Faxi - 01.12.1990, Side 35
HÚSID Á HORNINU
l’eir sem hafa átt leiO um Keflavík
aö undanförnu hafa eflaust tekið
eftir byggingu sem er að rísa að
Kirkjuvegi 1. Húsið er áberandi,
enda á horni Kirkjuvegs og Tjarnar-
götunnar, andspænis hinu nýja og
glæsilega húsi íslenskra aðalverk-
taka, þar sem Sparisjóðurinn og
bæjarskrifstofurnar munu hasla sér
völl innan skamms. Handan við
Tjarnargötuna er Bókabúð Kefla-
víkur, bílastæði og skrúðgarðurinn.
Faxa lék mikil forvitni á að fá nánari
fregnir af þessu húsi og því var leit-
að til Olafs Björnssonar í jrví skyni.
Hann tók erindi okkar ljúfmannlega
og fara hér á eftir upplýsingar sem
hann lét okkur í té. Rétt er að geta
þess, að Olafur er formaður Bygg-
ingarsamvinnufélags aldraðra á
Suðurnesjum en það kemur nokkuð
við sögu í máli þessu.
Hugmyndin er frá
Húsanespiltunum
Upphafið að þessari byggingu er
að byggingafyrirtækið Húsanes
boðaði til fundar þann 3. júlí 1988
með borgurum, 60 ára og eldri hér
Framkvæmdir hefjast — gamalt íbúdarhús við Tjarnargötuna er notað sem
vinnuskúr.
í bæ á Glóðinni. Fundurinn var mjög
fjölsóttur. Húsanesmenn kynntu
hugmynd sína um að byggja þjón-
ustuíbúöir fyrir aldraða á lóð sem
þeir höfðu umráð yfir að Kirkjuvegi
1. Auk þeirra var á fundinum fulltrúi
frá Húsnæðismálastofnun sem
skýrði þátt stofnunarinnar í slíkri
byggingu. Einnig var á fundinum
Páll Bjarnason arkitekt og útskýrði
hann frumteikningar sem hann
hafði gert að byggingunni.
Undirtektir voru strax mjög góð-
ar. í framhaldi af þessum fundi var
síöan stofnað Byggingarsamvinnu-
félag aldraðra á Suðurnesjum,
BSAS. Félagið sótti síðan um fram-
kvæmdalán til Húsnæðisstofnunar.
Skilyrði fyrir slíku lánu eru ýmisleg
varðandi fyrirkomulag og fleira.
Þau skilyrði voru öll uppfyllt, en
þrátt fyrir það fór svo, að umsókn-
inni var hafnað vegna fjárskorts
stofnunarinnar. Því miður tafði
þetta nokkuð að hafist væri handa
um framkvæmdir.
Samvinna vid Sparisjódinn
Strax og synjun um framkvæmda-
Byggingarfranikvæmdir ganga vel enda hefur tíðin verið með eindæmum
góð í vetur.
FAXI 227