Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1990, Side 67

Faxi - 01.12.1990, Side 67
FRAMHALD AF BLS. 251 lestur á kassettur og útvegun myndbanda og annars námsefnis. Gestakennaraskipti hafa einnig verið um tveggja ára skeið, við Hjörring, vinabæ okkar í Dan- mörku og hafa þau Jónína Guð- mundsdóttir og Ketill Jósefsson tekið þátt í þeim fyrir hönd Holta- skóla. Reyndar hafa allir vinabæir okkar á Norðurlöndum sýnt þess- um kennaraskiptum mikinn áhuga og vilja taka þátt í þeim og auka tengsl skólanna í vinabæjun- um. Félagslíf skólans Nemendur stofnuðu skólafélag þegar á fyrsta starfsári skólans og hélt það skemmtifundi í skólanum en árshátíðir voru haldnar í Ung- mennafélagshúsinu til vorsins 1956. Frá því ári voru árshátíðir haldnar í samkomuhúsinu í Ytri-Njarðvík (Krossinum) til árs- ins 1966 þegar árshátíðin var flutt í Félagsheimilið Stapa og hefur hún verið haldin þar síðan. Þessir fyrstu skemmtifundir voru oftast í formi málfunda. Haldin voru spilakvöld, taflkvöld, knattspyrnukeppnir milli bekkja o.fl. þá tóku nemendur skólans þátt í sundmótum og íþrótta- keppnum milli skóla. Skólaárið 1955—56 hefur að vissu leyti markað þáttaskil í fé- lagslífi skólans því að þrátt fyrir að allir skemmtifundir hafi verið bannaðir til 22. des. vegna mænu- veikifaraldurs þá hafa nemendur bætt úr því seinni hluta árs. Það ár var taflfélag stofnað og frá og með þeim vetri hafa nem- endur farið í leikhúsferðir til Reykjavíkur og hefur sá siður haldist óslitið til dagsins í dag. Leikhúsferöirnar (og nú á seinni árum kvikmyndahúsferðir) hafa verið árviss viðburður í skóla- starfinu, allt að 3—4 ferðir á vetri og hafa nemendur séð þau verk sem hæst hafa þótt bera á því sviði og er athyglisvert að, með árabili þó, er um sömu verk að ræða, þótt í nýjum búningi séu, s.s. íslandsklukkan o.fl. sígild verk. Þennan vetur var einnig stofn- uð hljómsveit nemenda sem var skipuð þeim Ragnari Eðvaldssyni, Magnúsi Sigtryggssyni, Þóri Bald- urssyni og Eggert Kristinssyni og fengu þeir gjarnan ýmsa söngvara til liðs við sig eins og t.d. Einar Júlíusson sem þá var aðeins 12 ára en þótti samt efnilegur. Þess má geta hér aö á einni árshátíð- inni söng hann lagið ,,Diana“ 13 sinnum og þótti engum það of oft! Þessi hljómsveit lék á flestum skemmtunum skólans næstu vet- ur þótt um mannaskipti væri að ræða eins og þegar nemendur yf- irgáfu skólann og má segja að hún hafi mótað upphafiö að þeirri miklu tónlistarbylgju sem setti svip sinn á Keflavík á næstu árum. Á þessum árum snerist líf ungling- anna svo mjög um tónlist að Kefla- vík hlaut viðurnefnið ,, Bítlabær- inn“ eða „Tónlistarbærinn Kefla- vík“. Margir af þekktustu tónlistar- mönnum landsins hófu feril sinn á þessum skemmtunum og skóla- hljómsveitir voru viöloðandi skól- ann nær óslitið til dagsins í dag. Meðal þeirra hljómsveita sem í skólanum litu fyrst dagsins ljós má nefna Skugga, Eccho, Nesmenn, Rofa, Bólu-Hjálmar, Vébandið, Trassa, Az, Pandoru, Pikk, Ofris o.fl. Þekkt nöfn þeirra sem í þessum hljómsveitum voru eru m.a. Gunnar Þórðarson, Karl Her- mannsson, Rúnar Júlíusson, Magnús Kjartansson, Magnús Sig- mundsson, Jóhann Helgason o.fl. Vert er að geta þess hér að árið 1987 gaf Axel Jónsson veitinga- maður, skólanum 10 stórar mynd- ir af keflvískum tónlistarmönn- um. Myndir þessar voru unnar af nemendum Fjölbrautaskóla Suður- nesja og prýða þær nú samkomu- sal skólans. Segja má að önnur merk tíma- mót verði í félagslífi skólans þegar æskulýðsstarfsemi Keflavíkur fluttist í húsnæði Gagnfræðaskól- ans veturinn 1977—1978. Með til- komu þeirrar breytingar jókst fé- lagslífið verulega, opin hús tvisv- ar í viku og diskótek hálfsmánað- arlega auk hinnar margvíslegu klúbbastarfsemi. í upphafi voru opin hús þó ald- ursskipt eftir árgöngum, tveir ár- gangar saman einu sinni í viku en eru nú tvisvar í viku fyrir alla sem áhuga hafa. Diskótek skólans hafa oft einkennst af hinum ýmsu straumum og stefnum í þjóðfélag- inu og hafa það löngum verið best sóttu skemmtanir skólans, m.a. Greasekvöld, Bítlakvöld, pönk- kvöld, kúrekakvöld og svo má lengi telja. Þá eru grímuböll, bin- gó, spilakvöld, hæfileikakeppnir og svo að sjálfsögðu jólahátíð og «Fjölbrautaskóli Suðurnesja Vorönn 1991 Stundaskrá verdur afhent fimmtudaginn 10. janúar 1991 gegn greiðslu innritunargjalds, kr. 4.500. Staðfestingargjald dregst frá þeirri upp- hæð. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánu- daginn 14. janúar. Viðtöl við skólaráðgjafa eftir samkomulagi. Skólameistari. ! 1 REIl dUNIÐ ORKU- ININGANA Eindagi orkureikninga er 15. hvers mánaðar. Látið orkureikninginn hafa forgang 1 Hitaveita Suðurnesja FAXI 259

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.