Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1990, Side 12

Faxi - 01.12.1990, Side 12
AÐVENTAN t Wtíctcc WLCCtCtt Aðventan útleggst; eftirvænting, það sem er tímabundið framundan. Markmið sem keppt er að með mis- munandi miklum undirbúningi. Pað er sú aðventa sem við erum að búa okkur undir nú ogendurtökum fyrir hver jól, jólaföstumánuður. Eins og líkami okkar er sífellt í endurnýjun, eins þurfum við að endurnýja hug okkar og handtök til þess sem við væntum að geri kröfur til okkar ogað við búum okk- ur undir það sem við vitum að er framundan, eins og t.d. jólin. Þess vegna ætla ég aðsegja frá þeirri að- ventu sem ég man best eftir og var mín eigin því hver einstaklingur á sína væntingu, sem svo aftur er unnt að gera að hóp eða samtökum, eins og þegar fjölskylda sameinast um að gera jólaundirbúninginn sem bestan bæði í orði og verki. Þegar ég var lítill strákhnokki fyr- ir um 65 árum, þá átti ég hvorki föð- ur eða móður á lífi, þegar þau voru látin var ég sendur til hjóna sem áttu engin börn, þau urðu mér sem bestu foreldrar. Ég hafði enga krakka til að leika mér við og nokk- uð var langt til næstu bæja. Það var helst um helgar aðsamband var við nágranna og þeirra börn. Þess vegna var ég að mestu með full- orðnu fólki og þá að leika mér ei- samall. Þá voru engir peningar til að kaupa fyrir leikföng eða sælgæti. Þess vegna varð ég að reyna að búa til sjálfur það sem mig langaði til að eignast, og það Vcir oft erfitt því lé- leg verkfæri voru á heimilinu svo Guðmundur B. Jónssson. sem annars staðar á þeim tímum sem ég er að segja frá. Svo kom að- ventan með sinn boðskap, að jólin væru framundan með allan jóla- föstumánuð til að undirbúa sig bæði andlega og veraldlega, þess vegna var í mörgu að snúast. Ég vissi að á jólunum væri sú stóra stund þegar sú aðventa rættist að Jesú barnið hafi þá fæðst. Það var afmæli Jesús sem var upphafið að öllu því sem til stóð. Ég reyndi að hjálpa til við ýms- an undirbúning, og stundum frekar fyrir en til liðs. Ég gerði mér ekki fyllilega ijóst að þetta sem hét að- venta væri til að minna á þann und- irbúning sem tilheyrði jólunum en þó varð ég að leggja fram minn hlut til að vera eins og aðrir á heimilinu, ekki gat ég sótt visku í bækur eða þá sem reynslu höfðu og varð því að jBæjarstjóm Njarðvíkur óskar starfsmönnum sínum svo og öllum Njarðyíkingum gleðilegra jóla og farsceldar á komandi árí og þakkar liðið ár Bæjarstjóm Njarðvíkur 204 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.