Búfræðingurinn - 01.01.1946, Page 9
BÚFRÆÐINGURINN
7
I. KAFLI
Tegundir af tilbúnum áburði.
Tilhúnar áburðartegundir skiptast eðlilega í eftirtalda
flokka: köfnunarefnisáburð, fosforsýruáburð, kalíáburð og
blandaðan áburð.
A. Köfnunarefnisáburður.
Af köfnunarefnisáburði eru til fleiri tegundir. í sumum
þeirra er köfnunarelnið bundið sem saltpétursköfnunarefni
(nitrat), en í öðrum sem ammoníak og í einstöku tegundum sem
cyanamid. Nokkrar áburðartegundir hafa sumt af köfnunar-
efninu bundið sem saltpétursköfnunarefni og sumt sem
ammoníak.
Köfnunarefnisiðnaður, sem byggir á köfnunarefni loftsins
sem hráefni, er ekki gamall. Það eru að vísu 40 ár síðan lieppn-
aðist að finna aðferð til að binda köfnunarefni loftsins til gagns
fyrir iðnað og landbúnað. En það er fyrst á styrjaldarárunum
1914 til ’ 18, að stórfelldar framfarir verða í þessum iðnaði.
í andrúmsloftinu, sem myndar 50 til 60 km þykkan hjúp um
jörðina, er ótæmandi forði af köfnunarefni. í loftsúlu, sem er
1 ha í grnnnflöt, eru 80,000 tonn af köfnunarefni. Þegar þess
er líka gætt, að köfnunarefnið er á hringrás í náttúrunni, fær
loftið köfnunarefnið eftir ýmsum leiðum í staðinn fyrir Jrað,
sem notað er til iðnaðar.
Þó að nú séu Jrekktar fleiri mismunandi aðferðir til að binda
köfnunarefni loftsins, og mikill munur sé á framkvæmd Jress-
ara aðferða, er Jrað Jjó alltaf einhver af þremur eftirtöldum
möguleikum, sem notaðir eru við bindingu köfnunarefnisins:
1. Köfnunarefnið er skilið frá súrefni loftsins og bundið í
efnasambönd, sem geta Jró ekki komið jurtunum að gagni án
umbreytinga í jarðveginum (Kalsíumsyanamid).
2. Andrúmsloftið er látið verða fyrir miklum hita, án Jrrýst-
ings. Köfnunarefnið og súrefnið sameinast og mynda með
vatni saltpéturssýru.
3. Köfnunarefnið er skilið frá súrefni loftsins og látið sam-
einast vatnsefni við mikinn þrýsting en lágan hita.