Fréttablaðið - 14.05.2011, Síða 112
14. maí 2011 LAUGARDAGUR68
FÓTBOLTI Knattspyrnuspekingum
hefur verið tíðrætt um það í vor
hversu slæm byrjun KR-ingar hafi
spillt fyrir þeim síðustu sumur og
þeir hafi því ekki náð í Íslands-
meistaratitilinn þrátt fyrir sann-
kallaða meistaraspilamensku á
lokasprettinum.
Það að KR-ingar skuli vera á
toppnum eftir þrjár umferðir í
Pepsi-deildinni í ár ætti að auka
meistaravonir fjölmargra stuðn-
ingsmanna félagsins. Það hefur
nefnilega ekki gerst í átta ár, eða
síðan KR-ingar urðu síðast Íslands-
meistarar sumarið 2003. KR-ingar
voru sem dæmi í 9. sæti eftir þrjár
umferðir í fyrra og fyrir fjórum
árum voru þeir á botninum eftir
þrjá leiki. Þeir hafa í raun aðeins
verið tvisvar sinnum á topp þrjú
eftir þrjár umferðir frá því að þeir
unnu síðasta titilinn fyrir átta
árum.
KR-ingar eru samt með jafn-
mörg stig og fyrir tveimur árum en
þeir græða á því að aðalkeppinaut-
ar þeirra, FH, Valur og Breiðablik,
hafa öll tapað fleiri stigum í fyrstu
þremur umferðunum. Þess vegna
er toppsætið Vesturbæinga þrátt
fyrir naumt jafntefli við Keflavík
í eina heimaleik liðsins til þessa.
Fram undan eru reyndar vara-
samar umferðir fyrir KR-liðið
því liðið hefur tapað samtals sext-
án stigum (af 30 mögulegum) í
fjórða til áttunda leik undanfar-
in tvö tímabil og sá kafli á ekki
síður þátt í því að góður enda-
sprettur hefur ekki dugað til að
koma með Íslandsbikarinn aftur í
Vesturbæinn. - óój
Núverandi staða lofar góðu fyrir KR-inga:
KR hefur ekki verið í
þessari stöðu í átta ár
VIKTOR BJARKI ARNARSSON Hefur átt
þátt í marki í öllum þremur leikjum KR
til þessa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KR eftir þrjár umferðir
2011: 1. sæti - 7 stig
2010: 9. sæti - 2 stig
2009: 2. sæti - 7 stig
2008: 7. sæti - 3 stig
2007: 10. sæti - 1 stig
2006: 4. sæti - 6 stig
2005: 3. sæti - 6 stig
2004: 8. sæti - 3 stig
2003: 1. sæti - 7 stig
FÓTBOLTI Valskonur hafa unnið
Íslandsmeistarabikarinn fimm ár í
röð og tvöfalt undanfarin tvö tíma-
bil. Stóra spurningin fyrir tímabil-
ið í Pepsi-deild kvenna er því eins
og áður hvort einhverju liði takist
að velta Valsstúlkum af toppnum.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson lands-
liðsþjálfari hefur fylgst vel með
undirbúningstímabilinu og hann
hefur mikla trú á því að Stjörnu-
stúlkur geti gert titilbaráttuna
virkilega spennandi í sumar.
„Það hefur verið sagt á hverju
ári að núna verði deildin jafnari,
en núna er í fyrsta skiptið hægt að
tala um það í alvöru að hún verði
jafnari. Ég á reyndar von á því að
þetta verði svolítið einvígi á milli
Vals og Stjörnunnar. Mér sýnist
þau lið vera pínulítið sterkari en
Þór/KA og Breiðablik. ÍBV-liðið er
síðan algjört spurningarmerki. Við
höfum líka séð lið eins og Fylki og
KR gera liðum skráveifu á undir-
búningstímabilinu og það getur
því allt gerst þar,“ segir Sigurður
Ragnar Eyjólfsson.
Hann segir að efnilegustu leik-
menn okkar ættu að fá nóg af
tækifærum í sumar.
„Þetta verður sumar ungu
stelpnanna. Okkar bestu leik-
menn hafa farið margar hverjar
í atvinnumennsku, þessar ungu
fá því núna tækifæri snemma á
sínum ferli og við sjáum það á 17
ára landsliðinu okkar að það er
geysilega mikið af mjög efnilegum
leikmönnum. Þær verða margar í
lykilhlutverkum með sínum liðum
í sumar,“ segir Sigurður Ragnar.
Stjörnukonur unnu Lengjubikarinn
á dögunum og Sigurður Ragnar
hefur trú á því að Garðabæjar-
stelpur séu nógu góðar til þess að
geta unnið titilinn í haust.
„Láki (Þorlákur Árnason) er
að gera góða hluti með þær. Þær
hafa unnið Val tvisvar með stuttu
millibili á undirbúningstímabilinu
og hafa svolítinn meðbyr með sér
þar,“ segir Sigurður Ragnar, sem
tekur þó fram að þetta gæti breyst
eitthvað, styrki lið sig með góðum
erlendum leikmönnum eins og
hann hefur heyrt einhvern óm af.
„Valur hefur aðeins hikstað í
sóknarleiknum, rétt eins og Stjarn-
an sem vantar afgerandi fram-
herja, og þjálfarinn er að reyna að
finna taktinn og þróa nýjar leið-
ir í sókninni. Leikmenn þurfa að
venjast því að Dóra María, sem
var arkitektinn í liðinu, og Katr-
ín Jónsdóttir, sem var hjartað í
liðinu, eru farnar og það eru stór
skörð,“ segir Sigurður Ragnar,
sem vill hrósa liði Breiðabliks
fyrir að spila mjög skemmtilegan
fótbolta.
„Breiðablik er nánast eingöngu
með uppalda leikmenn og félagið
hefur tekið þá stefnu að byggja á
þeim.
Þær hafa komið mér á óvart á
undirbúningstímabilinu með því
að spila mun betur en ég átti von
á. Það er gaman að horfa á þær
spila,“ segir Sigurður Ragnar en
hann segir það slæmar fréttir
fyrir Þór/KA að Mateja Zver sé
meidd.
„Ég held að það veiki Þór/KA
mikið að Mateja er meidd fyrstu
vikurnar. Þær gætu tapað dýr-
mætum stigum þar. Ég held að á
góðum degi geti ÍBV-liðið unnið
toppliðin og Þór/KA getur klárlega
unnið hvaða lið sem er á góðum
degi.“ ooj@frettabladid.is
Sumar ungu stelpnanna
Pepsi-deild kvenna hefst með heilli umferð í dag. Fréttablaðið fékk Sigurð
Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfara til að fara aðeins yfir það hvernig hann sér
fyrir sér að Íslandsmótið spilist í sumar og hvort eitthvert lið eigi séns í Val.
BARÁTTA VALS OG STJÖRNUNNAR? Dagný Brynjarsdóttir, Val, og Kristrún Kristjáns-
dóttir, Stjörnunni, eigast við í bikarúrslitaleiknum í fyrrahaust. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Pepsi-deild kvenna
1. umferð - leikir hefjast kl. 16.00:
Stjarnan - Fylkir
Valur - Grindavík
Breiðablik - Þróttur R.
Afturelding - KR
Þór/KA - ÍBV
FÓTBOLTI Manchester United
getur tryggt sér enska meistara-
titilinn í dag með því að fá stig
gegn Blackburn. Sir Alex Fergu-
son, stjóri Man. Utd, ætlar að
tefla fram öflugu liði sem á að
sjá til þess að United verði orðið
meistari fyrir lokaumferðina.
Allir lykilmenn United koma
til greina í liðsvali dagsins nema
Edwin van der Sar, sem fær að
hvíla sig.
„Þetta er risastór leikur og
við verðum að nálgast hann á
réttan hátt. Þess vegna mun ég
tefla fram mínu sterkasta liði,“
sagði Ferguson, en með stiginu
vinnur United sinn 19. titil og
fer þar með fram úr Liverpool í
titlasöfnun. - hbg
Man. Utd mætir Blackburn:
Verður United
meistari í dag?
SÁ EFTIRSÓTTI Ferguson vill tryggja sér
þennan bikar í dag. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Björn Jónsson samdi í
gær við KR til loka tímabilsins.
Hann er 21 árs gamall leikmaður
sem var á mála hjá Heerenveen í
Hollandi í á sjötta ár, þar til hann
fékk sig lausan þaðan í janúar
síðastliðnum.
„Það komu í raun bara tvö lið
til greina hjá mér – FH og KR. Ég
æfði með FH um daginn en ákvað
að semja við KR. Þar eru góðir
þjálfarar, flottir leikmenn og gott
lið. Ég sé fyrir mér að þarna fái
ég tækifæri til að vinna mig upp
úr mínum meiðslum og bæta mig
sem knattspyrnumann,“ sagði
Björn við Fréttablaðið í gær.
Hann fór í aðgerð vegna kvið-
slits í síðasta mánuði og er að
komast aftur af stað núna. Ein-
hver bið verður þó eftir því að
hann geti spilað sinn fyrsta leik
með KR.
„Ég ætla að taka mér góðan
tíma og passa mig á því að fara
ekki of snemma af stað,“ sagði
Björn, sem hlakkar til að fá að
spreyta sig hér á Íslandi. „Ég
lærði margt í Hollandi en er
sáttur við að koma heim nú.“ - esá
Björn Jónsson samdi við KR til loka tímabilsins:
Leist best á KR-inga
www.skra.is
ÞÍ
2
01
10
50
9
RR
S
Nú geturðu tilkynnt
flutning á netinu
v. 30,5m (neðri hæð) 37,5m (efri hæð)
Lindarvað 5 og 9 110 Rvk
Glæsilegar sérhæðir
Eftirsóttur staður
Tvíbýlishús
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Jónsson og Már Alfreðsson
í síma 697 3080 og 615 8200
14:00 - 15:00
laugardagur 14.maí
OPIÐ HÚS
Í DAG
- með þér alla leið -
www.miklaborg.is Síðumúla 13 108 Reykjavík Sími: 569 7000
Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar