Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1993, Page 10

Faxi - 01.12.1993, Page 10
Síöusta jólatrésskemintun Duus í Keflavík 1920. Jólahald í Keflavík upp úr aldamótunum Hús Ficherverslunar í Keflavík byggt 1882. Hér með leyfum vér oss, börn í barnaskóla Keflavíkur, að fara þess á leit við yður, vel borni herra sýslumaður, að þér veitið oss leyfi til að halda tombólu í vetur, um eða eftir jól. Höfuin vér ætlaö oss að gefa til hennar, og draga að mestu leyti sjálf. Hafa hvert „no“ ekki dýrara en 10 aura. Ágóðanum ætluni vér að verja til þess að halda okkur og öðrum hörnum bæjarins jólaskcmmtun. Bréfkorn þessa efnis barst yfirvaldi Gullbringusýslu að áliðnum október árið 1908, undirritað af Sólmundi Einarssyni barnakennara í Keflavík fyrir hönd skólabarnanna. Svo virðist sem sýslumanninum hafi litist erindið nokkuð glannalegt; a.rn.k tók hann sér drjúgan tíma til yfirvegunar, og svaraði ekki l'yrr en langt var liðið á nóvember. Hamingjan mátti vita hverri hættu væri boðið heim ef piltar og stúlkur í Keflavík væru að efna til fjár- hættuleikja og ekki var það heldur að öllu leyti geðfellt að vita börn bæjarins, rík og snauð, á jólatrésskemmtun — eins og lífið væri eintóm léttúð og alvöruleysi! Svo fór þó á endanunt, þegar sýslumaðurinn hafði velt málinu fyrir sér í nokkrar vikur, að hann braut odd af oflæti sínu og ákvað að láta tombólu og skcmmtun eftir Sólmundi og barnaskaranum í þelta sinn. Bréf hans er dagsett 16. nóvember 1908 og veittist umsækjendum þar leyfi til tombóluhalds með þeim skilyrðum að hvert númer verði eigi selt dýrara en 10 aura og að ágóðanum verði varið til jólatrésskemmtunar, svo börnin keyptu nú ekki gráfíkjur fyrir allt saman; til vonar og vara bætir þessi framúrskarandi varkári embættismaður við: „ennfremur að þér herra kennari sjáið urn að þar fari alt vel og siðsamlega fram.“ Því miður höfum við engar frckari spumir af þessum ráðagerðum í barnaskóla bæjarins 170 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.