason og Framstúlk- an Birna Berg Haraldsdóttir voru valin efnilegustu leikmennirnir. - hbg Lokahóf HSÍ: Ólafur og Anna valin best ÓLAFUR BJARKI Fór mikinn með liði HK í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 landsliðs Íslands, hefur valið þá fjörutíu leikmenn sem eiga möguleika á að spila með liðinu á EM í Danmörku í sumar. 23 leikmenn fara með liði Íslands á EM og verða þeir að koma úr þessum hópi. Fjórir nýliðar eru í hópnum – þeir Arnar Sveinn Geirsson (Val), Einar Orri Einarsson (Keflavík), Hall- dór Kristinn Haldórsson (Val) og Haukur Baldvinsson (Breiða- bliki). Alls eru sjö leikmenn úr Breiðabliki í þessum hópi. - esá U-21 árs landsliðið: Búið að velja 40 leikmenn EYJÓLFUR SVERRISSON Á ekki auðvelt verkefni fyrir höndum er kemur að því að velja lokahópinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON U-21 árs hópurinn Markverðir: Arnar Darri Pétursson, SönderjyskE Haraldur Björnsson, Val Ingvar Jónsson, Stjörnunni Óskar Pétursson, Grindavík Ögmundur Kristinsson, Fram Aðrir leikmenn: Alfreð Finnbogason, Lokeren Almarr Ormarsson, Fram Andrés Már Jóhannesson, Fylki Arnar Már Björgvinsson, Breiðabliki Arnar Sveinn Geirsson, Val Arnór Smárason, Esbjerg Aron Einar Gunnarsson, Coventry Aron Jóhannsson, AGF Birkir Bjarnason, Viking Bjarni Þór Viðarsson, Mechelen Björn Bergmann Sigurðarson, Viking Björn Daníel Sverrisson, FH Eggert Gunnþór Jónsson, Hearts Eiður Aron Sigurbjörnsson, ÍBV Einar Orri Einarsson, Keflavík Elfar Freyr Helgason, Breiðabliki Finnur Orri Margeirsson, Breiðabliki Guðlaugur Victor Pálsson, Hibernian Guðmundur Kristjánsson, Breiðabliki Guðmundur Reynir Gunnarsson, KR Gylfi Þór Sigurðsson, Hoffenheim Halldór Kristinn Halldórsson, Val Haukur Baldvinsson, Breiðabliki Hjörtur Logi Valgarðsson, IFK Gautaborg Hólmar Örn Eyjólfsson, West Ham Jóhann Berg Guðmundsson, AZ Alkmaar Jóhann Laxdal, Stjörnunni Jón Guðni Fjóluson, Fram Jósef Kristinn Jósefsson, Chernomorets Kolbeinn Sigþórsson, AZ Alkmaar Kristinn Jónsson, Breiðabliki Kristinn Steindórsson, Breiðabliki Rúrik Gíslason, OB Skúli Jón Friðgeirsson, KR Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV HANDBOLTI Dagur Sigurðsson, þjálf- ari Füchse Berlin í þýsku úrvals- deildinni, átti nýverið í viðræðum við þýska handknattleikssamband- ið um að taka við starfi landsliðs- þjálfara þar í landi. Dagur segir í samtali við Fréttablaðið að hann hafi ekki heyrt meira af málinu síðan þá. „Ég var einn af nokkrum sem komu til greina en annars er ekk- ert nýtt í stöðunni. Ég hef ekki fengið tilboð eða neitt slíkt,“ segir Dagur. „Þar að auki er þetta ekki í mínum höndum. Ég er með samni- ing við Füchse Berlin og félagið þyrfti að leggja blessun sína yfir þetta.“ Þýskir fjölmiðlar orðuðu Dag fyrst við þjálfarastarfið í síðasta mánuði en í fyrradag staðfesti Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, í þýskum fjölmiðl- um að viðræðurnar hefðu átt sér stað. Heiner Brand er núverandi landsliðsþjálfari og er með samn- ing til 2013. Hann hefur verið landsliðsþjálfari síðan 1997 og gert Þjóðverja bæði að heims- og Evrópumeisturum. Undanfarin ár hefur hins vegar hallað undan fæti og liðið lent í 10. og 11. sæti á síðustu tveimur stór- mótum. Gagnrýnin á liðið hefur verið mikil í Þýskalandi og afar líklegt er að Brand muni stíga til hliðar eftir undankeppni EM 2012 sem lýkur í júní. Dagur hefur náð frábærum árangri á sínum þjálfaraferli. Hann gerði A1 Bregenz að marg- földum meisturum sem spilandi þjálfari í Austurríki. Hann tók svo við landsliði Austurríkis en undir hans stjórn náði liðið sínum langbesta árangri í áraraðir. Hann hefur svo stýrt Füchse Berlin undanfarin tvö ár en liðið tryggði sér á dögunum sæti í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð. Á því áttu fáir von fyrir fram. „Þetta kitlar, það er ekki spurn- ing,“ segir Dagur um landsliðs- þjálfarastarfið. Þýskaland er mesta handboltaþjóð heims og því er starfið eitt það allra stærsta sinnar tegundar í heimi. „Þetta er vissulega stór staða en á móti kemur að árangurinn á síð- ustu stórmótum hefur aðeins dreg- ið loftið úr þeim,“ segir Dagur. „Þeir eru búnir að missa sjálfs- traustið og þetta myndi því snúast um nákvæmlega það sem ég hef verið að gera – að gera liðið örlítið sterkara og koma löppunum undir það.“ Hann vill þó ekki gera of mikið úr sínum árangri til þessa. „Ég vil ekki byggja neinar skýjaborgir. Þetta snýst um að finna þann þjálf- ara sem passar best við liðið sem hann tekur við.“ Árangurinn hjá Füchse Berlin talar þó sínu máli. „Við erum búnir að ná okkar markmiðum og hvað okkur varðar er tímabilið eigin- lega búið. Við ætluðum að komast í Evrópukeppni og erum komnir í Meistaradeildina,“ segir Dagur, sem sendi liðið í frí til Mallorca en er sjálfur staddur á Íslandi. Füchse Berlin er búið að tryggja sér fjórða sæti þýsku úrvalsdeild- arinnar sem þarf til að tryggja sér Meistaradeildarsætið. Fram undan eru því spennandi tímar hjá félaginu og gæti reynst erf- itt fyrir Dag að velja á milli ef kæmi til þess. Hann hefur þó ekki áhyggjur af því. „Ég mun fyrst leyfa þeim aðstæðum að koma upp áður en ég velti því fyrir mér. Ég hef ekki fengið tilboð enn. Annaðhvort eru þeir að liggja undir feldi eða eru að semja við annan,“ segir Dagur. „Það eina sem ég veit er að það voru nokkuð mörg ósvöruð símtöl í símanum mínum eftir yfirlýsingu Bobs í gær.“ eirikur@frettabladid.is Landsliðsþjálfarinn kitlar Dagur Sigurðsson kemur til greina sem næsti þjálfari þýska landsliðsins í hand- bolta – sem er ein allra stærsta þjálfarastaða heimsins. Dagur átti nýverið í við- ræðum við þýska handknattleikssambandið en hefur ekkert tilboð fengið. DAGUR Þykir einn færasti handknattleiksþjálfari heims þessa dagana eftir frábæran árangur hjá Füchse Berlin og landsliði Austurríkis. NORDICPHOTOS/BONGARTS MEISTARANÁM Í ÍÞRÓTTAFRÆÐI MSc í íþróttavísindum og þjálfun Ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í þjálfun keppnis- og afreksíþróttafólks og rannsóknum á sviði íþróttafræði. MEd í heilsuþjálfun og kennslu Ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í íþróttakennslu og lífsstílsfræðum á sviði heilsuræktar. Gráðan veitir kennsluréttindi. UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 5. JÚNÍ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.