Búfræðingurinn - 01.01.1946, Side 129
BÚFRÆÐINGURINN
127
Var því ekki vandalaust, að setjast í sæti hans. Auk þess hefur
kaupfélagið átt erfiða aðstöðu, fyrir ýnrissa hluta sakir. Má þar
nefna hafnleysið á Sauðárkróki o. fl. Þó mun það mála sannast,
að mörgum hafi mátt vel líka viðskiptin við félagið, undanfar-
•n ár, og Sigurði hafi tekizt stjórn Jress vel og giftusamlega.
Stendur nú hagur félagsins og viðskiptantanna þess með all-
miklum blóma, enda leikur Jrað ekki á tveirn tungum í Skaga-
Hrði, að Sigurður sé liinn mesti fésýslumaður, bæði fyrir sjálfan
sig og aðra.
Margt er Jrað fleira en fésýsla og dugnaður Sigurðar, sem
mörgum mun Jrykja, ekki síður, mikils um vert, svo eru listræn-
ar gáfur hans og fjölhæfar. Hann er maður vel máli farinn, orð-
fimur, rökfastur og laginn á að koma ár sinni fyrir borð í mál-
sókn sinni. Hann getur og verið allskæður andstæðingur í
kappræðum, ef Jrví er að skipta. Hann er og laganraður góður,
svo að það mun lrera af því, sem oftast gerist um leikmenn.
Hefur mörgum orðið Jrað góð stoð að leita til lrans í Jreirn efn-
um, enda er hann fróður um margt, ekki sízt félagsmál og
stjórnmál.
Sigurður er hagur maður á flest, er liann réttir hendur til.
Koma Jrar ntjög fram, ekki síður en annars staðar, hinar list-
rænu gáfur hans. Hefði hann getað verið hinn mesti smiður.
Sigurður er maður söngelskur og kvað bera gott skyn á
hljómlist.
Hversdagslega er hann glaður og reifur, og má oft kallast
hrókur alls fagnaðar. Nýtur þá fyndni hans og fjölhæfni sín
vel, og má Jrar jafnan nokkuð af læra, ekkert síður fyrir Jrað,
þó stundum kenni kaldhæðni.
Sú er ósk og von Skagfirðinga, að Sigurður fái enn að njóta
langra starfsdaga, til gæfu og gengis fyrir sjálfan liann, hérað
hans og alþjóð.
Skagfirðingur.