Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 29
BÚFRÆÐINGURINN
27
í garða-nitrophoska voru 15% köfnunarefni, 15% fosfor-
sýra og 18% kalí.
Við tilbúning á þessum áburði er notað brennisteinssúrt kalí.
Af köfnunarefni hans er % saltpétursköfnunarefni, en %
ammoníak-köf nunaref n i.
Notkun blandaðra áburðarefna var vaxandi í mörgum lönd-
tun árin fyrir styrjöldina. Hvert kg. af jurtanærandi efnum var
venjulega ódýrara í blandaða áburðinum, en í þeim óbland-
aða. í einum poka af nitrophoska, var svipað af jurtanæringar-
etnunr og í einum poka af kalksaltpétri, einum af superfosfati
°g hálfunr poka af kalí. Flutningsgjöld voru því til nruna
uiinni miðað við hvert kg. jurtanæringar í nitrophoska, en ó-
blandaða áburðinum. Enn fremur sparaðist nokkur vinna við
aburðardreifinguna, þegar alhliða áburður var notaður. En
úl ókosta við blandaða áburðinn má telja, að Jró innbyrðishlut-
löll hinna jurtanærandi efna í lronum, lræfi fyrir nrargar jurta-
tegundir, er ekki víst, að þau lrenti í öllunr tilfellunr, og í öðru
iagi má nrinna á, að gróðurmoldin hefur ekki alltaf jurtanær-
urgarefnin í þeim lrlutföllunr, sem bezt lrenta fyrir jurtagróð-
urinn. Oft er allverulegur forði í henni, af einu eða tveimur
;tburðarefnum, en eitt þeirra vantar og takmarkar uppsker-
una. Með því að bera þetta eina álmrðarefni í jarðveginn, sem
''antar, er lrægt að fá fulla uppskeru. En þess verður að gæta,
að forði jarðvegsins eyðist með vaxandi uppskeru, og sá tími
kemur, að bera þarf öll áburðarefnin á, ef fullnægja á næring-
arþörf plantnanna. í þessu sambandi er rétt að minna á þá sér-
stöðu, sem belgjurtirnar liafa gagnvart áburðinum, óblandað-
a»' áburðartegundir er betra að nota til áburðar fyrir þær, því
að sjálfar geta þær með hjálp rótarbakteríanna aflað köfnunar-
efnis.
IE KAELI
Notkun tilbúins áburðar.
kf við berum saman búfjáráburð og tilbúinn áburð, þá er
búfjáráburðurinn alhliða áburður, sem í eru öll þrjú jurtanær-
llagarefnin: köfnunarefni, fosforsýra og kalí, en samt í frekar