Búfræðingurinn - 01.01.1946, Blaðsíða 99
liÚFRÆÐINGURINN
97
eggjum til 2000 egg eða meira. Séu vélarnar gerðar fyrir frá 100
—500 egg eru eggin höfð í skúffum í einni liæð, nefnast slíkar
vélar oft flatar útungunarvélar. Séu vélarnar fyrir 600—2000
egg, eru eggjaskúffurnar í röðum hver yfir annarri. Inni í Jreim
er hafður hreyfill með viftu, senr dreifir heita loftinu jafnt
um vélina. Þessum stóru vélum er oft skipt í tvennt, þannig, að
í efri röðunum eru eggjabakkar, sem eggin eru höfð á í 18—19
daga, en neðri helmingur er hafður fyrir útungun frá 19. degi.
Stundum eru Jressar vélar alveg aðskildar og standa hlið við
blið. Þessi skipting er gerð til Jress að forðast að dúnninn, sem
kemur af ungunum, Jtegar Jreir þorna, setjist á eggin og skaði
útungunina. Vélarnar Jmrfa að vera í góðu húsi með jöfnum
stofuhita. Það verður að l'orðast að láta sól skína beint á Jrær.
Aður en eggin eru lögð í vélina, þarf að reyna liana i 2—3 daga,
°g ná góðu valdi á hæfilegum og vel jöfnum hita.
Hitastigið í vélunum á að vera 37,8-38° C eða 100-100,5°
f ahrenheit. Breytingin á hitanum verður að vera sem allra
minnst, og alls ekki yfir 2° F eða frá 99,5° F til 101,5° F. Þetta
hitastig gildir þó fyrst og fremst fyrir stórar útungunarvélar
með lireyfli.
I flötum útungunarvélum nteð einni skúffuröð (Jreim litlu)
er hitastigið mælt rétt yfir eggjunum en Jrar reynist Jrað alltaf
hærra en í þeirri hæð sem eggin liggja í og er Jrví talin hæfileg
39,2° C eða 102,5° Fahrenheit, með sömu sveiflutakmörkum
°g áður er greint.
Það er mjög áríðandi að loftskipti séu bæfileg og góð í vél-
Unum. Sömuleiðis verður loftið álltaf að vera hæfilega rakt. Á
Velunum eru loftgöt og „ventlar", sem þægilegt er að stilla
eHir þörfum. Sömuleiðis fylgja þeim vatnsbakkar, eða svo
þarf nauðsynlega að vera. Bezt er að loftrakinn í vélunum sé
um 60%. Til Jress að mæla Jrað, er hentugt að nota mjólkur-
hitamælir. Er aðferðin Jiessi: Um kvikasilfurkúluna er undin
1 Hiii klútur vættur í volgu vatni. Mælinum er stungið niður
1 gegn um eitt af loftgötunum og látinn hanga Jiar án þess að
húlan komi við í 10—15 mínútur. Þá er hann dregin upþ og
hitastigið lesið af. Sýni Jtað 30-31° C er rakastigið um 60%
eða hæfilegt. Ef mælirinn sýnir lægri hita, Jiá er loftið í vél-
7