Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1990, Síða 62

Faxi - 01.12.1990, Síða 62
Einhvers staðar langt út í hafsauga er lítil eyja sem heitir Slagviðra. Fáir hafa heyrt hennar getið en engu að síöur býr þar stolt og myndarlegt fólk, að mestu afkomendur fornra sjóræningja og víkinga. Eyjaskeggjar tala ótrúlega gamalt tungumál sem er þó blæbrigðaríkt og fullt af furöulegustu búkhljóðum. Sumir fullyrða að það sé í raun og veru ómemguð* sanskrít. (* Ritháttunnn meingun finnst mér réttari en mengun þar sem oröið er dregið af mein; mein-gun. höfundur) Ekki veit ég hversu mikið er til í því en það tók mig fjögur ár, af þeim áratug sem ég hef búið hér, að læra það að einhverju gagni. Ég átti í álíka miklum erfiðleikum með framburðinn og málfræðma en hún er öll morandi í aukareglum og undan- tekningum. Orðaval og setningaskipan er mjög framandi fyrir útlendinga þar sem máhð er fullt af orðtökum sem geta táknað algerlega óskyld hugtök. Til dæmis er bókstafleg þýðing hugtaksins „Ég er mjög þreyttur“ svona: „Þung segl hafa mér fallió um hrufluó hné.“ Kveðjan „Komdu sæll“ er yfirleitt orðuð þannig: ,,Hnjuffl ö hrrígh virþ dlahljas" sem þýðir orðrétt: „Hellist íhjarta þér hlátur." Að vísu nota menn þara síðasta oróið, dlahljas, þegar þeir hittast á götu nú á tímum, en útlendingar verða oft dauðskelkaðir þegar einhver slær á öxl þeirra og segir þetta vió þá. „Dlahljas." Alls eru fjörutíu og tveir eða fjörutíu og þrír bókstafir í stafrófi Slagviðrmga og fer það eftir því hvort vinstri- eða hægrismnuð stjórn situr viö völd. Annars er tungumálið stolt eyjarskeggja enda er það hvergi talað annars staðar — og svo var fornaldar- saga þjóðarinnar rituð á slagviðrsku fyrir einum sjö eða átta öldum. Svo merkileg þykir þeim þessi saga, sem er til í rúmlega fjörutíu, þykkum bindum, að þeir geta ekki hugsað sér að láta tunguna taka eðlilegum breytingum. Og svo vænt þykir þeim um málið sitt að útlendingar, sem af emhverjum ástæðum vilja setjast að á eyjunni, verða að breyta um nafn þannig að það samræmist tungutaki gömlu villimannanna. Þannig verður t.d. maður sem heitir Þorgeir Skarphéöinsson umskírður og framvegis kallaður TVARAGHNÚLAS SKRABÍHNOFBVÚLHN ef hann sest að meðal innfæddra. Ég ætla ekki að segja ykkur hvað ég heiti hérna, en ég var heilan mánuð að læra að bera nýja nafnið mitt fram. Reyndar fór fyrsta vikan í einhvers konar allsherjar skemmtun meðal kennara mmna. Þeir hlógu sig alveg máttlausa þegar þeir heyrðu mig segja til nafns og kölluðu jafnvel á vini og vandamenn til að hlæja meó sér að mér. Einn þessara kennara skellir upp úr enn þann dag í dag ef hann hittir mig á götu. Efhann mætir svo einhverjum kunningja sínum skömmu síöar, á hann það til að snúa við, ásamt þeim, og spyrja mig aó heiti. Ef ég segi honum nafnskrípió mitt hlær hann eins og slóttugur hrossaprangari og vimr hans taka undir svo að ég er farinn að segja „Enn haldast skriður í fjalli" en það þýðir ,,sama og síðast". En þótt íbúar Slagviðru séu mun færri en fbúar eyja á borð við Asoreyjar eða Barbados, þá eru þeir furðu natnir við að skaprauna stjórnvöldum ýmissa stórþjóða meó því að heimta af þeim gamlar skruddur, fúnar segldruslur eða stemrunna selshreifa sem einhverntíma í fyrndinni tilheyrðu þessari yfirþyrmilega stoltu þjóð. Ég heyrði því fleygt um daginn að þeir hefðu kostað heilmiklu til, fyrir nokkrum áratugum, að ná aftur uppstoppuðu fuglshræi sem mnfæddur maóur hafói einhvern tíma selt úr landi í fylliríi — en líklega er þaó bara kjaftasaga. Mörg háhitasvæói eru á eyjunm og íbúarnir hafa auðvitað lært að hagnýta sér þessa óþrjótandi auðlind. Þegar orkuskortur fer að gera vart við sig kasta þeir öflugri sprengju úr hæfilegri fjarlægð á líklegan stað og ef nýr hver myndast, byggja þeir hús yfir hann. Svo leiða þeir jarðhitann gegn um rör út úr húsinu og í næsta byggðarlag. Stundum misheppnast svona tilraunir að vísu svo heiftarlega að ýmis óæskileg öfl losna úr læöingi og verða þá tíðir jarðskjálftar. Jafnvel eldgos. Þá taka þeir bara myndir af öllu saman og gefa þær út í bókum sem þeir reyna aó selja á erlendum markaði. Ef það mistekst má alltaf reyna að pranga þessu inn á túrista. Þeir deyja ekki ráóalausir þessir kappar, enda ýmsu vanir. Staða eyjarinnar og fráhrindandi nafn, Slagviðra, valda því eflaust aó feróamannastraumur er mjög lítill hingað. Flestir af þeim sem leggja leið sína til þessa furðulands eru náttúrudýrkendur og ævintýramenn, ef þeir hafa þá ekki hremlega farið upp í vitlausa flugvél. Margir þeirra hrífast þó af framandi landslagi eyjarmnar og óstýrilátn hegðun höfuðskepnanna hérna norður við hafsauga. Hér eru líka þúsund náttúruundur og vel það þótt eyjan sé ekki stór; mörg virk eldfjöll, hrikalegir jöklar, beljandi vatnsföll, spúandi hverir og risastór gljúfur. Sjálfir eru eyjarskeggjar þó hrifnan af skógum og gróðurlendi ýmisskonar. Það er nú dálítió sorglegt vegna þess að tré þrífast yfirleitt ekki vel hérna og ýmsar kostnaðarsamar tilraunir til að auka gróðurfar hafa farið út um þúfur*. (* vt um þúfur' = ‘Out about hillocks' á ensku). Það sem innfæddir kalla skóga er í rauninni ekki annað en lyngmóar og kjarrlendi þar sem miðlungs háir runnar ná meðalmanni aðeins upp í axlir. Sá sem viilist í slíkum skógum þarf því ekki að gera annað en að standa upp og líta í kring um sig. Og svo eru „skógarnir" ekki mjög stórir að flatarmáli heldur. Til dæmis er einn vinsælasti skógur landsms, Pilsfaldaskógur, ekki mikið stærri um sig en Hyde Park í London. í fornu slagviórsku handriti segir að í árdaga hafi eyjan verið „skógi þakin langt í sjó fram og sumsstaðar langt út á mið" en í dag bendir fátt til þess. Þó er einn virkilegur skógur hérna: Drullu- sokkaskógur. Hann er í kyrrlátum dal í einu af fámennustu héruöum landsins. Þar geta trén orðið um 40 metra há og digur eftir því. En landsmenn eru ekki hnfnir af skógmum. Þeim finnst of dimmt í honum, fá mnilokunarkennd og halda því fram að hann sé fullur af draugum og drekum. Margar tilraunir hafa verið gerar til að rækta hveiti og ýmsar korntegundir hér á eyjunni en fram að þessu hefur mönnum ekki tekist að láta neitt slíkt tolla í jörðinni. Annað hvort hafa tryllmgslegir stormar feykt öllu korninu út á rúmsjó eóa þá að öll uppskeran hefur fennt í kaf — jafnvel þótt hásumar 254 FAXI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.