Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 40

Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 40
„Og héöan berst þér birkilaufa þeyr afblásnum kvisti, grein sem aldrei deyr." M.J Hún heitir Elínrós Benediktsdóttir, þingeysk að ætt, fædd á Ytra-Hóii í Kaupangssveit. Þriggja ára flutti hún með foreldrum sínum að Breiðabóli á Svalbarðsströnd, en þau voru Benedikt Jónsson, ættað- ur úr Aðaldal og kona hans, Sesselja Jónatansdóttir frá Þórisstöðum á Svalbarðsströnd. — Þú ert þá Þingeyingur í báöar œttir? ,,Já, og ég er næstelzt af 15 systk- inum og af þeim eru 8 á lífi.“ — Hvernig fannst þér lífiö á þín- um œskuárum? „Mér fannst það gott. Við höfðum ekki af neinu öðru að segja en því sem að okkur var rétt og ennþá sakna ég margs frá gamla tíman- um.“ — Langadi ykkur ekki í eitthvaö fjarlœgt — eitthvad óþekkt? „Nei, en þú getur skilið það að heimilið var fátækt með allan þenn- þn barnahóp. Lífið var fremur fá- brotið — mjög ólíkt því sem nú er. En samt fundum við lífshamingju, og það held ég að hafi fyrst og frfemst orsakazt af því, hve vænt okkur þotti um foreldrana, og vild- um gera þeim sem flest til hæfis. Okkur var það vel ljóst að þau létu einskis ófreistað til þess að okkur ljði sem bezt.“ Heldur þú ad börnum þyki ekki vœnt um foreldra sína í dag? „Nei, ekki eins og þá, því fer nú verr. Samband milli barna og for- eldra er ekki eins náið nú og áður var.“ — Getur þú nokkud gefid mér hugmynd um í hverju þetta muni liggja. Mín kynni afungu fólki gegn- um 36 ára starf eru gód, og finn ég engan sérstakan mun á edlishneigd- um ungs fólk í dag og fyrir þrem tug- um ára. „Já, þetta álít ég rétt athugað, en það er annað: Foreldrarnir hugsuðu miklu meira um börnin þá, en nú er. Hið nána samband, milli þeirra eldri og ungu var mikils virði. Til dæmis skal ég benda þér á það, að þótt við værum heima 13 systkini, og þar af leiðandi í mörg horn að líta, þá hafði pabbi alltaf tíma til að tala við okk- ur. Mamma kenndi okkur bænir og önnur þau fræði, sem þá voru talin nauðsynleg til mannbóta. Oft fóru foreldrar okkar út með okkur og léku sér með okkur, og þá má segja að mamma hafi verið komin tals- vert á efri ár. Þau kenndu okkur ýmsa leiki sem þá þóttu ánægjuleg- ir, og ég vil segja að þessi framkoma þeirra hafi skapað þann samhug, sem fjölskyldunni allri, ekki sízt okkur krökkunum var mikils virði. nú hafa foreldrarnir engan tíma fyr- ir börnin sín, hraðinn er orðinn svo mikill að ekkert kemst að nema kapphlaupið um lífsmunað eða þá á öðru leitinu fjáraflastrit. — En fyrst ég hef minnzt á foreldra mína, sem bæði voru mér mjög kær, þá verð ég að segja það, að móðir mín var óvenjulega vel gerð kona. henni sást sjaldan bregða, þótt eitthvað henti. Faðir minn var örari, en heim- ilislífið var þrátt fyrir þennan mis- mun á eðlisþáttum þeirra mjög gott. Og engan hef ég ennþá hitt, sem þekkti móður mína, að ekki hafi honum legið hlýtt orð til hennar hvort sem um var að ræða karl eða konu. Og ég held að hreinskilni í umgengnisháttum manna á milli hafi verið miklu betur séð þá en nú er.“ —■ Hvad tók svo við þegar þá lagð- ir leið þína að heiman? „Eitt sumar var ég í kaupavinnu og svo fjóra vetur á Akureyri, þaðan lá svo leiðin til Reykjavíkur í ljós- mæðraskólann. Þegar ég hafði lok- ið námi mínu þar, fór ég hingað suð- ur til Keflavíkur og hef nú verið bú- sett hér í 53 ár, því hér gifti ég mig.“ — Hvernig leit svo Keflavík út á þeim tíma? „Hún var nú lítil þá, sennilega um 300 íbúar, sem flestir höfðu sitt lífs- framfæri af sjónum. Þá var ekki bú- ið að framkvæma hér mikið fólkinu til hagræðis, hvorki hvað snerti að- stöðu til sjósóknar né vinnubrögð á landi. T.d. þurfti að sækja allt vatn í vatnsból sem þá voru í þorpinu, og varð maður að draga þetta sjálfur ýmist á sleða eða vagni. Ef þvo þurfti þvott var alltaf fyrsta verkið að sækja vatnið." — Hverju hafðirþú vanizt heima? ,,A veturna sóttum við vatnið í föt- um, en á sumrin þvoðum við alla þvotta í læk, sem rann rétt hjá tún- inu.“ — Hvað fannst þér einna ólíkast hér og í þínum heimahögum? „Það var nú nokkuð margt. Þó held ég að það hafi sérstaklega ver- ið munurinn á landinu þegar ég bar saman gróðurlöndin þar og hrjóstr- in hér — þá þótti mér mjög ein- kennilegt, að hér syðra skyldi hvergi vera bryggja, sem skip gat lagzt að, en norður á Svalbarðseyri voru góð löndunarskilyrði á þeim tíma." — Hvernig kunnir þú svo þessum breyttu staðháttum? „Það verður nú aldrei á allt kosið, en ég mundi halla réttu máli, ef ég segði að mig hefði ekki sundum langað norður og æskt þess fremur að eiga það heima. — Hitt er svo annað mál, að við höfum haft það fremur gott hér alla tíð, og því skyldi maður þá vera að fást um nokkrar leiðinda stundir." — Hefur þú aldrei þurft að vita af þínum nánustu tefla tvísýnt tafl við hafið? „Ég veit ekki hvað segja skal um það, þó ekkert frekar eftir að ég kom hingað. Bræður mínir sóttu sjó á skútum frá Eyjafirði meðan ég var heima, og elzti bróðir minn var ekki nema 15 ára þegar hann réðst vest- ur til Patreksfjarðar til róðra hjá frænda sínum Jóhannesi Jóhannes- syni skipstjóra og var með honum eftir það mörg sumur. — Því verður ekki neitað að oft þótti okkur langt að bíða frétta þegar bræðurnir voru á sjónum, en þá var erfiðara um þá þjónustu en nú er.“ — Þú hefur lengi verið Ijósmóðir. Hvað viltu segja mér frá því starfi? „Það hefur veitt mér mikla ánægju. Fyrst var nú það að hér var um starf að ræða, sem ég hafði mik- inn áhuga fyrir. — Mig langaði meira að segja til að verða læknir.“ — Hve stórt var þitt umdœmi? „Það var Keflavík og Njarðvíkur, og svo á tímabili allur skaginn, því þá vantaði Ijósmóður. Mér er dálítið minnisstæð ein ferð hér út í Garð. Þá voru miklir vatnavextir og erfitt að sjá veginn að næturlagi, enda fór svo að við lentum útaf og ofan í tjörn. Ég missti töskuna mína en náði henni samt aftur, og þegar við höfðum öslað upp á veginn stóðum við þarna bíllaus — og hvað var nú til ráða? Ég lagði þá til að við skyld- um ganga áfram og veifa svo fyrsta bílnum, sem á leið okkar yrði. — En ef það er nú Kanabíll? segir hann. Ég kvað það engu máli skipta. — Getur þú talað við þá? — Nei, ég kvað svo ekki vera, því ég kynni ekki ensku, en við hlytum þó að geta gert þeim skiljanlegt hvers við þyrftum með. — Svo kemur bíll og þar á ferð trukkur frá Kananum. Þeir spyrja um ferð okkar og segja: — Sandgerði? — Nei, svaraðí ég. —■ Útskálar? segja þeir. — Já — á þann hátt gat ég gert þeim skiljan- legt að ferðinni væri heitið út í Garð- inn. Þeir tóku okkur svo í bílinn og tókst mér að gera þeim skiljanlegt hvar við vildum fara úr. — Þetta voru traustir og góðir menn. Þegar við svo komum á áfanga- staðinn, þá var þar ekki gott í efni, af fæðingu gat ekki orðið nema kon- an kæmist undir læknishendur ég varð því að ná í bíl og fara með hana 232 FAXI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.