Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1993, Side 51

Faxi - 01.12.1993, Side 51
fyrir Sjúkrahúsið. Koslaði það tæki 1.7 miljónir, en til þessa verkefnis lögðu Aðalverktakar og Kefla- víkurverktakar sínar kr. 500 þúsund hvor. Nú á þessu ári, 1993 á 40 ára afntæli félagsins, voru Sjúkrahúsinu gefnar kr.200 þúsund til tækjakaupa í maí, og þann 15.nóvember s.l. á afmælisdegi félagsins, var Sjúkrahúsinu afhent gjöf að upphæð kr.500 þúsund til kaupa á kviðarholsjá í samvinnu við nokkur önnur félög. Einnig var grunn- skólum á Suðurnesjum afhentar kr.500 þúsund til fræðslustarfsemi um skaðsemi reykinga. Sjúkrahússtjórn bauð til kaffidrykkju. Konráð Lúðvíksson formaður félagsins afhenti gjafirnar og gerði í örfáum orðum grein fyrir starfsemi félagsins s.l. 40 ár, og tilgangi félagsins með þeim gjöfum sem hér væru afhentar. Skúli Skúlasson formaður sjúkrahús- stjórnar þakkaði góðar gjafir félagsins og færði því innilegar hamingjuóskir í tilefni afmælisins. Gylfi Guðmundsson skólastjóri færði félaginu þakkir og hamingjuóskir fyrir hönd grunnskólanna, og ræddi um nauðsyn fræðslu um skaðsemi reykinga. Annað aðalverkefni félagsins hefur verið fyrirlestrahald og fræðslustarfsemi. Meðal þeirra sem flutt hafa fræðsluerindi á vegum félagsins eru Þorvaldur Þórólfsson læknir um reykingavarnir. Asgeir Theódórsson um krabbamein í meltingarfærum. Séra Sigfinnur Þorleifsson um andlega umönnun. Valgerður Sigurðardóttir læknir um viðbrögð við greiningu krabbameins. Fræðslusýning var á vegum félagsins í Holtaskóla í fcbrúar 1986, sem þótti lakast mjög vel. Krabbameinsfélag Suðurnesja hefur tekið virkan þátt í störfum Krabbameinsfélags Islands frá upphafi og sent fulltrúa á aðalfundi þess.Tveir félagar hafa setið í stjóm þess, þcir Eyþór Þórðarsson og Björgvin Lúthersson. Eyþór Þórðarsson var einnig endurskoðandi samtakanna í 7 ár. Segja má að starfsemi Krabba- meinsfélags Suðurnesja hafa verið einn hlekkur í þeirri keðju sem frjáls félagasamtök hafa myndað til að vinna á þeim vágesti sem krabba- meinið er. Með starfsemi félagsins hefur hlutur Suðurnesja ekki verið hvað minnstur í þeiiri baráttu. Eiga þeir er hér hafa unnið að miklar þakkir skildar fyrir sín störf. (ilunnar Sveinsson J /0 í afinælishófi sem liaklið var til að minnast afmælisins voru sex félagskonur heiðraðar. Þær eru frá vinstri: Þórlaug Olafsdóttir, Ingibjörg Jóelsdóttir, Fjóla Jóelsdóttir, Dagmar Arnadóttir, Jóhanna Dagbjartsdóttir og Gunnhildur Guðmundsdóttir formaður félagsins. Þann 24. nóvember 1923 kornu saman í barnaskólanum í Grindavík 23 konur í þeim tilgangi að stofna með sér félag. Var það sainþykkt og var frú Guðrún Þorvarðardóttir kjörin formaður félagsins, Olafía Ásbjarnardóttir féhirðir og Ingibjörg Jónsdóttir ritari. Nokkrum döguin síðar, eða þann 29.nóvember var haldinn annar fundur og lagði þá stjórnin fram frumvarp að lögum félagsins og hafði húsfrú Kratrín Gísladóttir á Hrauni verið stjórninni til aðstoðar í því máli. Á þessum fundi voru lögin samþykkt og kemur fram í þeiin, að tilgangur félagsins var m.a. að efla samúð og samvinnu meðal kvenna í Grindavík, að leggja ekkjum og einstæðingum lið og að hlvnna að kirkjulífi í bænum. Kvenfélag Grindavíkur liefur frá upphafi til þessa dags starfað með miklum krafti og hel'ur starf þess markað spor sín í líf og starf Grindvíkinga. Félagið var oft á hálf- gerðum hrakhólum með húsnæði fyrir starfsemina og lagði því fljótlega í þá miklu framkvæmd að byggja samkomuhús. For- ystu í því máli hafði Ingibjörg Jónsdóttir. Þetta var mikið Grettistak og voru fjáraflanir af ýnisu tagi í gangi. M.a. tókst konunum að fá útgerðamenn staðarins til að gefa 1/2 hlut á sumar- daginn fyrsta í mörg ár og var það drjúgt framlag í hússjóðinn. Samkomuhúsið var síðan vígt með viðhöfn í nóvember árið 1930 og voru þá ekki glæsilegri slík hús á Suðumesjum. Margt gott hefur kvenfélagið látið af sér leiða á þessum sjötíu árum og í tilefni afmælisins réðst núverandi stjóm undir formennsku Gunnhildar Guðmundsdóttur í það stórgóða mál, að gefa út blað á afmælinu þar sem saga félagsins er rakin í stórum dráttum. Ritstjóri blaðsins er Guðfinna Hreiðars- dóttir, sagnfræðingur, en auk hennar skrifa fjölmargar félags- konur greinar í blaðið. Blaðið er 60 blaðsíður og hið vandaðasta og eru í því fjölmargar Ijósmyndir sem fengur er að. Félagið hélt einnig hátíðarsamkomu í Festi í tilefni afmælisins og voru þá nokkrar félagskonur heiðraðar fyrir gifturík störf í þágu þess. HH. Forsíða á afmælisriti Kvenfélags Grindavíkur FAXI 211

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.