Búfræðingurinn - 01.01.1946, Page 128
Sigurður Þórðarson
Sigurður Þórðarson, kaupfélagsstjóri, lætur nú af störfum
sínum við Kaupfélag Skagfirðinga. Hann mun og hverfa héðan
úr héraði, að minnsta kosti um sinn, með því að hann hefur
verið skipaður til þess að taka sæti í Nýsköpunarráði. Margir
munu sakna Sigurðar úr liéraði, og telja sér skylt að þakka hon-
um margvísleg störf, er hann hefur unnið hér lieima.
Sigurður gekk í Hólaskóla, er hann var barnungur, og er það
sú eina skólamenntun, er hann hefur hlotið, og litla fjármuni
mun hann hafa hlotið, að heimanfylgju, en svo voru vöggugjaf-
ir hans miklar og hamingjuríkar, að ærið rnikið hefur honum
úr þeim orðið.
Sigurður er kvæntur Ingibjörgu dóttur séra Sigfúsar Jóns-
sonar, hinni merkustu konu. Þau reistu bú að Nautabúi í
Skagafirði, og bjuggu þar allmörg ár. Hýstu jrau og ræktuðu
jörð sína svo af bar, og varð heimili þeirra eitt af mestu mynd-
arbýlum sýslunnar.
Sigurður hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir
sveit sína og sýslu. Hann var hreppstjóri Lýtingsstaðahrepps
um langt skeið, og átti þar ærinn Jrátt í livers konar sveitarmál-
um. Hann hefur verið kaupfélagsstjóri í níu ár, og átt sæti í
stjórn Búnaðarsambands Skagfirðinga, frá stofnun þess. Þing-
maður Skagfirðinga hefur hann verið sl. fjögur ár. Er þó aðeins
fátt eitt nefnt af margháttuðum trúnaðarstörfum, er Sigurður
hefur að unnið í almennings þágu. Sá mun og almannarómur
að oftast hafi honum vel tekizt.
Sigurður tók við kaupfélagsstjórastöðu, af séra Sigfúsi
tengdaföður sínum látnum. Séra Sigfús var hverjum manni
vinsælli, og hafði almenningslof fyrir störf sín við kaupfélagið.