Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 79

Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 79
í Gullbringu- og Kjósarsýslu fyrst bif- reiða og bar númerið GKl, og sjálfur var Gunnar fyrsti bílstjórinn í Gull- bringusýslu með ökuskírteini no. 1. Hann tók strax upp fastar ferðir einu sinni í viku milli Keflavikur og Reykjavíkur og gerðist jafnframt arftaki Jónatans með póstflutninga á þessari leið, og náðu ferðirnar til Garðs, Sandgerðis og Hafna jafnóð- um og bílfært var á þá staði, 1918—1920 hækkuðu fargjöld mikið og voru 1920 komin í 16 krónur en þá lækkaði Gunnar í kr. 12 vegna aukinnar samkeppni en 1923 seldi hann bíl sinn Steindóri Einarssyni en hélt samt hinum sömu ferðum áfram í þjónustu Steindórs. Þrátt fyr- ir að bæjarfógeti í Hafnarfirði og sýslumaður Gullbringu- og Kjósar- sýslu væri sá hinn sami voru þrjár merkingar á bílnum, þ.e. GK, fyrir Gullbringu, KS, fyrir Kjós, og HF, fyrir Hafnarfjörð. Þriðja mannslátið af völdum bif- reiða hérlendis, varð hér í Keflavík í apríl 1920 er Einar Jónsson fyrr- verandi hreppstjóri varð fyrir bíl og beið bana. Sumarið áður lézt öldruð kona af sömu völdum og bifreiða- stjóri velti bifreið sinni í Kömbunum og beiö bana. Sumarið 1927 var í fyrsta skipti farið í bíl að Reykjanesvita að talið er, og hefur verið farið þangað á bíl síðan, þótt jafnvel enn þann dag í dag sé illfært á köflum. En hér hafði verið brotin ný leið og hafði þau áhrif að á fjórða hundrað gestir komu að Reykjanesvita þetta sumar, eða næstum því helmingi fleiri en sumarið næsta á undan. Ekki varð þó komist lengra en að hvernum Gunnu, nokkru frá hon- um. Bílstjóri í þessari fyrstu ferð var kunnur bílstjóri úr Reykjavík, Sigur- jón Jóhannesson, árið eftir komst bifreið alveg heim í hlað á Reykja- nesi og var sagt frá því í Morgun- blaðinu 24. júlí 1928, en Guðmund- ur Bárðarson náttúrufræðingur og síðar prófessor ásamt tveimur út- lendingum auk Ingólfs Einarssonar bílstjóra fóru til Reykjaness og fóru svo létt yfir að aldrei þurfti að ganga af bílnum, en bílstjórum sem kunna að aka þangað í sumar er ráðlagt að hafa keðjur á hjólunum því víða er sandur sem hjólin geta snúist í án þess að renna áfram. í öðru blaði 28. júlí er sagt frá því að vitavörðurinn á Reykjanesi Ólaf- ur Sveinsson hafi reynt að fá lagðan veg yfir hraunið að bústað sínum, lagði hann sjálfur langan spöl og gerði greiðfæran: Á þinginu í vetur voru honum veittar 800 kr. til þessa vegar, en vitavörðurinn fær þær ekki greiddar fyrr en á næsta ári. En þar sem hann gat ekki unað því að vera vegalaus í sumar, þá vann hann sér inn nokkur hundruð krónur í vor og hefur hann nú fullgert veg- inn. Segir hann að nú sé bílfært úr Staðarhverfi út á Reykjanes og að vegurinn sé síst verri en aðrir vegir sem notaðir eru hérlendis. Reykja- nes sé ákjósanlegasti skemmtistað- ur fyrir Reykvíkinga; Margir mundu og hafa farið þangað suður eftir ef vegfæri hefði verið. En nú er vegur- inn kominn og geta menn því hafið ferðir þangað: Áhugi og dugnaður Ólafs vitavarðar hafa augsjáanlega átt drýgstan þáttinn í að opna þenn- an bílveg, en hann gerði auk þess mikið af grjótgörðum til upp- græðslu, en var aðeins vitavörður í 5 ár á Reykjanesi, var þá látinn fara vegna deilna við vitamálastjóra, sennilega fyrir að vera of athafna- samur. Vegur frá Höfnum annar en jeppatroðningum var ekki lagður fyrr en um 1950 er forseti Islands kom þangað og varð svo hrifinn af staðnum að honum var gefið Litla Fell 1957, seinna var vegurinn byggður upp. Eins og fram hefur komið var Gunnar Sigurfinnsson fyrsti bílstjór- inn og bíleigandinn hér á Suðurnesj- um eða í Keflavík á Overland 1916. í Grindavík eignaðist Einar Ein- arsson í Garðhúsum fyrsta bílinn, eins tonna Ford vörubíl og síðan fimm manna Ford blæjubíl. I Vogum var það Bifreiðafélag Vatnsleysustrandarhrepps og bif- reiðastjóri Eiríkur Sigurðsson. Var þetta 'Va tonna Ford T árg. 1919 og jafnframt fyrsti mjólkurbíllinn hér á landi, rekinn á félagslegum grunni. í Njarðvíkum var það Þorbergur Magnússon í Hólmfastkoti sem eignaðist vörubíl, Ford T árgerð 1918. í Sandgerði var það Miðneshrepp- ur sem keyptu Ford vörubíl 1925 og var Jóhannes Eiríksson fyrstur bíl- stjóri. Bifreið þessi fékk viðurnefnið Alheimur vegna þess hve margir töldu sig eiga hlut í bílnum. í Garðinum kom um svipað leyti eins bíll, Ford 1925, keyptur af nokkrum bændum til, m.a., mjólk- urflutninga. Hann hlaut nafnið Þrasi vegna ósamkomulags eig- enda. Einnig kom vörubifreið af Ford-gerð en bílstjórar voru þeir Sig- urgeir Ólafsson, Nýjabæ, og Sumar- liði Eiríksson á Meiðastöðum. í Höfnum voru þeir Guðmundur Sveinbjörnsson og Þorsteinn Árna- son fyrstir með Ford pallbíla. Fyrsti díeselvagninn á íslandi kom til Keflavíkur 1935 og var í eigu Þórðar Péturssonar. Það olli nokkr- um erfiðleikum í byrjun að bifreiðin var talsvert breiðari en aðrar þær bifreiðir sem fyrir voru, því hjólförin pössuðu ekki. í þessari samantekt minni hef ég rekist á margt áhugavert um sam- göngur og bílamál hér á Suðurnesj- um sem vert væri að safna saman og vinna úr, vildi ég gjarnan að það yrði gert af mér hæfari mönnum í slíkum málum. Heimildir og ýmsar frásagnir í grein þessari eru úr safni Guðlaugs K. Jónssonar og eru í eigu Bílgreina- sambandsins. Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsœls komandi ársí Þökkum viðskiptin á árinu Gleraugnciverslun Keflcivíkur Óskum nemendum okkar og foreldrum þeirra gíebiíegra jóía og farsœldar á komándi ári. Þökkum ánœgjulegt samstarf. KENNARAR OG STARFSLIÐ MYLLUBAKKASKÓLA ÍSLENZKUR MARKADUR HF. óskar Suöurnesjamönnum gíeöiíegra ióía og farSœlbar ó komanbt drt. Þökkum viöskiptin á árinu FAXI 271
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.