Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 50
48
BÚFRÆÐINGURINN
En svo er það verðið á uppskerunni og verðið á tilbúna á-
burðinum, sem hefur áhrif á, hvað mikið borgar sig að bera á
af tilbúnum áburði. Sé verðlag á uppskerunni hækkandi, eða
verðlag á áburðinum lækkandi, borgar sig betur að bera rnikið
á. Hækki aftur verðlag á áburðinum, en ekki á uppskerunni,
liorgar áburðurinn sig ekki eins vel.
Þegar vaxtaraukinn hrekkur ekki til að borga þann áburð
og þá fyrirhöfn, sem þurfti til að skapa hann, er fyrst komið
yfir hin hagfræðilegu takmörk í áburðarnotkuninni.
Þess er áður getið, að hentugt sé að bera tilbúinn áburð á,
með búfjáráburði. Þetta gildir þó sérstaklega um köfnunar-
efnisáburð, vegna þess að saur búfjárins er fátækastur af því
efni í hlutfalli við það, sem bera þarf á fyrir jurtirnar af köfn-
unarefni. Næst mest vöntun er á fosfórsýru, t. d. nær engin
fosfórsýra í hlandi. Með því að bera einstakar tegundir tilbúins
áburðar á með búfjáráburði, er hægt að stilla áburðarskammt-
ana svo saman, að frekar fáist samræmi á milli áburðar og á-
burðarþarfa heldur en fæst, þegar búfjáráburður er eingöngu
notaður.
Margir íslenzkir bændur hafa á undanförnum árum notað
mikið af köfnunarefnisáburði til viðbótar við búfjáráburð og
fengið þann áburð vel endurgoldinn. En hvað er þá skynsam-
legt að bera mikið á ha í sæmilega góðu túni? Ef borið væri á
10 til 12 þúsund kg af búfjáráburði (það er rúmlega 2/3 af með-
albreiðslu) teldi ég ráðlegt að bera á til viðbótar um 30 kg af
köfnunarefni. Það köfnunarefnismagn höfum við í ca. 1 \/ poka
af kalkammonsaltpétri og svipuðu magni af brennisteinssúru
ammoníaki. Þá mun víða vera ástæða til að bæta við þetta
nokkru af fosfórsýruáburði, t. d. 40 kg á ha af fosfórsýru annað
hvort ár (rúmlega 200 kg af superfosfati).
Ef kúaþvagið er borið á eingöngu, þarf að bera á með því allt
að 60 kg af fosfórsýru á ha (330 kg af superfosfati).
Þeir bændur, sem ætla að rækta tún eingöngu með tilbúnum
áburði, verða að nota öll áburðarefnin. Þeim vil eg ráðleggja
að bera á ha um 70 kg af köfnunarefni (N2), um 60 kg af fos-
fórsýru (P2Os) og um 70 kg af kalí (KaO).
70 kg af köfnunarefni höfum við í eftirtöldum áburðarteg-