Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1990, Síða 80

Faxi - 01.12.1990, Síða 80
MINNING Þorsteinn Kristinn Halldórsson F. 22. febrúar 1912 - D. 19. janúar 1990 Mér er það bæði ljúft og skylt að minnast föður míns Þorsteins Krist- ins Halldórssonar frá Borg. Pabbi var fæddur og uppalinn að Vörum í Garði, sonur Kristjönu P. Kristjánsdóttur og Halldórs Þor- steinssonar. Ungur kynntist pabbi mömmu, Önnu Margréti Sumarliðadóttur frá Meiðastöðum. Með henni ákvað hann að ganga lífsveginn. Þau byggðu sér hús og stofnuöu heimili sitt að Borg í Garði. Sameiginlega bjuggu þau okkur systkinunum ynd- islegt heimili sem nú er gott að minnast. Umvafin ástúð og um- hyggju pabba og mömmu var gott að alast upp. Á heimilinu skipti trúin miklu máli enda foreldrarnir báðir trúaðir. Sameiginlega innrættu þau okkur systkinunum það besta sem þau áttu, trúna á Guð. Frá bernskuárunum minnist ég þess hve gott var að halda í höndina hans pabba og sitja í fanginu hans. Margar góðar stundir átti ég sem barn í vörubílnum með pabba og upp á stakkstæði að breiða fisk. Fyr- ir jólin var alltaf jafn spennandi að fá að taka þátt í að skreyta jólatréð með pabba. Síðar minnist ég sjó- ferða okkar á sameiginlegum bát okkar pabba og tveggja bræðra minna. Sjóferðir okkar voru flestar sögulegar því oft kom ýmislegt skondið upp á. Þegar bilaði hafði pabbi oftast einhver ráð til að koma hlutunum í lag enda lagni hans við- brugðið. Pabbi sem ávallt var störfum hlað- inn hafði alltaf nógan tíma fyrir börnin sín og síðar barnabörn. Til hans kom maður aldrei að tómum kofanum, hann hafði alltaf nógan tíma til að hlusta og leggja manni til góð ráð. Það má með sanni segja að þeir sem ieituðu til pabba hafi kom- ið sem betri menn af hans fundi. Heima leið pabba best enda heim- ilisfaðir mikill. Fjölskyldan skipti hann miklu máli, honum var sann- arlega annt um að láta okkur líða sem best og skorta ekkert. Pabbi var maður hæglátur sem hafði ekki þörf fyrir að berast á út á við. Hann átti fjöldann allan af vin- um, það lýsir pabba að nokkru, hann átti öðrum fremur auðvelt með að laða að sér fólk sökum ljúf- mennsku sinnar. Áhugamál pabba voru mörg, ber þá helst að nefna trúmál og laxveið- ar. Á sumrin stundaði pabbi veiði- skap. Hann var mikill áhugamaður um laxveiðar. Frá veiðiferðum sín- um átti hann margar góðar minn- ingar sem yljuðu honum yfir vetrar- mánuðina þegar undirbúningur næsta sumars stóð sem hæst. Áhugi pabba fyrir trúmálum var mikill. Áhugi hans beindist einkan- lega að sálarrannsóknum, enda mikill spíritisti. Rabbi var miklum sálrænum hæfileikum gæddur og hafði upplifað margt í því sambandi. Trú hans á framhaldslíf var einlæg og staðföst. Á miðjum starfsdegi var hann tilbúinn vistaskiptunum. I hans huga voru vistaskiptin álíka og að hafa fataskipti. Nú þegar leiðir okkar skilja að sinni er mér efst í huga þakklæti fyr- ir að hafa átt pabba að föður. Þökk sá honum fyrir allt það sem hann var mér og síðar fjölskyldu minni. Megi góður Guð geyma elsku pabba. Kristjana. Þegar besta vinarins er minnst koma fram margar ljúfar minningar. Afi var besti vinur minn. I fanginu hans afa fann lítil afastúlka mikla hlýju. Afi átti öðrum fremur gott með að skilja lítið barn eins og mig og setja sig inn í hugarheim minn. Þegar ég kom í heimsókn þá biðu amma og afi venjulega eftir mér á tröppunum með útbreiddan faðm- inn. Allt frá fyrstu tíð var ég umvafin ástúð og hlýju afa og ömmu. Afi tók virkan þátt í leikjum mín- um, hann dansaði við mig, söng fyr- ir mig, bar mig á bakinu, sat og greiddi dúkkunum mínum inni í dúkkuhúsinu. Saman áttum við góðar stundir í vörubílnum. Við fór- um oft saman niður í fiskhús. I fisk- húsinu var margt forvitnilegt að sjá og marga fiska á að líta. Þessum ferðum okkar lauk aldrei án þess að komið væri við í fjörunni, fuglarnir skoðaðir og nöfnin á þeim lærð. í fanginu hans afa lærði ég margt. Þar lærði ég bænirnar og hlustaði á sög- ur af Jesú. Að skilnaði vil ég þakka elsku afa fyrir allt það sem hann var mér og bið góðan Guð að geyma liann. Björt og hlý sem vorid, er brosiö himni frá, rw býr þín minning Ijúf hjarta mínu. Pú yndislegi afi ég ung þér undi lijú, og allt hið besta í lieimi, ég lilaut í skjóli þínu. Frá fyrstu bernsku sáöir þú frœjum kœrleikans, í frjóan akur barnsins hreina hjarta, á jöröu hér var samfylgd okkar lielguð fegurð hans, og hann var okkar leiðarstjarnan bjarta. I lilýjum faðmi þínum ég lœrði bœna Ijóð, þú lyftir ungri sál í Ijóssins lieirna. Nú gjafir elsku þinnar ég geymi í dýrum sjóð, þér, góður afi mun ég aldrei gleyma. Þér Ijúfar þakkir fœri, er leiðir skilja nú, þú lagöir gœfublóm á vegferð mína. Eg kveð þig, vininn besta í kœrleik, von og trú, og hvar, sem sporin liggja ég blessa minning þína. Höfundur: Inffibjörff Siffuröurdúttir. Anna Margrét. „Verði þinn vilji" eru orð, sem komu í huga minn, þegar mér var tilkynnt lát frænda, svila og góðvin- ar, Þorsteins Kristins Halldórssonar, Borg í Garði. Hann lést á heimili sínu að rnorgni 19. janúar sl. Eins og ávallt erum við alltaf jafn óviðbúin, þó svo að við vitum að lífið er gjöf til okkar, sem við verðum að skila aftur eftir mislanga dvöl á jörðinni. Þorsteinn eða Steini, eins og hann var ávallt kallaður meðal vina og kunningja, fæddist að Vörum í Garði, 22. febrúar 1912. Hann er sonur Kristjönu Pálínu Kristjáns- dóttur og Halldórs Þorsteinssonar útvegsbónda, sem bjuggu að Vörum í Garði. Börn þeirra hjóna eru: Þorsteinn elstur, Vilhjálmur, Gísli, Halldóra, Steinunn, Guðrún, Elísabet, Þor- valdur, Kristín, Marta, Helga sem lést ungbarn, Þorsteinn Nikulás, lát- inn fyrir nokkrum árum, og yngst er Karítas. Þorsteinn ólst upp í stórum systk- inahópi og varð það því snemma sem hann fór að hjálpa til við að draga björg í bú. Við hlið föður síns, Halldórs, sem var kunnur skipstjóri, afla- og athafnamaður fékk hann þann skóla sem hann hefur búið að alla ævi. í þá daga snerist lífið um sjósókn, fiskverkun og búskap. Það kom því í hlut Kristjönu að sjá um búskapinn, enda harðdugleg kona. Eins og fyrr segir, fór Steini mjög ungur að vinna, hann reri með föð- ur sínum á opnum skipum og þegar vélar komu til sögunnar þá varð það hans hlutverk að taka að sér vél- gæslu á þeim. Halldór faðir hans keypti fiskiskip, er liann nefndi „Gunnar Hámundarson". Þetta nafn var ætíð á bátum Halldórs, og enn í dag á fiskiskipi sem Halldór, Þor- steinn og Þorvaldur bróðir hans létu byggja í Y-Njarðvík 1953. Steini stundaði síldveiðar fyrir Norður- landi eins og margir ungir menn gerðu í þá daga, hann var á Siglu- nesi í eitt ár, þaðan átti hann góðar minningar og trygga vini. Á vetrar- vertíðum var liann landformaður, sá um allt sem að útgerðinni laut í landi og á sjó. Við fráfall föður þeirra tók Steini alfarið við öllu sem út-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.