Búfræðingurinn - 01.01.1946, Blaðsíða 94
92
BÚl'RÆÐINGURINN
kaupa kynbótagripi þaðan, eftir að stöðin hefði tekið að sýna
árangur.
í Eyjafirði, þar sem bezt munu vera skilyrði vegna þéttbýlis
og skipunar byggðarinnar, er nú að rísa upp fyrsta stöðin hér-
lendis. Sjálfsagt er að bíða og sjá hvernig henni reiðir af fyrsta
árið, áður en fleiri eru stofnaðar, því að í ýmsu mun verða
nauðsynlegt að byggja á eigin reynslu, þar sem rekstrarskilyrði
eru frábrugðin því, senr annars staðar gerist.
Ferðalög að vetrarlagi munu t. d. óvíða vera jafnmikið
vandamál og hér, vegna illra vega og keipótts veðurfars.
•Öflun grænfóðurs yfir veturinn er annað úrlausnarefni, en
grænfóður er nauðsynlegt til góðrar sæðisframleiðslu.
Vafalaust þarf að læra margt, áður en uppgötvaðar eru beztu
aðferðir við fóðrun og meðferð nauta, sem og verndun sæðisins
við vor óblíðu skilyrði.
Hér vil ég vara við of mikilli bjartsýni í sambandi við þetta
mál. Ekki má vænta þess, að með sæðingu sé lausn fundin á öll-
um æxlunarvandamálum nautgriparæktarinnar.
Eftir sem áður mun verða erfitt og ómögulegt að koma kálfi
í sumar kýr. Aðeins í fáum tilfellum er unnt að frjóvga með
sæðingu kýr, sem stöðugt hafa beitt upp undan nauti. Einstaka
naut er heldur aldrei hægt að nota til sæðistöku og getur það
verið stórbagalegt.
Slíkt á þá heldur ekki að þurfa að draga úr mönnum kjark,
ef það er ávallt haft hugfast, að aðalgildi sæðingar felst í víð-
tækum og framhaldandi kynbótum á stofninum.
Eins og áður var að vikið, er nákvæmt skýrsluhald höfuð-
nauðsyn til þess að þeim tilgangi sé náð. Því miður er skýrslu-
menning vor hvergi nærri á háu stigi enn sem komið er. Er-
lend reynsla sýnir að skýrsluhald verður aldrei ábyggilegt nema
allstrangt eftirlit sé haft með því af sérstökum mönnum, sem
ferðast milli bæjanna í því skyni.
Mér virðist því einlægast, að þessi tvö verkefni, sæðing og
eftirlit með skýrsluhaldi, séu unnin í sameiningu.
Ef nautgriparæktarsamböndin reka stöðvarnar, sem er í alla
staði bezt og eðlilegast, þá þurfa þau að sjá svo um, að ráðu-
nauturinn, ef einhver hefur verið, verði frá byrjun einn af