Faxi - 01.12.1990, Page 33
þannig að ef kennarar vildu ljósrita
þurftu þeir að útvega pappírinn
sjálfir. Á einum veitingastað sem við
borðuðum á í ferðinni ætlaði einn
danskurinn að bregða sér á salerni.
Þegar þangað kom sá hann að eng-
inn var kósettpappírinn. Þá bað
hann fararstjórann um að hafa tal af
veitingamanninum og fá pappír. En
veitingamaðurinn svaraði stutt og
laggott: „Ég á engan klósettpappír.
Ef þú þarf á pappír að halda er það
þitt mál.“
Þetta allt hafði mikil áhrif á okkur
sem búum við alsnægtir á öllum
sviðum, og vakti okkur til umhugs-
unar.
Reyndar höfðum við fengið fréttir
af þessu ástandi áður en við fórum
til Eistlands og höfðum eitt og ann-
að í farteskinu en hópurinn færði
mörgum skólanna, sem heimsóttir
voru, hljóðfæri að gjöf eins og t.d.
þverflautur og klarinett.
Svarti markaðurinn blómstraði á
götunum í Tallinn. I tíma og ótíma
var verið að bjóða okkur hluti til
sölu, matvæli og hluti tengda sov-
éska hernum t.d. húfur o.þ.h. Einnig
var mikil eftirspurn eftir gjaldeyri
og þeir okkar sem ekki skiptu á lög-
legan hátt gerðu það á ólöglegan
hátt á götunum í Tallinn. Þar fékkst
miklu betra verð fyrir gjaldeyrinn
heldur en í skiptistöðvunum. Ann-
ars var gengi rúbblunnar mjög á
reiki. Ef skipt var í afgreiðslu hótels-
ins var skiptihlutfallið á sænskum
krónum 1 skr. = 1 rúbbla. Á skipti-
stöðvum (bönkunum) var hlutfallið
1. skr. = 3 rúbblur. Á svarta mark-
aðnum var gengið 1 skr. = 10 rúb-
blur. Þetta varð til þess að sumir áttu
nóg af rúbblum, sem hvergi var svo
hægt að eyða.
Sterk þjóðlaga-
og sönghefð
Kannski sökum þessa vöruskorts
hefur verið lögð mikil áhersla á
söngiðkun í landinu. Til söngiðk-
unar þarf ekki hljóðfæri og eru
mörg þjóðlög Eistlendinga mjög
skemmtileg. Almenn iðkun þjóð-
lagatónlistar er mikil og þjóðdansar
vinsælir. Gömul tónlist er líka hátt
skrifuð í eistlensku tónlistarlífi. Þá
leika menn gjarnan á hljóðfæri sem
þeir hafa smíðað sjálfir og þannig
geta menn iðkað tónlist af lífi og sál.
Kórar eru margir í landinu og í öll-
um skólunum sem við heimsóttum
voru kórar víða fleiri en einn. í Tall-
inn hafa verið haldnar miklar al-
þjóðlegar tónlistarhátíðir ætlaðar
kórum á 5 ára fresti og var í því skini
byggð sérstök aðstaða ætluð þess-
um hátíðum. Þar hafa þátttakendur
viða úr heiminum verið á milli
20—30 þús. og áheyrendur
200—400 þús. Ein slík var haldin í
ár, 1990 og var það í fyrsta skipti
sem kórunum, sem tóku þátt í hátíð-
inni, var leyft að syngja það sem
þeir vildu. Áður fyrr höfðu stjórn-
völd ákveðið efnisskrána en nú var
því fyrirkomulagi breytt. Það er
auðvitað í takt við þær breytingar
sem nú eiga sér stað í þessu landi.
5 manna fjölskylda í
28 m2 íbúö
Þessir fáu dagar í Eistlandi voru
eins konar menningarsjokk fyrir
mig. Þar blandaðist saman ánægja
og leiði. Ánægja yfir því hversu vel
nemendur og tónlistarmenn al-
mennt spila og syngja þrátt fyrir
þann aðbúnað sem t.d. skólarnir
búa við og leiði þegar maður sér
þær aðstæður og það líf sem fólkið
býr við í þessu landi. Þarna kynntist
maður mörgu ágætu fólki sem sagði
manni ýmsar sögur. T.d. hitti ég
verkfæðing og eiginkonu hans sem
eiga 3 börn og býr fjölskyldan í 28
m2 íbúð. Mánaðarlaun hans voru
600 rúbblur á mán. eða u.þ.b. 6.000
krónur. Annan mann hitti ég sem
átti norskan kunningja í skólastjóra-
hópnum frá fyrri tíð. Sá bjó í Vilini-
us, höfuðborg Litháen, og ók 1200
km til Tallinn (600 km hvora leið) í
einni lotu fram og til baka til að ná
í föt á börnin sín, sem sá norski hafði
stungið í ferðatöskuna og komið
með frá Noregi.
Ég er ánægður með þessa ferð.
Segja má að þarna hafi sú óskýra
mynd sem ég hafði í huganum um
stöðu þessara þjóða skýrst. Ég eign-
aðist kunningja í þessari ferð, kunn-
ingja sem kannski eiga eftir að líta
bjartari framtíð, hver veit. En eitt er
víst að þessi ferð markaði djúp spor
í vitund mína og hefur kennt
manni að meta það sem maður hef-
ur og á.
Kjartan Már Kjartansson,
skólastjóri Tónlistarskólans
í Keflavík.
Blómastofa
Guðrúnar
óskar Suðurnesjamönnum
friðsœllar jólahátíðar Guðrún
Við óskum starfsfólki
okkar,; viðskiptavinum
og öllum
Suðurnesjabúum
gleðilegra jóla
og farsœldar á komandi
ári.
Við þökkum liðið ár.
ÍSLENSKIR
AÐALVERKTAKAR HF.
Óskum öllum
Garðbúum
og öðrum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs,
með þökk fyrir samskiptin á liðnu ári
HREPPSNEFND
GERÐAHREPPS
FAXI 225