Faxi - 01.12.1990, Blaðsíða 29
,,Þú minntist á ferðamenn. Hvað
með Bláa lónið?"
,,Já, Bláa lónið og Svartsengis-
svæðið er kapítuli út af fyrir sig. Við
Grindvíkingar höfum skoðað þau
má öll mjög vel og við erum að láta
vinna tillögur sem gera ráð fyrir
heilsuræktar- og útivistarsvæði vest-
anvert við Þorbjörn, það er ungur
arkitekt úr Grindavík, Arni Þorvald-
ur Jónsson, að vinna að þessu. A
þessu stigi málsins er lítið hægt að
segja um framvindu þess annað en
það, að svæðið býður upp á mikla
möguleika."
Er Grindavík
afskekkt byggð?
,,Það heyrist mjög oft, að Grinda-
vík sé afskekktur bær og að fjar-
lægðin frá Keflavík-Njarðvík svæð-
inu torveldi hina ýmsu samskipta-
möguleika. Hver er þín skoðun á
þessu?“
„Miðað við þann mikla fjölda af
fólki sem kemur til Grindavíkur á
hverju sumri, þá get ég ekki fallist á
að bærinn sé afskekktur. Hitt er
annað mál, að það má ýmislegt gera
til að tengja Grindavík betur við
nærliggjandi svæði. Það myndi jafn-
framt skapa nýja möguleika í at-
vinnurekstri. Hér er ég aðallega
með tvennt í huga, þ.e. að lagður
verði vegur með bundnu slitlagi er
tengi Grindavík við Suðurlands-
svæðið. Þar með væri vegalengdin
frá Þorlákshöfn að t.d. flugvallar-
svæðinu orðin um 60 km. í öðru lagi
er ég að tala um veg trá Grindavik,
um Reykjanes og út í Sandgerði. Þar
með væri kominn fullkominn hring-
vegur um Suðurnes sem væri bæði
með tengsl við Suðurlandið og höf-
uðborgarsvæðið. Ég er viss um, að
það eru miklir möguleikar í mynd-
inni, ef þetta væri framkvæmt."
Golf, ferdalög,
framtídin o.fl.
Við Jón Gunnar höfum báðir gam-
t ,?
Grindavík er med merkustu útgerðar- og fiskvinnslubæjum landsins. Þaðan
eru gerð út mörg glæsileg skip og okkur fannst vel viðeigandi að birta hér
mynd af tveimur þeirra með þessu viðtali. Reyndar rákumst við á þau bæði
í Njarðvík, en það breytir í sjálfu sér engu. Loðnuskipið Þórshamar liggur hér
við bryggju í Njarðvik en eigandi þess er Sigmar Björnsson. Skiptjóri er Jón
Eyfjörð. Heldur híifa loðnuveiðarnar gengið illa að þessu sinni og getum við
ekki annað en óskað þess að á því verði breyting til batnaðar. Hitt skipið var
í slipp í Njarðvík og það er hið glæsilega togskip, Gnúpur. Það er fyrirtækið
Þorbjörn sem á þetta skip sem var þegar myndin var tekin að koma úr mikilli
klössun. Veiðarnar fram að þessu hafa gengið vel, en allur afli er saltaður um
borð.
an af golfi. Ég spurði hann að því,
hvar hann hefði kynnst þeirri ágætu
íþrótt.
„Það er nú svo merkilegt, að ég
átti þátt í að stofna golfklúbb í Ön-
undarfirði, þegar ég var fyrir vest-
an. Ég hafði að vísu aldrei sveiflað
kylfu og engan áttum við golfvöll-
inn og félagið lagðist niður, án þess
að á þessu yrði breyting. Eftir að ég
kom til Grindavíkur, þá kynntist ég
golfklúbbunum hér, bæði í Leiru og
hér í Grindavík, en ég fór ekki að
leika sjálfur fyrr en mörgum árum
seinna. Mér finnst þetta í dag mjög
eftirsóknarverð íþrótt. Þetta er
íþrótt fyrir alla aldursflokka sem efl-
ir mátt manna og kyrrsetumenn
eins og ég þurfa svo sannarlega á
því að halda. Það eykur afköstin við
skrifborðið á eftir. Ég fer núorðið oft
í golf og hef meira að segja ferðast
til annarra landa til að leika golf.
Það hefur óneitanlega gefið utan-
landsferðum aukinn tilgang."
„Þú minnist á ferðalög og ég veit
að þið Gunnhildur hafið ferðast dá-
lítið. Hvað sérðu fyrir þér í þeim efn-
um í framtíðinni?”
„Það vill nú svo til, að við erum
nýbúin að festa kaup á sumarbústað
og landskika vestur á Mýrum. Okk-
ar ferðalög á næstunni verða þvi lik-
legast mest þangað. Það er ágætis
tjörn á landinu og við ætlum að
reyna fyrir okkur í fiskeldi, þannig
að við gætum jafnvel veitt okkur i
soðið er fram liða stundir. Hvað
önnur ferðalög áhrærir, þá langar
mig að nefna það, að á meðan við
vorum á Flateyri þá kynntumst við
fjölda útlendinga sem voru í farand-
verkavinnu. M.a. voru þarna margir
frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Þetta
var bráðvelgefið og vel menntað
fólk, sem var að ferðast um heim-
inn, áður en það festi rætur á heima-
slóðum. Við höfum haldið sam-
bandi við sumt af þessu fólki og það
gæti vel dottið í okkur að leggja
land undir fót og fara í heimsókn,
hver veit."
H.H.
Jón og Gunnhildur á ferðalagi á Hawai fyrir nokkrum árum.
Jóri'Gunnar í góðum félagsskap á Myrtle Beach í Suður Karólínafylki sl.
haust. Með honum eru: Ásta Gunnarsdóttir, Halldór Kristjánsson, Guðrún
Guðjónsdóttir og Sigurbjörg Gunnarsdóttir.
FAXI 221