Búfræðingurinn - 01.01.1946, Side 78
76
BÚFRÆÐINGURINN
Ottawa landsþing loðdýraeigenda í Kanada (Dominion Coun-
sil of Canadian Fur Breeders). Á þingi þessu voru kornnir sam-
an fulltrúar frá öllum fylkjum í Kanada, nema einu. Meðal
þess, sem kom til umræðu, var loðskinnsframleiðslan eftir
ófriðinn, og að búast mætti við að margir menn, sem nú eru í
iiernum, mundu gera sér loðdýrarækt að atvinnu, að stríðinu
loknu.
Um þetta segir svo í fundargerðinni: Fundarmenn liöfðu
nokkrar áhyggjur vegna slíkra byrjenda (þ. e. hermannanna),
sem engin kynni hefðu áður af loðdýrarækt og mundi linnast
hún mikið vandasamari og erfiðari, en þeir liefðu búizt við, og
gætu jafnvel tapað öllu því fé, sem þeir hefðu lagt í atvinnu
þessa. Álitu fundarmenn að slíkum mönnum þyrfti að veita
nægilega reynslu og þekkingu, bæði á bóklegan og verklegan
liátt, svo að möguleikar þeirra fyrir því að loðdýraræktin gæti
heppnast þeim, yrðu betri.
Út af þessu voru gerðar svohljóðandi samjrykktir til þess að
senda Jreim yfirvöldum, er hafa á hendi umsjón með því, að
hermennirnir komizt í viðunandi atvinnu:
1. Með tilliti til þess, að allmargir hermenn úr stríðinu megi
teljast líklegir til Jress að stunda loðdýrarækt, þá leggur Jiingið
til að ráðstafanir verði gerðar til Jress, að slíkum mönnum verði
veitt hæfileg tilsögn, bæði bóklega og verklega, áður en þeir
hefja starf sem eigendur loðdýrafyrirtækja.
2. Fundurinn leggur áherzlu á þörfina fyrir fólk að verða
nægilega vel að sér, svo að Jrað hafi góða möguleika til þess að
atvinnureksturinn megi heppnast. Þar sem góður dýrastofn,
hentugur staður og rækilegt nám, að því er snertir næringu,
tímgun og almennar rekstursaðferðir, eru nauðsynleg atriði,
ætti ríkisstjórnin að annast um að möguleikar verði fyrir hendi
svo að hermennirnir geti öðlast Jrekkingu á þessum atriðum.
Samþykktir Jressar ættu að taka af öll tvímæli um Jrað, að
undirstöðuþekking er nauðsynleg hverjum og einum, sem vill
stunda loðdýrarækt.
Alls staðar á Norðurlöndum, nema á Islandi, eru gefin út
loðdýraræktartímarit, sem stöðugt llytja fræðandi greinar, og í
Ameríku er fjöldi af slíkum tímaritum. Aúk Jress eru til hand-