Faxi - 01.12.1990, Síða 93
skilaði hlutverki sínu ágætlega frá
sér auk þess sem söngurinn var
nokkuð góður.
Ómar Ólafsson fór með hlutverk
Tomma vinar Skúla, sem reyndist
svo vera hommi. Ómar fór á kostum
í því hlutverki. Kristjón Grétarsson
var óborganlegur sem Matti frændi.
Hann túlkaði hlutverkið mjög
skemmtilega og gerði Matta frænda
að mjög lifandi persónu. Jóhannes
Kristjánsson var einnig góður í hlut-
verki Bigga frænda og söng hann
með ágætum. í hlutverki Mjónu,
sem var ein af rónunum, var Halla
Sverrisdóttir. Þetta var nokkuð stórt
hlutverk, sérstaklega í lokin, en
Halia hefði mátt lifa sig betur inn í
hlutverkið og losa aðeins um stirð-
leikann.
Aðrir leikendur skiluðu sínum
hlutverkum ágætlega frá sér, en þó
misvel eins og gengur og gerist. Þeir
áttu stóran þátt í því að söngleikur-
inn varð eins heilsteyptur og raun
bar vitni.
Tónlistarhöfundar eru þrír með-
limir hljómsveitarinnar Pandóru;
Júlíus höfundur söngleiksins, Sig-
urður sem fór með hlutverk Skúla
og Þór Sigurðsson. Tónlistin er góð
en nokkuð hávær á köflum, með
þeim afleiðingum að það hreinsað-
ist vel úr eyrum áhorfenda. Sjálfsagt
hafa flestir gott af slíkri hreinsun af
og til, en þó stóð ég nokkra eldri
borgara, sem vermdu fremri bekk-
ina, að því að halda fyrir eyrun þeg-
ar tónlistin var sem háværust. Söng-
textarnir eru misgóðir, en falla vel
inn í söngleikinn.
Leikstjóri verksins var Halldór
Björnsson en hann setti einnig upp
„Týndu teskeiðina" sem Leikfélag
Keflavíkur sýndi síðastliðið vor,
þannig að hann var aðstæðum og
félagsmönnum kunnugur. Halldóri
hefur tekist að laða fram það besta
hjá leikendum og virðist hann hafa
auga bæði fyrir því skoplega og al-
varlega í senn. Honum hefur tekist
að setja upp heilsteyptan og
skemmtilega söngleik sem allir hafa
gaman af. Hilma.
FAXI 285