Faxi - 01.12.1990, Side 39
og bjuggu þar til æviloka. Elínrós dó
4. mars 1974, 84 ára. Auk húsmóð-
urstarfa var lífsstarf Elínrósar að
vera ljósmóðir, sem hún hóf að námi
loknu.
Þegar hún hætti ljósmóðurstarfi
hafði hún tekið á móti um 2000
börnum, því síðasta 1960, þegar
hún var sjötug.
Elínrós var mjög farsæl ljósmóðir
og stundaði starfið af alúð og trú-
mennsku, eins og annað sem hún
tók sér fyrir hendur. Hún vann
dyggilega í UMF /Eskan og Kvenfé-
lagi Svalbarðsstrandar og í Keflavík
að slysavarnarmálum, líknar- og
mannúðarmálum.
Hún var sæmd riddarakrossi
Fálkaorðunnar fyrir embættisstörf.
Börn hjónanna Elínrósar og Þór-
arins voru:
Jón, skrifstofustjóri, f. 16.3. 1915,
d. 30.8. 1983, kona Eydís Einars-
dóttir frá Grindavík. Eyjólfur, f. 5.11.
1916, d. 2.3. 1917. Eyjólfur Helgi,
rafvirki, 26.11. 1918, d. 30.5. 1987,
kona María Hermannsdóttir frá Ak-
ureyri. Benedikt (sk. Jónsson) yfir-
lögregluþjónn, f. 25.1. 1921, d. 16.1.
1983, fyrri kona Lilja Jóhannsdóttir,
seinni kona, Sigríður Guðmunds-
dóttir. Anna Kristjana, f. 6.3. 1923,
fyrri maður Sigurjón Sigmundsson,
síðari maður, M. Donald C. Romig,
skrifstofumaður í New Jersey Am.
Eiríkur Eyfjörð, bifvélavirki Kefla-
vík, f. 30.3. 1929, kona Steinunn
Jónsdóttir frá Dalvík. Kjörbarn,
Magnea Steinunn Jónsdóttir, maður
Roger Laber þjóðgarðsvörður Anc-
horage, Alaska. Elínrós tók barnið
nýfætt heim og gekk því í móður-
stað.
Öll börnin reyndust foreldrunum
mjög vel, en sérstakar þakkir eiga
Jón og kona hans Eydís fyrir að
halda þeim heimili síðustu æviárin.
Systurdóttir Elínrósar, Guðrún
Jónsdóttir, segir þegar hún hefur
lýst fögru heimili hennar og mann-
kostum: „En fyrst og fremst var hún
ljósmóðirin, sem færði birtu og yl
inn á flest heimili á Suðurneskum.
Alltaf fylgdi henni sama öryggið og
hlýjan, enda var geislandi persónu-
leiki hennar slíkur að öllum hlaut að
líða vel í návist hennar."
Elínrós var vel máli farin, hag-
mælt og dáði söng og fagrar listir.
Hún unni sveit sinni Svalbarðs-
strönd, eins og viðtalið, sem hér fer
á eftir ber greinilega með sér. Einnig
ljóð hennar.
Guðmundur Benediktsson.
Hjónin Þórarinn
Eyjólfsson og Elinrós
Benediktsdóttir.
Óskum viðskiptavinum og starfsmönnum
Netaverkstæði Suðurnesja
Sími12470
FAXI 231