Búfræðingurinn - 01.01.1946, Blaðsíða 75
BÚFRÆÐINGURINN
73
vill hvalkjöt. Til þess að drýgja kjötið kémur meðal annars til
greina, sem eggjahvítufóður, fiskmeti, undanrenningarostur
og undanrenning. En af úrgangskjöti verður aldrei nema rnjög
takmarkað magn, sem aðeins fóðrar lítinn fjölda dýra.
í Ameríku er hrossakjöt til loðdýrafóðurs mikið ódýrara en
hér, en þrátt íyrir það er notkun fóðurblanda, framleiddra í
verksmiðjum, vaxandi, svo að langflestir refaræktarmenn eru
farnir að nota þær að meira eða minna leyti. Aðal eggjahvítu-
efni þeirra eru kjötmjöl og sojabaunamjöl, en auk þess inni-
halda þær soðið kornmeti, vítamín o. fl. Verksmiðjurnar gera
sjálfar tilraunir með blöndurnar og setja þessar vörur fyrst á
markað, þegar öryggi er talið fengið fyrir því, að þær uppfylli
þær kröfur, sem gera á til þeirra. Með blöndunum er oft notað
meira eða minna af kjöti ank grænmetis, en ekki er það ávallt
að kjöt sé haft. Fóðurblöndur þessar þykja handhægar í notkun
og vinnusparandi. Þær eru sérstaklega notaðar síðari hluta árs,
meðan fóðurþörfin er mest. í Noregi hafa verið notaðar rnjög
mikið fiskimjölsblöndur, sem uppbótarfóður. Væri ekki ólík-
legt að ein eða fleiri tegundir af fóðurblöndu næðu hér út-
breiðslu, þegar fram líða stundir. En óhjákvæmilega yrði að
gera þær kröfur til þeirra, að þær væru öruggar til notkunar,
auðmeltar og hæfilega ódýrar.
Þegar ófriðnum lýkur er búizt við að frekari reynsla, en áður
hefir fengist, liggi fyrir frá Noregi um notkun fiskmetis til
vefafóðurs. En sé litið svo á, að aðalefni refafóðursins verði að
vera kjötmeti, þá virðist framtíð þessa atvinnuvegar vera í
nokkurri óvissu hér á landi.
Minkafóður. Um minkana er öðru máli að gegna en refina.
Þeir geta að mestu lil’að á fiskmeti, og liafa erlendar tilraunir
fært sönnur á, að þeir geta fengið eins verðmæta feldi þannig
fóðraðir, og fóðraðir á kjötmeti. Sýnast því vera hin ákjósan-
legustu skilyrði fyrir minkarækt, þar sem hraðfrystihús ganga
allt árið, því „beinin" frá þeim eru ágætt minkafóður, sé bætt
v'ið iítilsháttar af öðrum efnum til þess að fyrirbyggja efna-
skort.
Við hina löngu úthafsströnd landsins eru víðast möguleikar