Faxi - 01.12.1993, Blaðsíða 10
Síöusta jólatrésskemintun
Duus í Keflavík 1920.
Jólahald
í Keflavík
upp úr aldamótunum
Hús Ficherverslunar í Keflavík byggt 1882.
Hér með leyfum vér oss, börn í
barnaskóla Keflavíkur, að fara þess á leit
við yður, vel borni herra sýslumaður, að
þér veitið oss leyfi til að halda tombólu í
vetur, um eða eftir jól. Höfuin vér ætlaö
oss að gefa til hennar, og draga að mestu
leyti sjálf. Hafa hvert „no“ ekki dýrara en
10 aura. Ágóðanum ætluni vér að verja
til þess að halda okkur og öðrum hörnum
bæjarins jólaskcmmtun.
Bréfkorn þessa efnis barst yfirvaldi
Gullbringusýslu að áliðnum október árið
1908, undirritað af Sólmundi Einarssyni
barnakennara í Keflavík fyrir hönd
skólabarnanna. Svo virðist sem
sýslumanninum hafi litist erindið nokkuð
glannalegt; a.rn.k tók hann sér drjúgan tíma
til yfirvegunar, og svaraði ekki l'yrr en langt
var liðið á nóvember. Hamingjan mátti vita
hverri hættu væri boðið heim ef piltar og
stúlkur í Keflavík væru að efna til fjár-
hættuleikja og ekki var það heldur að öllu
leyti geðfellt að vita börn bæjarins, rík og
snauð, á jólatrésskemmtun — eins og lífið
væri eintóm léttúð og alvöruleysi!
Svo fór þó á endanunt, þegar
sýslumaðurinn hafði velt málinu fyrir sér í
nokkrar vikur, að hann braut odd af oflæti
sínu og ákvað að láta tombólu og skcmmtun
eftir Sólmundi og barnaskaranum í þelta
sinn. Bréf hans er dagsett 16. nóvember
1908 og veittist umsækjendum þar leyfi til
tombóluhalds með þeim skilyrðum að hvert
númer verði eigi selt dýrara en 10 aura og að
ágóðanum verði varið til
jólatrésskemmtunar, svo börnin keyptu nú
ekki gráfíkjur fyrir allt saman; til vonar og
vara bætir þessi framúrskarandi varkári
embættismaður við: „ennfremur að þér herra
kennari sjáið urn að þar fari alt vel og
siðsamlega fram.“
Því miður höfum við engar frckari spumir
af þessum ráðagerðum í barnaskóla bæjarins
170 FAXI