Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Síða 6

Frjáls verslun - 01.11.2001, Síða 6
RITSTJÓRNARGREIN Uppsögn Þórarins V. Uppsögn Þórarins V. Þóraiinssonar úr stól for- sljóra Símans sýnir enn og aftur hvað ráðherrar í ríkisstjórn hafa mikil bein afskipti af málum for- stjóra í ríkisfyrirtækjum sem breytt hefur verið í almenningshlutafélög og hafa yfir sér þar til kjörnar stjórnir. Þetta sýndi sig í Búnaðarbank- anum sl. vor, í Landsbankanum fyrir rúmum þremur árum og lika hjá Símanum sjáifum fyrir tveimur og hátfu ári þegar Þórarinn, þá stjórnarfor- maður Símans, settíst sjáifur t stól forstjóra fyrirtækisins í stað Guðmundar Björnssonar. Það var á flestra vitorði að Guð- mundur fór ekki sjálfviljugur úr því starfi; hann hafði árið áður skilað fyrirtækinu með um 3,4 milljarða króna hagnaði fyrir skatta og menn deildi á um það hvort fyrirtækið væri 30 eða 60 milljóna króna virði. Hvort sem bein afskiptí ráðherra og ríkis- stjórna af forstjóramálum í ríkisfyrirtækjum eru farsæl eða ekki þá verða þau alltaf tíl staðar á meðan ríkið á meirihluta í fyrir- tækjum og stýrir þeim. Þannig er það bara! Uppsögn Þórarins, sem sýnist hafa rekið fyrirtækið ágætlega, vekur athygli fólks vegna þess hve þekktur Þórarinn er - og líka vegna þess að enginn fær að vita hvers vegna honum var raunverulega sagt upp, annað en að um algjöran trúnaðarbrest hafi verið að ræða. Flestir veittu því athygli þegar uppsögnin var tílkynnt, að notað var orðalagið að þetta væri sameiginleg niðurstaða eiganda félagsins, þ.e. ríkisstjórnar- innar, og einkavæðingarnefndar og ráðgjafans í Lundúnum sem annast söluna á fyrirtækinu tíl kjölfestutjárfestísins. Svona orðalag skilur enginn nema á einn veg: Nú, Davíð Oddsson tók enn eina ferðina af skarið. „Tímabundið leyli“ Haft var eftír Þórarni að ákvörðunin um að hann kæmi ekki aftur tíl starfa hjá Símanum eftír hið marg- fræga „tímabundna leyfi“ sem hann fór í fyrir tveimur mánuðum hafi komið sér á óvart, enda hafi verið tekið fram að hann kæmi aftur tíl starfa. Þetta er bæði rétt og rangt hjá honum. Auðvitað varð hann undrandi á brottvikningunni í ljósi þess sem á undan var sagL Orð skulu standa! Það áttí frekar að segja honum upp strax í haust, ella setja hann í starfið aftur. Allra síst áttí að senda hann i leyfi á fölskum forsendum. Telja verður hins vegar afar hæpið að Þórarinn hafi ekki vitað í hvað steihdi. Ævinlega er talsverður aðdragandi að uppsögnum og forstjórar vita það upp á hár hvort undir kraumi á rnilli þeirra og eigenda fyrirtækja, hvort samskipti manna séu i lagi og hvort þeir finni fyrir trausti af hálfu eigenda í sinn garð. Það er bara ekkert öðru vísi! Það þarf heldur ekki mörg orð um það hvor vikur í fyrir- tæki, forstjórinn eða eigandinn, slái í biýnu á milli þeirra. Glllt eða rautt spjald? Ég hef hins vegar haldið því lengi fram að ef eigandi og forsljóri iinna að þeir nái ekki lengur saman eigi þeir að setjast niður og ræða opinskátt um framhaldið, td. hvort þeir geti komið sér upp eðlilegum samskiptamáta þar sem traust ríki á milli þeirra þótt þeir finni að þeir séu ekki alltaf sam- mála. Eða þá að þeir komi sér saman um að leiðir muni skilja eftír ákveðinn tíma, enda blasi við hvert stefití, og ræði málin af einurð og gagnkvæmri virðingu, þeirra og fyrirtækisins vegna. Um þetta eru þó mjög skiptar skoðanir. Ýmsir telja að best sé að taka af skarið strax, veifa rauðu spjaldi en ekki gulu. Og sumir forsljórar kjósa einfaldlega að fá reisupassann hafi þeir hag- stæða starfslokasamninga, eins Þórarinn mun hafa haft Margir spyija sig að því hvers vegna auðvelda leiðin hafi ekki verið farin og stjórn Símans látin framlengja leyfi Þórarins þannig að hinn nýi eigandi, kjölfestuljárfestírinn, sem eignast 25% í fyrirtækinu en fær þijá menn af fimm í stjórn, tæki ákvörðunina um framtíð Þórarins. Öllum hefur verið það ljóst, ekld síst Þórarni, að framtíð hans væri í höndum nýs eiganda Símans. En líklegast var þetta ekki auðveld leið - í ljósi ráðningarsamnings Þórarins. Varla áttí nokkur von á einhverri heiðríkju í kjölfar upp- sagnar á Þórarni V., hann er ekki þannig maður; hann er vanur átökum á vinnumarkaði. Hann er litríkur og umdeildur, en hann missti trúnað. Kerfið, sem kom honum tíl valda, það ræður - og ræður menn líka og rekur. Jón G. Hauksson jwm rrm ILLlA Stofrmð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 63. ár Sjöfn Guðrún Helga Geir Ólajsson Hallgrímur Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson auglýsingastjóri blaðamaður útlitsteiknari RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir BLAÐAMAÐUR; Guðrún Helga Sigurðardóttir LJÓSMYNDARI: Geir Ólafsson UMBROT: Hallgrímur Egilsson ÚTGEFANDI: Heimur hf. RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: ÁSKRIFEARVERÐ: kr 3.790.- fyrir 6.-11. tbl. -10% afsláttur ef greitt er með kreditkorti. LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. DREIFING: Heimur hf., sími 512 7575 FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf. LITGREININGAR: Heimur hf. - Öll réttindi áskilin varðandi eM og myndir ISSN 1017-3544 Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@talnakonnun.is 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.