Faxi - 01.12.1993, Qupperneq 45
upp með konunum , fara t.d. í
ferðalag, annaðhvort innanlands eða
til útlanda á eftir. 1 40 ára sögu
Karlakórsins hafa að vísu komið
lægðir í raðir kórfélaga. Félagar hafa
verið flestir á 30 ára afmæli kórsins,
eða 54, en hafa farið niður í 17.
Af ferðalögum sem kórinn hefur
farið til annarra landa, fyrir utan
írlandsferðina árið 1967, má nefna
ferð til Ítalíu og Týrol, heintabyggðar
Sigurðar Demends Franssonar árið
1981, en þá stjórnaði Demends
kórnunt. Arið 1984 fór kórinn til
Færeyjar í mjög skemmtilega ferð,
stjórnandi var þá Steinar
Guðmundsson, Árið 1986 er svo
farið til Kanada, sungið m.a. á
Islendingadeginum á Gimli 3. ágúst,
undir stjóm Siguróla Geirssonar, svo
var farið nú í suntar til
Norðurlandanna í mjög góða og
sérstaklega vel skipulagða ferð,
heimsóttir voru m.a. vinabæir
Keflavíkur og Njarðvíkur, söngstjóri
í þeirri ferð var Sigvaldi Kaldalóns.
Söngstjórar Karlakórsins hafa verið
frá upphafi 15, sumir aðeins eitl eða
tvö ár, aðrir lengur, þcir sem lengst
hafa stjómað kómum eru Flerbert H.
Ágústsson í 7 ár, Sigurður Demends
í 6 ár og Guðntundur Norðdahl í 6 ár.
Án þess að gera lítið úr framlagi
þeirra söngstjóra sem stjómað hafa
kómum frá upphafi finnst mér alltaf
að nafn Herberts H. Ágústssonar rísi
hæst. Frú Ragnheiður Skúladóttir
hefur spilað undir hjá kómunt síðan
hún var 16 ára, eða í liðlega 30 ár og
á hún miklar þakkir skilið fyrir sitt
mikla og góða starf í gegn urn árin.
Einn er sá þáttur í starfsemi kórsins
sem ekki má gleymast á þessum
nterku límamótum, það er þáttur
eiginkvenna kórfélaganna, sem
stofnuðu árið 1960 sterkan
félagsskap til stuðnings kórnunt og
starfsemi hans, það væri of langt mál
að telja allt það upp sem þær hafa
gert fyrir okkur félagana, en geta skal
þess að á 10 ára afmæli kórsins gáfu
þær okkur mjög vandaðan flygil sem
var til skamms eina almennilega
hljóðfærið hér á Suðurnesjum, sem
fór illa á eilífum flutningum ntilli
staða þegar verið var að lána hann.
Nú gáfu þær okkur í 40 ára
afmælisgjöf viðgerð á hljóðfærinu,
sem er nú eins og nýtt. Fyrstu ár
kórsins hafði hann ekki í neitt
sérstakt hús að venda til æfingar, þá
fékk hann inni m.a. í
Tónlistarskólanum og í
Gagnfræðaskólanlum og víðar. Það
verða þáttaskil í sögu kórsins þann
26. maí 1976, þegar Bergsteinn
heitinn Sigurðsson tók fyrstu
skóflustunguna að félagsheimilinu að
Vesturbraut 17. Byggingarsaga
félagsheimilisins er löng, hún verður
Bæjarstjórn
Keflavíkur
óskar starfsmönnum
sínum svo og öllum
Keflvíkingum
gleðilegra jóla
og farsœldar
á komandi ári
og þakkar liðið ár.
ekki rakin nú á 40 ára afmæli
kórsins, geta ntá þess að kórfélagar
unnu yfir 50 þúsund vinnustundir í
sjálfboðavinnu. Upp úr árinu 1980
var hafist handa um að halda áfram
með innréttingu efri hæðarinnar
félagsheimilisins, og stefnt að vígslu
þess.
Á 30 ára afmælinu. Margt var gert
til að afla peninga, má þar nefna
kaparett sent kórinn samdi og flutti
fyrir fullu húsi 5 sinnum, ráðist var í
plötuútgáfu, safnað auglýsingum í
söngskrár, rnargir einstaklingar og
fyrirtæki studdu okkur í þessu átaki.
Félagsheimilið var svo fonnlega vígt
og tekið í notkun á 30 ára afmælinu
árið 1983. Á þeim tímamótum gaf
Karlakór Keflavikur Keflavíkurbæ
neðri hæð hússins, sent var 678 m2. í
fokheldu ástandi. Bæjarstjórn
þakkaði gjöftna, en var ekki ákveðin
í því hvað skyldi gera við jtað, og
leigði húsið ýmsum aðilum, ekki
gekk það allt sem skyldi. í gjafabréfi
sem fylgdi gjöfmni segir m.a. Selji
Keflavíkurbær neðri hæðina, eða
hluta hennar rennur 30% af sölu-
verðinu til Karlakórsins. Ég er
handviss unt að hefði þessi klásúla
ekki verið í gjafabréfmu, hefði þessi
eign gengið kaupum og sölum.
Keflavíkurbær á að eiga þetta hús,
sem sitt samkomuhús. Sá sem lengst
hefur verið formaður karlakórsins er
Haukur Þórðarson, hann var
fonnaður í yfir 20 ár, Jóhann Líndal í
8 ár og nokkrir aðrir skentur.
Núverandi stjórnandi kórsins er
Vilberg Viggósson, raddæfingar og
undirleik annast kona hans, sem er
Ungversk, og heitir Agota Joó.
Núverandi stjórn kórsins skipa
eftirtaldir félagar, Þórður Guð-
mundsson formaður, Axel Pétursson
varaformaður, Ásgeir Gunnarsson
ritari, Kjartan Ásmundsson gjaldkeri
og Skarphéðinn Pétursson með-
stjómandi.
Jóhann Líndal.
Viö óskum starfsfólki okkar
og öllum Suðurnesjabúum
gleöilegra jóla og farsæls
komandi árs
Árbak hf.
SUNDMIÐSTÖÐIN
í KEFLAVÍK
OPNUNARTÍMAR
Mánudaga til föstudaga kl. 07-21
Laugardaga kl. 08 til 17
Sunnudaga kl. 09 til 16
25 metra útisundlaug
Sérstök barnalaug
Heitir pottar
Buslpottur
Vatnsrennibraut
Opiö allan daginn
SUND ER HOLL ÍÞRÓTT
FAXI 205