Faxi - 01.12.1990, Síða 28
Þáttaskil
— Bæjarstjóri í Grindavík
Okkur leikur forvitni á að vita,
hvað olli því, að útgerðarmaður og
fiskverkandi vestan af fjörðum snýr
allt í einu við blaðinu og sækir um
að gerast bæjarstjóri í Grindavík. Að
sögn Jóns Gunnars var það margt
sem lá þar að baki. Hann hafði í
raun verið farinn að hugsa sér til
hreyfings nokkru áður og hafði þá
haft ákveðið starf í huga. Það dæmi
gekk ekki upp og |dví var það, að
þegar hann sá í blöðum haustið
1982 auglýst eftir bæjarstjóra fyrir
Grindavík, þá sló hann til og sótti
um. Það er skemmst frá því að segja,
að hann fékk starfið og tók við af Ei-
ríki Alexanderssyni sem þá var að
taka við starfi framkvæmdastjóra
SSS.
Við spyrjum, hvernig honum hafi
líkað starfið og hvernig þeim hjón-
um hafi gengið að koma sér fyrir?
,,Ja, ég er hér enn og það væri ég
ekki ef mér hefði ekki líkað starfið
vel. Eg hef svo sem látið minna fara
fyrir mér í félagsmálum en áður og
það sama má einnig segja um Gunn-
hildi. Hún hefur að undanförnu
unnið í versluninni Palómu og henni
hefur líkað mjög vel þar."
„Hver eru dagleg störf bæjar-
stjóra í bæ sem þessum?"
,,Þaö er nú fyrst og fremst að vera
sem mest til staðar, því það eru svo
margvísleg störf sem leysa þarf af
hendi. Starfsfólk er ekki margt, og
því þarf hver og einn að vera liötæk-
ur í svo margt. Annars má segja, að
mestur tími fer í að undirbúa verk-
legar framkvæmdir og fylgjast með
framgöngu þeirra. Þá eru fjármálin
þýðingarmikil, þar verður að fylgj-
ast náið með — þar er undirstaðan."
„Getur bæjarstjóri haft mikiö
frumkvæði að þínu rnati?"
„Já, ég tel að hann hafi það og eigi
að hafa það, m.a. með jrví að vera
vakandi fyrir nýjungum."
„Nú er Grindavík bær í stöðugri
þróun. Hvert stefnir þetta bæjarfé-
lag að þínu mati?"
„Atvinnumunstrið hefur verið að
breytast hér að undanförnu. Nú er
miklu jafnari vinna við fiskiðnaðinn
allt árið um kring, ekki lengur þessir
miklu toj>par sem voru á vetrarver-
tíðinni. I næsta nágrenni við bæinn
eru fiskeldistöðvar sem hafa að vísu
átt við mikla byrjunarörðuleika, en
komast vonandi út úr þeim í fram-
tíðinni. Hverskonar þjónusta og
verslun hefur aukist og ferða-
mannastraumur er vaxandi.
Við höfum verið að vinna að
skipulagsmálum á undanförnum
árum í kjölfar aðalskipulags frá
1984. Við höfum bætt mjög aðstöðu
fyrir ferðafólk, fyrir æskuna vegna
íþróttalífsins, bæði er búið að byggja
stórt og gott íþróttahús og einnig
verður vonandi fljótlega hægt að
byrja á sundhöll á íþrótt svæðinu.
Þar er um að ræða 25 me a laug og
búningsaðstöðu fyrir íþrottavellina.
Þá höfum við einnig verið að vinna
við að fegra og bæta umhverfi bæj-
arins."
Barnabörn Jóns Gunnars og Gunnhildar eru orðin mörg. Hér eru Ingigerður og maður hennar, Jón Halldórs-
son, með tvo hnokka, alnarnann Jón Gunnar Stefánsson, sem Jón heldur á, og Jón Gunnar Jónsson, sem er
sonur Ingigerðar og Jóns.
220 FAXI
Starfsdagurinn á bæjarskrifstofunum í Grindavík hefst gjarnan á því, að menn setjast niður með bæjarstjóran-
um til að fara yfir verkefni dagsins. Frá vinstri eru það Jón Hólmgeirsson, Ólína Ragnarsdóttir, Jón Gunnar,
Kjartan Adolfsson og Nanna Teitsdóttir. Kaffisopinn góði sér um að allir séu vel vakandi!
um árum og varð bæði umdæmis-
stjóri og fjölumdæmisstjóri.
Einnig lét hann nokkuð að sér
kveða í sveitarstjórnarmálum, því
hann sat tvö tímabil í hreppsnefnd,
það var á árunum 1962—1970. Þá
starfaði hann og mikið að málefn-
um kjördæmisins fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Fletti maður gestabók
heimilisins frá þeim árum, þá liggur
við að lesa megi stjórnmálasögu
tímabilsins, svo margt merkisfólk
gisti heimili þeirra hjóna.
Er fram liðu stundir, þá eignuöust
Gunnhildur og Jón Gunnar þrjú
börn í viðbót. Reyndar var Gunn-
hildur ófrísk að öðru barninu, ör-
lagaveturinn er hún kom vestur.
Ingigerður hefur áður verið nefnd,
en síðan komu Stefán, Guðmundur
og Hulda. Þau ólust öll upp á Flat-
eyri, fóru öll nema Ingigerður í
skóla á Núpi, en hafa síðan öll lokið
framhaldsnámi. Ingigerður er
hjúkrunarfræðingur og er búsett í
Reykjavík, Stefán og Hulda eru
bæði viðskiptafræðingar og eru bú-
sett i Hafnarfirði og Guðmundur
hefur bæði lokið námi í viðskipta-
fræöi og fisktæknifræði. Hann er
búsettur í Reykjavík. Er það dálítið
merkilegt, að þrjú börnin hafa farið
í viðskiptafræðina eins og Jón.
Sjaldan fellur epliö langt frá eikinni!
Nýtt fyrirtæki
— Hjálmur hf.
Eftir misjafnt gengi komst Fisk-
iðja Flateyrar í þrot árið 1967.1 kjöl-
far þess tóku höndum saman Fisk-
borg, kaupfélagiö og sveitarfélagiö
um rekstur frystihússins. Hjálmur
keypti síðan eignir Fiskiðjunnar og
fiskverkunarhús Fiskborgar. Því fyr-
irtæki hefur síðan oftast gengið
mjög vel. Jón Gunnar varð annar af
tveimur framkvæmdastjórum liins
nýja fyrirtækis og var hans verksvið
allt það er að verklegum þáttum
laut. Einar Oddur Kristjánsson starf-
aöi með Jóni og var hann fram-
kvæmdastjóri yfir fjármálum. Starf-
aði Jón Gunnar við fyrirtækið allt
fram í árslok 1982 að hann seldi sinn
hluta.
jánsson til starfa við fyrirtækið, en
hann er nú landsþekktur sem for-
maður Vinnuveitendasambandsins.
Enn af fjölskyldunni
og öðrum störfum
Ef við víkjum aftur að fjölskyld-
unni og félagslífinu á staðnum, þá
tók Gunnhildur virkan þátt í starfi
kvenfélagsins sem meðal annars
réðist í byggingu fyrsta barnaheimil-
is staðarins. Var Gunnhildur lengst
af í hópi þeirra sem sáu um rekstur
þess. Þá lagði hún grunninn að
stofnun leikfélags á staðnum og
tóku þau bæði þátt í starfi þess, eink-
um þó Gunnhildur. Jón Gunnar
hafði mikinn áhuga á söng og tón-
list. Auk þess að vera liðtækur á pí-
anó, þá söng hann lengi með kirkju-
kórnum. Ekki átti hann langt að
sækja kórsönginn, því Stefán faðir
hans var ötull liðsmaður í karla-
kórnum Þresti í Hafnarfiröi og eitt
sinn voru Stefán og þrír synir hans
í kórnum. Jón tók mikinn þátt í
starfi Lionshreyfingarinnar á þess-