Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 48
F/kxi
7.-8. tölublað
50. árgangur
Útgefandi: Málfundafélagiö Faxi, Keflavík.
Afgreiðsla: Hafnargötu 79, simi 11114.
Blaöstjórn: Helgi Hólm ritstjóri, Kristján A. Jónsson aöstoöarritstjóri og
Vilhjálmur Þórhallsson.
Varamenn: Birgir Guönason og Hjálmar Stefánsson.
Hönnun, setning og umbrot: Leturval sf.
Filmu- og plötugerð: Myndróf.
Prentun: Prentstofa G. Benediktssonar.
HELGI HÓLM
RITSTJÓRI FAXA
SKYRSLA FORMANNS
MÁLFUNDAFÉLA GSINS
FAXA UM
STARFSÁRID'89- 90
Fimmtugasta og fyrsta starfsári
Málfundafélagsins Faxa lauk hinn
10. okt. s.l. Á starfsárinu voru
haldnir tólf fundir. Fundarsókn
var ágæt. Sex félagar sóttu alla
fundina. Meðalfundarsókn var
90,275%. Fundir félagsins frá upp-
hafi eru orðnir 702. Farið var með
eiginkonum í Borgarleikhúsið
nýja á leikrit Halldórs Laxness
Heimsljós í leikgerð Kjartans
Ragnarssonar.
Eftirtalin tíu framsöguerindi
voru flutt:
Hjálmar Stefánsson:
Kristján A. Jónsson:
Helgi Hólm:
Vextir og peningamál.
Keflavík á tímamótum.
Lánasjóöur íslenskra náms-
manna.
Margeir Jónsson:
Ingólfur Falsson:
Gunnar Sveinsson:
Hilmar Pétursson:
Benedikt Sigurðsson:
Vilhjálmur Þórhallsson: Gjaldþrot.
Birgir Guðnason: Réttindamál starfsgreina.
Hvaö verður um þau mannvirki
er þjóna sjávarátveginum?
Siglt í norður.
Fall kommúnismans. Hvað er
framundan?
Öll egg í sömu körfu.
Um lyfjakostnað.
Seinasti stofnfélagi félagsins, Margeir Jónsson, hætti störf-
um á árinu en hann var einn af stofnendum þess. Var hann
valinn heiðursfélagi. Ber að þakka honum frábær störf.
Á árinu 1990 komu út sjö tölublöð af FAXA með hátt í 300
bls., þegar með er talið afmælisblað vegna 50 ára afmælis
þess. Ritstjóri FAXA er Helgi Hólm og Kristján A. Jónsson
aðstoðarritstjóri.
Keflavík, 25. okt. 1990
Vilhjálmur Þórhallsson
formaður.
Merkisafnutli Faxa
Sú staðreynd liggur fyrir og þykir
mörgum ótrúleg, að mánaðarblaðið
FAXI hefur nú komið út í samfellt
fimmtíu ár. Hálf öld í áhugaútgáfu er
langur tími og má draga það í efa,
að þeir menn sem stóðu að stofnun
Faxa hafi reiknað með svo löngum
líftíma blaðsins.
Við þessi tímamót er ekki úr vegi
að rifja lítillega upp brot úr sögu
blaðsins, nýjum lesendum til fróð-
leiks og hinum eldri til upprifjunar.
Málfundafélagið Faxi var stofnað á
árinu 1939 og voru stofnfélagarnir
sex að tölu. Tilgangurinn með stofn-
uninni var sá, að félagarnir myndu
þjálfa sig í að standa fyrir málfund-
um með því sem því tilheyrði. Þessir
menn voru oftar en ekki frumkvöðl-
ar í bæjarfélaginu, þegar standa
skyldi fyrir ýmsum nýjungum,
þannig að sú þjálfun sem þeir fengu
í Faxa kom oft að góðum notum.
Áhugi vaknar
á blaðaútgáfu
Þegar kom fram á árið 1940 vakn-
aði áhugi meðal Faxafélaga um að
bæta við starfsemi félagsins og
stofna til blaðaútgáfu. Á Faxafundi
þann 24. október það ár flutti Hall-
grímur Th. Björnsson framsöguer-
indi um blaðaútgáfu í Keflavík. Að
umræðum loknum var kosin 3
manna undirbúningsnefnd til að
skoða málið nánar. I nefndina völd-
ust þeir Hallgrímur Th., Valtýr Guð-
jónsson og Kristinn Reyr. Nefndin
hafði uppi skjót vinnubrögð og skil-
aði áliti fjórum vikum seinna.
Faxi verður til
Þær upplýsingar sem nefndin
hafði aflað sér bentu til þess, að
hægt væri að gefa út blað sem stað-
ið gæti undir sér. Fylgdi nefndarálit-
inu áætlun sem byggt var á:
Tekjur:
kr.
Auglýsingar........... 100,00
Sala 300 eit. á 0,35 . 105,00
Allskr. 205,00
Helgi Hólm, ritstjóri.
Gjöld
Prentsm.kostn. á 500 eint. 100,00
Pappir .................. 20,00
Myndamót ................ 30,00
Sölukostn. Blaðsölubörn .. 15,00
Ýmis kostnaður .......... 30,00
Tekjur umfram gjöld ..... 10,00
Alls kr. 205,00
Var nú samþykkt í félaginu að ráð-
ast í útgáfu blaðs. Var kosin fyrsta
blaðstjórnin og var hún skipuð þeim
Guðna Magnússyni, Ingimundi
Jónssyni, Kristni Reyr, Ragnari Guð-
leifssyni og Valtý Guðjónssyni.
Fyrsta blaðið
21. desember 1940
Faxi kom út í fyrsta skipti þann 21.
des. 1940. Valtýr Guðjónsson fylgdi
blaðinu úr hlaði og verður því talinn
liafa verið fyrsti ritstjórinn. Strax í
upphafi markaði blaðið sér ákveðna
stefnu og kemur hún ljóslega fram í
eftirfarandi orðum Valtýs:
,,. . .ÞaðsemvakirfyrirMálfunda-
félagi Faxa í Keflavík er það ræðst í
þessa blaðaútgáfu, er meðal annars
þetta: Sú þögn, sem ríkir um menn-
ingar- og framfaramál þessa héraðs
bæði utan þess og innan, er órétt-
mæt og óholl. . . . Þeir (íbúar hér-
240 FAXI