Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Page 22

Frjáls verslun - 01.11.2001, Page 22
ÁGÚST OG LÝÐUR MENN ÁRSINS 2001 9.1.2001 10.3.2001 9.5.2001 8.7.2001 6.9.2001 5.11.2001 Hagnaður Bakkauör Group l mil|j- f- skatta sku. 300 stærstu Búist er við að hagnaðurinn nemi 2.300 milljónum króna fyrir skatta á næsta ári. Grafið sýnir gengisþróun á bréfum í Bakkavör Group. Eins og sjá má tók gengið stökk upp á við pegar tilkynnt var um kaupin á KFF í Bretlandi. Sömuleiðis pegar útkoman í útboði Jýrirtœkisins lá fyrir. Heimild: Búnaðarbanki Islands Bylting á matvælamarkaði Matvælamarkaðurinn hefur ver- ið að taka miklum breytingum á undanförnum árum og þær breytingar eru lengst komnar í Bretlandi. Eftirspurnin eftir til- búinni, ferskri fæðu er stöðugt að aukast. Vinsældir niðursoð- innar vöru eru að líða undir lok. Neytendur eru í auknum mæli að gefa gaum að gæðunum. Þeir vilja kaupa ferska og tíl- búna vöru sem lítið þarf að hafa fyrir í stað hefðbundinnar heimilismatreiðslu. Til að svara þessari eftirspurn framleiðir Bakkavör Group ýmsa ferska rétti, t.d. Tikka Masala og aðra austurlenska réttí, sem neytendur eru farnir að þekkja en kunna kannski ekki að matreiða, kavíar, álegg, síld og margt fleira. Bakkavör framleiðir eingöngu fyrir stórmarkaði og verslanakeðjur. „Bylting er að eiga sér stað í Bretlandi og hún mun eiga sér stað í öðrum Evrópulöndum í framhaldinu. Við ætlum að taka þátt í þessari byltingu. Að okkar vití er borðliggjandi að pakka- Lýður og Ágúst Fareldrar: Inga Ágústsdóttir snyrtifræðingur og Guðmundur Lýðsson vélstjóri. Systir: Sigrún Guðmundsdóttir, 31 érs. Uppeldi: Hefðbundið. Mottó: „Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi". 10-15 ára gamlir voru bræðurnir í sveit að Hólum í Hornafirði. Nafn: Lýður Guðmundsson. Starfsheiti: Forstjóri Bakkavör Group hf. flldur: 34 ára. Eiginkona: Guðrún Eyjólfsdóttir. Barn: Alexander, tveggja ára. Menntun: Stúdentspróf frá Verslunarskóla íslands. Starfsreynsla: Vann í Hrað- frystistöðinni í Reykjavík með skóla. Stofnaði Bakkavör hf. fyrir 15 árum og hefur unnið við fyrirtækið æ síðan. Áhugamál: Fjölskyldan, veiði- mennska, matargerð, skíði og góðar bækur. Er félagi í laxveiðifélaginu Ufsanum, fyrst og fremst félags- skaparins vegna. Les árs- reikninga uppi í rúmi á kvöldin. Nafn: Ágúst Guðmundsson. Starfsheiti: Stjórnarformaður Bakkavör Group hf flldur: 37 ára. Eiginkona: Þuríður Reynisdóttir kennari. Menntun: Fjölbrautaskólinn í Ármúla. Tungumálanám í Frakklandi. Starfsreynsla: Á sjónum og í Hrað- frystistöðinni í Reykjavík með skóla. Síðar sem leiðsögumaður. Hann tekur enn í dag einn túr é sumri. Stofnaði Bakkavör hf. fyrir 15 árum og hefur unnið við fyrirtækið æ síðan. Áhugamál: Matur og matar- gerð, útivist og skíði. Vinnan, viðskipti og rekstur fyrirtækja almennt. 22

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.